Læknablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 26
FRÆÐIGREINAR
NÝRNAFRUMUKRABBAMEIN
Tafla I. Yfirlit yfír sjúklinga sem gengust undir brottnám lungnameinvarpa frá nýrnafrumukrabbameini á íslandi 1984-2006.
Nr./ (Grein.ár) * Aldur/Kyn Tími (mán.) frá greiningu frumæxlis** Fjöldi meinvarpa Hæ./vi lunga TNM stigun við greiningu krabbameins í nýrum. Aðgerð Lífshorfur (mán.) Á lífi (mars 2007)
1 (1984) 78/kk 63 i Hæ. T3bN2M0 Brottnám lungnalappa 19 t
2(1984 51/kk 14 1 Hæ. T3aN0M0 Brottnám lungnalappa 17 t
3 (1985) 62/kvk i 1 Hæ. T3bN2Ml Fleygskurður 60 t
4 (1985) 63/kvk ii i Vi. T3bN2M0 Fleygskurður 24 t
5 (1989) 45/kk 46 i Hæ. T2N0M0 Brottnám lungnalappa 94 t
6 (1992) 56/kk 6 3 Hæ.+ vi. T3aN0M0 Fleygskurður 10 t
7 (1993) 50/kvk 6 2 Vi. T1N0M0 Brottnám lungnalappa 38 t
8(1995) 61/kvk 49 2 Hæ.+vi. T3aN0M0 Brottnám lungnalappa + fleygskurður 50 t
9(1995) 57/kk 12 2 Hæ. T3aN2M0 Brottnám lungnalappa 141 Já
10 (1998) 62/kk 34 4 Hæ. T2N0M0 Brottnám lungnalappa 27 t
11(1999) 77/kk 132 i Hæ. T3bN2M0 Brottnám lungnalappa 97 Já
12 (2002) 63/kk 120 i Vi. T2N2M0 Lungnabrottnám 47 t
13 (2005) 51/kk 11 i Hæ. T3aN2M0 Lungnabrottnám 19 Já
14 (2006) 56/kk 48 2 Hæ. T2N0M0 Lungnabrottnám 11 Já
* Greiningarár lungnameinvarps
** Tímalengd frá greiningu frumæxlis aö greiningu lungnameinvarps
t Látinn
í aðgerð (fimm ára sjúkdóma-sértækar lífshorfur
9,8%). Aðgerðirnar eru öruggar og fylgikvillar
oftast minniháttar. Hafa verður þó í huga að hér
um valinn efnivið að ræða og vel skilgreindur
samanburðarhópur ekki til staðar. Ljóst er þessar
aðgerðir eru tiltölulega fátíðar hér á landi en í því
sambandi er rétt að benda á að rannsóknin nær
rúma tvo áratugi aftur í tímann og vitneskja um
gagnsemi þessara aðgerða er tiltölulega ný af nál-
inni.
Inngangur
Nýgengi nýrnafrumukrabbameins á Islandi er
með því hæsta sem gerist í heiminum. Um 30 ný
tilfelli greinast á ári hverju og tæplega helmingur
þessara sjúklinga deyr úr sjúkdómnum (1).
Greining nýmafrumukrabbameins er oft erfið því
einkenni geta leynt á sér. Þetta á sinn þátt í því að
næstum þriðji hver sjúklingur er með útbreiddan
sjúkdóm við greiningu (2). Algengustu einkenni
nýmafmmukrabbameins em verkir í síðu/kvið
og bersæ blóðmiga en ósértækari einkenni eins og
þyngdartap og blóðleysi em einnig algeng (3, 4).
Algengast er að nýrnafmmukrabbamein mein-
verpist til lungna og hafa íslenskar rannsókn-
ir leitt í ljós að tæplega 20% sjúklinga hafa
lungnameinvörp við greiningu (5, 6). Lungna-
meinvörp geta einnig greinst síðar, oft samtímis
greiningu meinvarpa í öðrum líffærum, til dæmis
í lifur eða beinum. Horfur sjúklinga með hvers
konar meinvörp nýmafrumukrabbameins eru al-
mennt lélegar, til dæmis voru aðeins 11% sjúklinga
á lífi fimm árum frá greiningu í nýlegri íslenskri
rannsókn (6).
Á síðasta áratug hafa birst rannsóknir þar sem
sýnt hef ur verið fram á umtalsvert bættar lífshorfur
sjúklinga sem gengist hafa undir brottnám á
lungnameinvörpum nýrnafrumukrabbameins. I
flestum þessara rannsókna eru fimm ára lífshorfur
(sjúkdóma-sértækar) í kringum 30% (7-12) en allt
að 49% í nýlegri þýskri rartnsókn (14). Ekki liggur
fyrir hversu algengar þessar aðgerðir eru hér á
landi né heldur hver árangur þeirra er.
Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna
umfang þessara aðgerða hér á landi á rúmlega
tveggja áratuga tímabili og kanna afdrif sjúkling-
anna.
Efniviður og aðferðir
Þessi rannsókn er hluti af stærri rannsókn á nýrna-
frumukrabbameini á Islandi og byggist á gagna-
grunni yfir alla sjúklinga sem greinst hafa með
sjúkdóminn hér á landi frá 1971 til 2006. Ur grunn-
inum fengust upplýsingar um alla þá sjúklinga
sem greindust á lífi með nýmafrumukrabbamein
á íslandi, hversu margir þeirra vom greindir
með meinvörp í lungum og lífshorfur þeirra. I
þessari rannsókn sem er afturskyggn var fyrst og
fremst litið á þá sjúklinga sem greinst höfðu með
meinvörp í lungum frá nýmafrumukrabbamein
á tímablinu frá 1. janúar 1984 til 31. desemb-
er 2006 og sem jafnframt höfðu gengist undir
378 LÆKNAblaðið 2008/94