Læknablaðið - 15.02.2007, Qupperneq 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SJÓÐUR ALDANNA
Sjóður aldanna
- úr handriti
frá 18. öld
- óbrigult ráð við kvefi
Á handritadeild Landsbókasafns íslands -
Háskólabókasafns eru varðveitt nokkur hand-
ritasöfn sem geyma sitthvað frá forfeðrum okkar.
Jón Sigurðsson forseti Hins íslenska bókmennta-
félags var ötull handrilasafnari og handrit sem
hann bjargaði frá glötun eru merkt honum, JS. Eitt
þeirra er númer 227 í safni hans, samtals 81 blað
eða 162 blaðsíður. Handrit þetta er í smáu broti,
svokölluðu oktavóbroti (táknað 8vo), skrifað um
1750. Þar er að finna ýmsan samtíning og hollráð í
erli dagsins. Hér á eftir fara nokkur þeirra:
Á myndinni sem er afblaði 67v (versósíðu, þ.e. síðunni á bakhlið blaðs 67) sjást meðal
annarra eftirfarandi ráð:
Við kveft - Taka skal sokka þá sem maður hefur lengi í verið, skóleikna, og lykta svita-
lyktina úr þeim, 2 eða 3 morgna sem mest maður má, svo mun kveftð rninnka.
Við minni - Tak saltpétur og myl vel og menga við vín, og drekk þar af, það það mun
gjöra gott minni.
Við hósta og hæsi - ... tak það rauða af hænu-
eggi og drekk á tóman magann.
Við hæsi -Tak pipar mulinn og haf í munni þér
lengi og svelg með munnvatni þínu.
Um augun - Sá sem vill halda heilsu augna
sinna, hann varist eldreyk, of mikla amorselsku,
megnan grát, mikinn drykkjuskap, of mikinn mið-
dagssvefn, óhóflegar vökur, og þá fæðu sem verkar
innan vessa.
Að stilla samlyndi hjóna - Tak tóugall og myl
það smátt, lát í drykk fyrir hjónin svo þau viti ei,
og mun þá batna.
Einerber hafa þessar dygðir - ... 1) Sá maður
sem þau etur um alla sína ævi verður aldrei bráð-
dauður. Engin óleyfileg lostasemi á stríðir þann
sína ævi. 2) Þau hreinsa líkamann af illu blóði.
... 4) Þau gjöra allan líkamann varman og sætan
anda. ... 9) Þau styrkja mannsins heila. 10) Þau
skipta fagurlega og jafnan hugviti manns. 11) Þau
hressa sýnina.... 13) Þau gjöra klára raustina.... 15)
Þau burt drífa vind úr maga. 16) Þau láta mat vel
kokkast.... 19) Þau duga við nýrnaverk.... 21) Þau
gjöra góða lukt í munni manns.
JS 227 8vo, 67v.
Heimasíða LÍ - nýr orlofsvefur
Nýr orlofsvefur LÍ hefur litið dagsins Ijós og geta félagsmenn bókað orlofshús í
vetrarleigu og sótt um sumar/páskaúthlutun á netinu.
Til þess að félagsmenn geti bókað orlofshús þurfa þeir að vera skráðir inná
heimasíðu LÍ með aðgangsorðum og eru þeir sem enn hafa ekki sótt sér
aðgangsorð hvattir til að hafa samband við skrifstofu LÍ á lis@lis.is eða í síma
564 4100, og fá þau send.
Einnig er hægt að láta heimasíðuna senda aðgangsorð með tölvupósti svo
fremi sem netfang sé rétt skráð.
Þá eru félagsmenn hvattir til að uppfæra upplýsingar um sig á vef Læknafélagsins þar sem sífellt reiðir meira á a ð
upplýsingar þar séu réttar. Við úthlutun er t.a.m. send út tilkynning með tölvupósti og einnig er látið vita af lausum
orlofsmöguleikum. Þess skal getið að einungis félagar í LÍ sjá þessar upplýsingar.
Davíð Björn Þórisson læknir hannaði orlofsvefinn en hann er einnig heilinn á bak við heimasíðu LÍ.
Læknablaðið 2007/93 155