Læknablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 53
U M R Æ Ð U
R 0 G FRÉTTI
SJÚKRASKRÁ
Sagan styður ekki við mína vinnu
„Sögukerfið er að mínu viti meingallað. Það er stirt
í vinnslu og býður upp ekki uppá góða yfirsýn og
skipulagningu eftirlits og meðferðar langvinnra
sjúkdóma/' segir Helga Hansdóttir öldrunarlæknir.
„Sagan er hugsuð út frá notkun í bráðatilfell-
um en ekki meðhöndlun langvinnra sjúkdóma.
Það er því erfitt að fylgja slíkum sjúklingum eftir
með sjúkraskránni þar sem yfirsýnin er mjög lítil.
Kerfið fylgir í rauninni ekki þeirri meginbreytingu
sem orðið hefur á læknisfræði á undanförnum
árum þar sem meðferð langvinnra sjúkdóma er
orðin fyrirferðarmest," segir Helga.
Hún nefnir einnig að það valdi erfiðleikum að
aðgangur lækna sé takmarkaður að upplýsingum
og stærsti þröskuldurinn sé aðgangur lækna að
sjúkraskrám annarra heilbrigðisstofnana en að-
gangur sé einnig takmarkaður milli deilda innan
sömu stofnunar.
„Ég hef að vísu nokkuð opinn aðgang innan
kerfis Landspítalans þar sem ég starfa á öldr-
unarsviði en læknaritararnir hafa ekki aðgang og
geta því ekki fundið til gögn fyrir okkur lækna.
Hjúkrunarfræðingar fá ekki aðgang að skýrslum
sálfræðinga og félagsráðgjafa og þetta er sérlega
bagalegt þar sem sívaxandi hluti vinnunnar fer
fram í teymum ýmissa starfsstétta á spítalanum
og allir vinna með sömu sjúklingana. Þetta rýfur
teymisvinnu og heildarsýn um meðferð hvers
sjúklings."
Helga lýsir þunglamalegri vinnslu Sögukerfisins
og hversu erfitt sé að flytja upplýsingar á milli án
þess að þurfa að slá þær inn aftur. „Sannleikurinn
er sá að það fer svo mikill tími í þetta að ég hef
eiginlega gefist upp á þessu og handskrifa sjúkra-
skýrslur mikið til til að spara tíma."
Hvað vill Helga sjáfyrirframan sig þegar hún opnar
sjúkraskrána í tölvunni sinni?
„Ég vil fá upp forsíðu þar sem ég sé sjúkdóms-
greiningalista, lyfjalista, skiptingu milli virkra
og óvirkra vandamála og aðgerða og viðvaranir
hvers konar um ofnæmi, persónulegar upplýsing-
ar um óskir sjúklingsins um meðferð og upplýs-
ingar um aðstæður hans. Þetta vil ég hafa allt fyrir
framan mig þegar ég opna sjúkraskrá viðkomandi
sjúklings. I dag er vanþroskuð yfirsýn og illa
grunduð forsíðu þar sem litlir möguleikar bjóðast
til að búa til langtíma sjúkdómsgreiningalista sem
er hægt að fylgja eftir og bæta við og fella úr eftir
því sem vandamálin leysast eða bætast við."
Helga nefnir bandarískt kerfi sem vakið hefur
talsverða athygli og nefnist Vista. „Þar eru allar
upplýsingar aðgengilegar um hvem sjúkling og
nær á milli stofnana og fylkja þannig að sjúkra-
skráin fylgir sjúklingnum og læknir á hverju stað
getur séð hvað gert hefur verið fyrir viðkomandi
áður og annars staðar. Kerfið er pappírslaust, öll
fyrirmæli, lyfjaupplýsingar og rannsóknarnið-
urstöður eru í kerfinu. Einnig geta heilbrigðisyf-
irvöld séð af þessu kerfi hvernig tiltekinni stofnun
eða tilteknu fylki hefur tekist upp í meðhöndlun
ákveðinna sjúkdóma. Það hefur sýnt sig að með-
ferð ákveðinna langvinna sjúkdóma hefur batnað
eftir að þetta kerfi komst í gagnið. Ég skal ekki
segja hvort Vista-kerfið sé endilega það sem hent-
ar okkur best en það er alveg ljóst að Sögukerfið
hefur marga galla sem ekki virðist séð fyrir end-
ann á. Einn vandinn er að hér á Landspítala eru
mörg kerfi í notkun og Sagan er hugsuð þannig að
hún myndi eins konar „brýr" á milli kerfa sem er
satt að segja flókið og erfitt að eiga við. Mér skilst
einnig að grunntækni Sögunnar sé takmarkandi,
hún er gömul og ekki líklegt tæknilega að hægt sé
að þróa það í samræmi við þarfir nútímans. Við
erum í millibilsástandi sem ég tel mjög hættulegt.
Við erum að nota hvort tveggja, pappírskýrslur og
rafrænar skýrslur, og satt að segja hjálpar Sagan
mér ekki við það sem rafrænt kerfi ætti að gera,
þ.e. skipulag og yfirsýn yfir flóknar upplýsingar,
þannig að það létti daglega vinnu og auki ör-
yggí-"
Helga Hansdóttir yfirlæknir
öldrunarsviðs Landspítala.
LÆKNAblaðið 2008/94 405