Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREINAR Ólafur Baldursson olafbald@landspitali. is Ólafur Baldursson lungnalæknir lektor lyfjafræðideild HÍ, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra lækninga Landspítala, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík. Medical Education - up to date? Ólafur Baldursson MD, PhD Internist/Pulmonologist Associate Chief Medical Executive Landspitali University Hospital Eiríksgata 5 101 Reykjavik Menntun lækna - í takt við tímann? Lengi frameftir síðustu öld var nám við lækna- deild Háskóla Islands viðamesti þátturinn í menntun lækna. Með tímanum færðist í vöxt að læknar sæktu viðbótarnámskeið í útlöndum en smám saman kusu fleiri ungir læknar að stunda formlegt framhaldsnám erlendis og þar kom að slíkt var talið nauðsynlegt. Nú er svo komið að sumir læknar verja sjö til níu árum til fram- haldsnáms sem er mun viðameira en hið sex ára grunnnám í læknadeild. Athygli vekur að þessi þróun spratt úr grasrótinni hjá læknum sjálfum án afskipta yfirvalda. Enn í dag gætir misræmis þar sem þjálfun og sérhæfing lækna hefur vaxið hraðar en lagabálkar sem ætlað er að fjalla um hana. Þó svo að krafturinn í útrás lækna til náms sé mjög verðmætur hafa menn með tímanum gert sér grein fyrir því að erlendar stofnanir eru misjafnlega í stakk búnar til að mennta og þjálfa lækna. Með heimkomu sífellt fleiri lækna úr námi berast straumar og stefnur sem við getum nýtt okkur hér heima. Kjark og sjálfstæði þarf til þess að spyrja hvers konar menntun og þjálfun sé eft- irsóknarverð á hverjum tíma og taka þátt í að móta hana í stað þess að vera aðeins þiggjendur. Þó svo að læknisstarfið og menntunin séu, og eigi að vera sígild, munu fræðin og beiting þeirra halda áfram að breytast. Það er því ráðlegt að end- urskoða menntastefnu lækna reglulega, allt frá grunnmenntun til símenntunar. Slík endurskoðun hefur nýlega farið fram á námsskrá læknadeildar en samtímis er unnið að þróun framhaldsnáms á Landspítala og í heilsugæslunni. Breytingar á námsskrá læknadeildar hafa kost- að fyrirhöfn kennara og nemenda en vel hefur tek- ist til undir forystu Kristjáns Erlendssonar. í viðtali hér í blaðinu rekur Kristján merkar nýjungar í náminu svo sem vandamiðaða nálgun, kennslu í fagmennsku, stjómun, úttekt erlendra stofnana og bandarískt próf við útskrift. Erlendar úttektir og próf eru verðmætar aðferðir til þess að meta styrkleika og veikleika námsins og vísa veginn til umbóta. Þannig fara saman kröfur um mikla fag- lega þekkingu og ítrustu fagmennsku hvað varðar samskipti, vinnuskil og framkomu við sjúklinga og aðstandendur. Þetta er góð þróun en ekki má gleyma að umbætur sem þessar krefjast aukinnar vinnu starfsmanna læknadeildar, nemenda og lækna á Landspítala. Taka þarf tillit til þessarar framþróunar við allt skipulag og rekstraráætlanir. Viðtöl við aðra framámenn í kennslumálum hér í blaðinu eru einnig athyglisverð og minna okkur á mikilvægi kennslu í samskiptafræði, viðtalstækni og klínískri færni. Við erum minnt á að vinnutíma- tilskipanir kalli á nýtt skipulag framhaldsnáms en þetta er vel þekkt vandamál víða erlendis og hefur hvergi verið leyst með fullkomnum hætti. I Bretlandi hefur verið bent á að sé vinnutímatil- skipunum fylgt til hins ítrasta muni taka 15 ár fyrir æðaskurðlækni að ná sérfræðingshæfni. Ýmsar lausnir eru til umræðu svo sem að efla þjálfun í hermi- eða fæmibúðum og tímabundinn aðskiln- aður náms og vinnuráðningar. í fyrrgreindu viðtali bendir Kristján á lyk- ilhlutverk Landspítala í menntun lækna. Hafa ber hugfast að mun fleiri sérfræðingar í læknisfræði starfa á Landspítala en hjá læknadeild og þar er endurnýjun lækna með nýjustu þekkingu mun hraðari. Þróirn akademískra nafnbóta fyrir starfs- mertn Landspítala er skref í rétta átt en stíga ætti skrefið til fulls og opna læknadeild meira fyrir læknum sem bera slíka nafnbót. Þetta skyti styrk- um stoðum undir metnaðarfulla vísindastefnu HÍ og Landspítala og fjölgaði leiðbeinendum fyrir meistara- og doktorsnema. Landspítali nýtur þess einnig að eiga samvinnu við aðra háskóla hérlend- is og erlendis en slíkt samstarf færist í vöxt. Framundan eru verðug verkefni og ýmsum spurningum er ósvarað. Er raunhæft að ætla aðeins sex ár til læknanáms með vaxandi kröfum á öllum sviðum? Kæmi til greina að gefa kost á mismun- andi námsleiðum, til dæmis „klínískri leið" (MD) og lengri „vísindalegri leið" (MD, PhD)? Einnig þarf að fjalla um kostnað við menntun lækna og tengja þá umræðu stefnumótun yfirvalda um mannafla. Hér þarf þó að stíga varlega til jarðar og hlífa grasrótinni því að úr henni hefur sérfræði- kunnátta íslendinga í læknisfræði sprottið með frelsi til athafna. Fagna ber opinberri fjármögnun náms í heimilislæknisfræði sem opnar möguleika annarra greina til hins sama. Þrátt fyrir framfarir í grunnnámi og framhaldsnámi hefur lítið borið á skipulagi símenntunar. Fræðsludagskrár lækna- deildar, Landspítala og læknafélaganna sýna að mikil símenntun býðst en skipulega skráningu vantar. Nú glittir í nýjan háskólaspítala með tilheyr- andi endurskoðun á verklagi. Brýnt er að nýta þau tímamót til að tryggja að menntun lækna verði í stöðugri endurskoðun - í takt við tímann. LÆKNAblaðiö 2008/94 361
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.