Læknablaðið - 15.03.2007, Síða 25
FRÆÐIGREINAR / HEILSUEFLING
Tafla VI. Óþægindi vegna hávaða miðað við vinnumatsflokkana og út frá starfsatdri. Sett fram í fjölda starfsmanna, en hundraðstala í sviga.
Flokkar leikskóla Tölfræðiprófun
Hávaði A= Vinnu- umhverfi mjög gott B= Vinnu- umhverfi gott C= Vinnu- umhverfi nokkuð gott D= Vinnu- umhverfi sæmilegt N= fjöldi Samanburöur milli 2000 og 2002 p=.001 x2crit 24,3
Hávaði, oft eða stundum
2002 39 (93%) 81 (91%) 65 (93%) 50 (94%) 254 X II t-1
2000* 29(93%) 70 (99%) 78 (93%) 29 (78%) 223
Hávaöi, hjá starfsmönnum, sem starfaö hafa í 0-1 ár; oft
2002 6 (55%) 9 (45%) 5 (42%) 9 (69%) 56 X2- 46
2000 11 (92%) 22 (63%) 25(71%) 6 (67%) 91
Hávaði, hjá starfsmönnum sem starfað hafa lengur en 1 ár; oft
2002 19 (70%) 41 (59%) 39 (71%) 28(74%) 189 X2=63
2000 10 (56%) 24 (69%) 26(53%) 14(52%) 129
Marktækt, milli flokka innan árs: *p>0,05
hætti en búast mætti við. Gott rými, lægri aldur
starfsmanna, minni fagmenntun tengist betri
líkamlegri líðan en verri sálfélagslegri líðan.
Fagmenntun kallar á aukna ábyrgð en tryggir góða
sálfélagslega líðan og mjög jákvætt hugarfar. Þessi
aukna ábyrgð leiðir hins vegar mögulega til þess
að fagmenntað fólk leggur meira á sig líkamlega
til að sinna störfum sínum og fær því frekar lík-
amleg óþægindi. Þessu verður ekki svarað hér með
óyggjandi hætti, en er mikilvægt rannsóknarefni í
heilsueflingu og vinnuvernd.
í upphafi verkefnisins var þáttur hávaða f
vinnuumhverfi starfsmanna ekki talinn eins stór
og mikilvægur og síðar kom í ljós. Mælingar á
hávaða (1) og óþægindi af hans völdum sýndu að
mikilvægt var að taka á hávaðanum. Kvartanir
vegna hávaða minnkuðu ekki milli ára (tafla VI).
Fleiri börn valda meiri hávaða, því leikur leik-
skólabarna felur eðlilega í sér hljóðmyndun frá
börnum, fullorðnum og leikföngum. Varnir gegn
hávaða beindust bæði að fræðslu og nýju vinnu-
tæki, svo kölluðu „eyra” (mynd 1), sem á að auka
meðvitund starfsmanna og barna um hávaða (11).
Fræðsla og umræða um hávaða fjallar um notkun
raddar, dempandi dúka á borðum, teppi, lýsingu
og skipulag til dæmis notkun rýma, fjölda barna í
rými og útiveru (16-19).
Meðvitund starfsmanna um hávaða hefur auk-
ist milli ára (tafla VI). Það sést að tekið hefur
verið á hávaðanum þar sem nýráðnir vinna, því
að hávaði hefur minni áhrif á þá árið 2002 en árið
2000. Undantekning frá þessu er flokkur D, en þar
varð mikil fjölgun á ófaglærðum starfsmönnum
milli ára. Fleiri eldri og reyndari starfsmenn svara
þannig árið 2002, að hávaði hafi valdið þeim óþæg-
indum, en árið 2000.
í fimmtu grein reglugerðar um varnir gegn álagi
vegna hávaða á vinnustöðum (nr. 921/2006) er
kveðið á um að hávaði fari ekki yfir 65 dB (A) þar
sem samræður eiga sér stað og ekki yfir 60 dB (A)
í mat- og kaffistofum á meðan notkun stendur yfir
(20). Því er ljóst að hávaði sem mælist um og yfir
85dB (A) á leikskólum þar sem verið er að vinna
með og kenna börnum er allt of hár. Munurinn er
„aðeins” 20 dB en hljóðstyrkur hópsins er í raun
120 faldur á við venjulegt samtal, vegna þess að
kvarðinn er lógaritmískur. Það þýðir að hvort sem
við förum upp eða niður á kvarðanum þá þýða 3 dB
alltaf tvöföldun eða helmingun hávaðans, þó eyrað
skynji það ekki svo (17, 21). Almennt var ánægja
með „eyrað” ekki eins jákvæð og búast hefði mátt
við. Skýringin er sú að hrópin eru numin af „eyr-
anu” (80dB, gult ljós) en ekki skvaldur og eðlilegt
tal barnanna sem er þreytandi til lengdar. Nú er
búið að breyta lampanum á þann veg að hægt er
að stilla gula ljósið frá 50-80 dB og það gefur meiri
möguleika.Tryggja þarf að starfsmenn séu meðvit-
aðir um neikvæð áhrif hávaða og vinni því stöðugt
að því að lækka hávaða alla daga.
Yfirvöld leikskóla verða að tryggja að við-
urkenndar hljóðísogsplötur séu í loftum á leik-
skólum og að endurkast sé innan marka bygg-
ingareglugerðar eða að ómtími sé 0,6 sek (22).
Erlendar rannsóknir og endurskoðun reglugerða
og staðla f nágrannalöndum okkar benda til þess
að 0,4 sekúndur séu í raun æskilegra markmið sem
ómtími fyrir kennslustofur í leikskólum og grunn-
skólum(23).
Niðurstöður áhættumatsins árið 2000 voru
kynntar fyrir stjórnendum á Fasteignastofu
Reykjavíkurborgar, sem sjá um allar meirihátt-
ar breytingar og endurnýjun á leikskólum í
Reykjavík. Óskað var eftir að tekið yrði tillit til
þeirra við framkvæmdir og endurnýjun á næstu
Læknablaðið 2007/93 197