Læknablaðið - 15.03.2007, Page 3
RITSTJÓRIIIARGREINAR
179 Öryggi sjúklinga í heilbrigðisþjónustu á íslandi
Leifur Bárðarson
181 Áfengisstefna á íslandi
Bjarni Össurarson
FRÆÐIGREINAR
183 Þáttur áfengis í komum unglinga á slysa- og bráðadeild
Landspítala
Þóroddur Bjarnason, Brynjólfur Mogensen, Dagmar Ýr
Stefánsdóttir, Jóhann Ásmundsson
Þótt áfengisneysla unglinga sé víðast bönnuð er hún snar þáttur í ung-
lingamenningu Vesturlanda. Árið 2003 höfðu að jafnaði þrír af hverjum
fimm evrópskum skólanemum og helmingur bandarískra skólanema á
16. ári orðið drukknir einhvern tímann á sínu stutta æviskeiði. í þess-
ari rannsókn eru niðurstöður könnunar meðal 14-16 ára unglinga á
höfuðborgarsvæðinu bornar saman við skráðar komur úr sama hópi
á slysa- og bráðadeild Landspítala. Þannig má meta hvort unglingar
veiti áreiðanlegar upplýsingar um komur á slysadeild og hvort skráning
slysadeildar á komum unglinga undir áhrifum áfengis sé í samræmi við
svör unglinganna sjálfra.
189 Heilsuefling í leikskólum í Reykjavík
- íhlutun og árangur aðgerða
Ágústa Guðmarsdóttir, KristinnTómasson
Árið 2000 voru spurningar lagðar fyrir starfsmenn 16 leikskóla um vinnu-
umhverfi, líðan og heilsu. Gert var vinnuumhverfismat og leikskólunum
skipt í fjóra flokka. Síðan var aðbúnaður og vinnuumhverfi endurnýjað
og veitt starfsmannafræðsla um vinnuvernd. Hálfu ári síðar voru sömu
spurningar lagðar fyrir alla starfsmenn leikskólanna. Samspil vinnuað-
ferða, vinnuumhverfis, vellíðunar í vinnu, menntunar og starfsaldurs er
flókið. Mikilvægt er að allir vinnustaðir fylgi ferli áhættumats, markvissra
íhlutunaraðgerða og síðan endurmats. Þannig nást markmið heilsuefl-
ingar og vinnuverndar.
201 Langvinnur nýrnasjúkdómur - nýjar áherslur
í greiningu og meðferð
Ólafur Skúli Indriðason, Ingunn Þorsteinsdóttir,
Runólfur Pálsson
Til að reyna að stemma stigu við sívaxandi fjölda sjúklinga með lokastigs-
nýrnabilun hafa augu manna beinst æ meir að því að greina langvinnan
nýrnasjúkdóm snemma og beita meðferð sem miðar að því að hindra
framrás sjúkdómsins. Mikil gróska hefur verið í slíkum vísindarann-
sóknum undanfarin ár en nokkur vandamál hafa hamlað því starfi. Fyrst
og fremst hafa óljósar skilgreiningar á nýrnabilun valdið erfiðleikum en
einnig er óvissa í greiningu þar sem kreatínín í sermi er frekar ónákvæm-
ur mælikvarði á nýrnastarfsemi auk þess sem aðferðir við mælingu kreat-
íníns hafa ekki verið nægilega vel staðlaðar.
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL (OURNAL
www. laeknabladid. is
3. tbl. 93. árg. mars 2007
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag (slands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104-564 4106 (fax)
Ritstjórn
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Karl Andersen
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Jóhannes Björnsson,
ábm. og ritstjóri
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Blaðamaður
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigí afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun og bókband
íslandsprent ehf.
Steinhellu 10
221 Hafnarfirði
Pökkun
Plastpökkun ehf.
Skemmuvegi 8m
200 Kópavogi
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið 2007/93 175