Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 47
var í rauninni algerlega undir hælirtn lagt hvort nemarnir lærðu góð eða slæm samskipti af þeim fyrirmyndum," segir Bryndís. Samstarf víða um heim Bryndís segir að þarna kvikni umræðan fyrir alvöru um mikilvægi þess að leggja áherslu á læknislistina í sinni víðtækustu merkingu. „Menn fóru að skilja þarna á milli og talað var um lækna- vísindin sem hluta af læknislistinni en ekki á hinn veginn. Þegar þessi umræða er komin af stað er því velt fyrir sér hvernig eigi að kenna þennan þátt og það var mjög gaman að fá tækifæri til að taka þátt í því mótunarstarfi hér við læknadeild HI. Við vorum alls ekki ein á báti því kennarar við læknaskóla á Norðurlöndum stóðu í sömu sporum en árið 1997 hittust kennarar við norræna læknaskóla í fyrsta sinn og stofnuð voru sam- tökin Nordic Network for Education in Medical Communication. Þessi samtök voru mjög virk fyrstu árin og haldnir samráðsfundir reglulega, en eftir því sem kennslan hefur mótast og fest í sessi hefur þörfin minnkað, fundum fækkað og nú hittumst við annað hvert ár og skiptumst á upp- lýsingum." Bryndís var formaður samtakanna árið 2003 og segir að nú séu orðin til Evrópusamtök kennara á þessu sviði og miklar upplýsingar og gagnkvæm samskipti séu nú á milli læknaskóla bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Bryndís fór í rannsóknaleyfi árið 1999 og kynnti sér kennslu í samskiptafræði við læknaskóla í Portland í Bandaríkjunum og kennslan við læknadeild HÍ hefur tekið mið af bæði norrænni fyrirmynd og bandarískri. Hún lýsir því þannig að í upphafi hafi kennslan verið fólgin í örfáum kennslustundum á 2. ári læknis- fræðinnar og þá eingöngu verið í fyrirlestraformi. Færnimiðuð þjálfun „Nú er kennsla í samskiptum læknis og sjúklings orðið með stærri námskeiðum á fyrsta og öðru námsári. Ahersla er lögð á færnimiðaða þjálfun í litlum hópum. Námið byggist á umræðuhópum og verkefnavinnu nemenda þar sem viðhorf til lækn- isstarfsins og samskipti við sjúklinga eru rædd, t.d. fagmennska, hvað þarf til að verða góður læknir og leiðir til að ná árangri með læknisvið- talinu svo eitthvað sé nefnt. Siðfræði og sálfræði UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR FRAMHALDSNÁM LÆKNA er fléttað inn í umræðumar. Ræddar eru leiðir til að ná þessum markmiðum og samskiptatækni sem hefur sýnt sig að vera gagnleg í þeim tilgangi þjálfuð. Til að byrja með æfa nemendur sig hvert á öðru í stórum hópi. Seinna eru hóparnir minnk- aðir, samtöl þeirra tekin upp á myndbönd. Þannig vinna tveir til þrír nemendur með einum kennara. Hver nemandi fær síðan persónulega handleiðslu reynds læknis á heilsugæslustöðvum sem hann fer reglulega til. Þar eru þjálfuð samskipti við raunvemlega sjúklinga með hjálp myndbanda. Auk færniþjálfunar í viðtölum er þjálfuð líkams- skoðun. Þetta er þjálfað í færnibúðum fyrst, þar sem þeir vinna saman fjögur í hóp með einum kennara en seinna fá þeir persónulega handleiðslu reynds læknis á heilsugæslustöð. Kunnátta nem- enda í viðtalstækni og líkamsskoðun er prófuð með stöðvaprófum í lok 2. árs þar sem aðaláhersl- an er lögð á færnikunnáttu. Siðfræði og sálfræði er prófuð munnlega. Ný kennsluskrá tók gildi 2002 svo í vor eru fyrstu nemendurnir að útskrifast sem lært hafa samkvæmt henni frá upphafi. Það verður að segjast að kennslustjórn læknadeildar undir for- ystu Kristjáns Erlendssonar hefur sýnt mikla fram- sýni og þor með því að gera róttækar breytingar á kennsluskránni, m.a. að auka svo hlut þessarar greinar irrnan námsins því reynslan frá löndunum í kringum okkur hefur sýnt að erfiðlega gengur að breyta kennsluskrám í gömlum rótgrónum lækna- skólum í takt við nýjar hugmyndir um innihald og kennsluaðferðir." Bryndís segir að þrátt fyrir að námið í klínískri færni og samskiptum læknis og sjúklings hafi fengið aukið vægi þá sé enn óunnið talsvert starf við að finna því réttan farveg innan læknanáms- ins. Það sé í rauninni óheppilegt að setja þetta allt á fyrsta og annað ár námsins þar sem þarfir nemenda breytist og ýmislegt sem kennt er á seinni árum læknanámsins kalli á nýja þætti þjálf- unar og kumráttu í klínískri færni og samskiptum. Samskipti þurfi að þjálfa samhliða kennslu í klín- ískum fögum gegnum allt læknanámið. Það þurfi að byggja ofan á grunnkunnáttuna sem nemendur öðlast á fyrstu árunum, þjálfa sérhæfð samskipti og gera auknar kröfur eftir því sem líður á námið. Það sé markmið þessarar fræðigreinar að fá sam- vinnu við allar klínískar fræðigreinar við að þjálfa samskipti læknis og sjúklings. LÆKNAblaðið 2008/94 399
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.