Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2007, Qupperneq 19

Læknablaðið - 15.03.2007, Qupperneq 19
FRÆÐiGREINAR 2. Hefur íhlutun í formi fyrsta stigs forvarna, svo sem fræðslu og nýrra vinnutækja áhrif á vinnu- stellingar, hávaða, sálfélagslegt vinnuumhverfi og líkamlega líðan starfsmanna? Efniviður og aðferðir Um er að ræða framsýna íhlutunarrannsókn. Árið 2000 var lagður fyrir starfsmenn 16 leikskóla spurn- ingalisti varðandi, vinnuumhverfi, líðan og heilsu. Gert var vinnuumhverfismat og leikskólarnir flokkaðir í fjóra flokka samkvæmt því. Efnivið hefur verið lýst nánar áður (1). í framhaldi af því fór fram íhlutun á vinnuumhverfi, sem fólst í að ákveða og framkvæma endurnýjun á búnaði í sam- ráði við yfirmenn leikskólanna, efla hávaðavarnir og starfsmannafræðslu urn vinnuvernd. Hálfu ári eftir að íhlutun hafði farið fram á vinnuumhverfi leikskólanna var sami spurningalisti lagður fyrir alla starfsmenn leikskólanna. Niðurstaða vinnustaðamats og spurningalista leiddi til úrbótalista sem innihélt um 40 þætti sem betur mætti fara. Úrbótalistanum var forgangs- raðað af verkefnisstjóra og yfirmönnum Leikskóla Reykjavíkur og skipt í þrjá hluta. Úrbótum sem verkefnið kostaði, meiriháttar úrbætur sem Fast- eignastofa Reykjavíkurborgar fékk til úrlausnar og úrbætur sem hver leikskóli þurfti sjálfur að sjá um kostun og framkvæmd á. I þessari grein er áhersla á íhlutun sem verkefnið kostaði. Áður en íhlutunin var ákveðin nákvæmlega fyrir hvern leikskóla var haldinn fundur með deildarstjórum og leikskólastjóra á hverjum stað. Fjallað var um tillögur að úrbótum við hvern skóla út frá mati á vinnuumhverfi og samþykki starfs- manna fengið til úrbótanna. Um leið var hugað að viðhorfum starfsmanna til vinnuumhverfis og eigin líðanar. Vinnutæki voru keypt inn á deildir til að bæta vinnuhæð og minnka burð starfsmanna. Starfsmenn fengu vinnustóla á hjólum, auk þess sem lág borð og barnastólar voru endurnýjuð. Stigar voru settir við bleyjuskiptiborð og borð endurhönnuð. Aðbúnaður leikskólastjóra var bættur, þar sem þörf var á því. Áhersla var lögð á hávaðavarnir með því að kaupa 14 lampa, sem kallaðir eru „eyra” (11). Lampinn lýsir með gulu ljósi þegar hávaðinn er kominn í 80 dB (desibel) og rauðu ljósi þegar hávaðinn er yfir 85 dB (mynd 1). Lampinn á að gera starfsmenn meðvitaðri um hávaða í vinnurýminu. Hvatt var til teppa- og gardínukaupa inn á deildar til að dempa hávaða. Þegar endurnýjun á aðbúnaði var lokið voru haldnir fræðslufundir í hverjum leikskóla um hávaðavarnir, álagseinkenni, líkamsbeitingu, lík- amsvitund og nýtingu nýrra vinnutækja. Rætt var um mikilvægi þess að horfa á vinnuumhverfið út frá starfsmanninum en ekki eingöngu út frá börn- ununt eins og var ríkjandi hjá starfsmönnunum. í maí árið 2002, um hálfu ári eftir að íhlutun var lokið, lögðu starfsmenn Vinnueftirlitsins sama spurningalista fyrir alla starfsmenn leikskólanna, eins og gert hafði verið tveimur árurn áður. Til að meta áhrif íhlutunar á líðan starfsfólks voru svör við spurningum er varða óþægindi starfsmanna síðustu sjö dagana áður en listinn var lagður fyrir borin saman við svör við sömu spurningum árið 2000. Vísindasiðanefnd veitti leyfi til rannsóknarinnar (00/020-Vl). Útreikningar eru gerðir í SPSS (12). Ekki er um normaldreifingu að ræða í flokkunum fjórum sem mynda vinnumatseinkunnina og því er mismunur meðaltala metinn útfrá Kruskall-Wallis prófi. Hlutföll eru metin með Kí-kvaðratprófi en væntigildi fyrir 2002 reiknuð út frá dreifingu svara við hverju atriði sem skoðað var árið 2000 þegar samanburður er gerður milli þessara tveggja ára (13). Ákveðið var í túlkun að miða marktækni við p= 0,001, þar sem fjöldi tölfræðiprófanna er mikill í samanburði í rannsókn sem þessari. Niðurstöður Heildarsvörun árið 2002 var 88% (n=267) en 90% árið 2000. Töflur sýna samanburð milli ára innan flokka annars vegar og hins vegar samanburð milli flokka innan ára. Þegar flokkarnir fjórir sem mynda vinnumats- einkunnina eru skoðaðir milli ára kemur í ljós að þar hafa orðið nokkrar breytingar (tafla I). Tafla I fjallar almennt um starfsmannahópinn. Milli ára er marktækur munur hjá starfsmönnum sem segjast vinna aukavinnu og hafa skipt um starf á síðustu fimm árum. Fjöldi starfsmanna í flokkunum hefur jafnast milli ára. Fæstir starfsmenn eru áfram í A og D en flestir í B og C, eins og árið 2000. / HEILSUEFLING ■ Mynd 1. „Eyrað" er lampi, sem lýsir með gulu Ijósi við 80 dB hávaða, en rauðit Ijósi við 85 dB. www.soundear.dk Læknablaðið 2007/93 191
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.