Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2007, Page 76

Læknablaðið - 15.03.2007, Page 76
SÉRLYFJATEXTAR / TILKYNNING m Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri SÉRFRÆÐINGUR Á MYNDGREININGARDEILD Staða sérfræðings á myndgreiningardeild FSA er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% stöðu með vaktaskyldu og þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta. Umsækjendur skulu hafa lækningaleyfi á íslandi og fullgild réttindi í myndgreiningu (röntgen/geislagreiningu). Næsti yfirmaður er forstöðulæknir myndgreiningardeildar. Myndgreiningardeild veitir fjölþætta þjónustu og nær þjónustusvæðið til Norður- og Austurlands. Auk almennra röntgentækja eru á deildinni tölvusneiðmyndatæki (CT) og nýtt segulómtæki (MR). Þá eru gerðar ísótóparannsóknir, brjóstamyndatökur (hópskoðanir), beinþéttnimælingar og ómskoðanir á deildinni. Deildin er algjörlega stafræn (filmu- og pappírslaus). Umsóknarfrestur er til 20. mars 2007 og staðan veitist frá 1. apríl 2007 eða eftir samkomulagi. Starfskjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags íslands. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Orri Einarssonar, forstöðulæknir, í síma 4630100 eða 8600528 og tölvupósti orrie@fsa.is í umsóknum skal gerð grein fyrir náms- og starfsferli, rit-, kennslu- og stjórnunarstörfum svo og sérstökum áhugasvið- um faglegs efnis. Umsóknum skal skilað í tvíriti á þar til gerðum eyðublöðum, www.heilbrigdisraduneyti.is/media/Starfsrettindi_laekna/ Umsokn_laekningaleyfi.doc auk fylgiskjala, til Þorvaldar Ingvarssonar, framkvæmdastjóra lækninga, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri. Öllum umsóknum verður svarað. 248 Læknablaðið 2007/93

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.