Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2008, Page 11

Læknablaðið - 15.05.2008, Page 11
Smásæ ristilbólga - yfirlit ÓlafurÁ. Sveinsson12 læknir Kjartan B. Örvar2 sérfræðingur í meltingarsjúkdómum Sigurbjörn Birgisson1 sérfræðingur í meltingarsjúkdómum Jón Gunnlaugur Jónasson34 meinafræðingur Lykilorð: smásæ ristilbólga, bandvefsristilbólga, eitilfrumu- ristilbólga, niðurgangur, kviðverkir, lyfjameðferð. Ágrip Hugtakið smásæ ristilbólga er samnefnari fyrir tvo sjúkdóma; bandvefsristilbólgu og eitilfrumu- ristilbólgu. Við ristilspeglun er slímhúðin eðlileg en greining fæst með sýnatöku á ristilslímhúð. Meinafræðilega einkennist bandvefsristilbólga einkum af þykknuðu kollagenlagi undir yfirborðs- þekju slímhúðar ristilsins en eitilfrumuristilbólga af eitilfrumuíferð í yfirborðsþekju, kirtilþekju og eiginþynnu slímhúðar án aukningar á kollageni í ristilslímhúðinni. Þó að sjúkdómarnir tveir hafi nokkuð aðgreinanlegt meinafræðilegt mynstur er megineinkenni þeirra beggja langvinnur vatns- kenndur niðurgangur án blóðs. Smásæ ristilbólga er talin orsaka um 4-13% langvinns niðurgangs en algengi hennar er mun hærra meðal eldra fólks. Nýgengi bandvefsristilbólgu og eitilfrumuristil- bólgu hefur farið mjög hækkandi á síðustu árum. Steralyf eru áhrifaríkustu lyfin við smásærri rist- ilbólgu og búdesóníð er mest rannsakaða og best staðfesta meðferðin. Tilgangur þessarar yfirlits- greinar er að kynna tvo tiltölulega nýja sjúkdóma sem eru ein algengasta ástæða langvinns nið- urgangs, sérstaklega meðal eldra fólks. Inngangur Smásæ ristilbólga (microscopic colitis, MC) er ástæða langvinns niðurgangs í um 4-13% til- fella (1). Algengið er mun hærra meðal eldra fólks (>60 ára) (1). Smásæ ristilbólga er sam- nefnari fyrir tvo sjúkdóma; bandvefsristilbólgu (collagenous colitis, CC) og eitilfrumuristilbólgu (lymphocytic colitis, LC). Þótt sjúkdómarnir hafi nokkuð aðgreinanleg meinafræðileg mynstur er megineinkenni beggja langvinnur vatnskenndur niðurgangur án blóðs. Sjúkdómarnir koma að- allega fram hjá eldra fólki, einkum konum (2). Við ristilspeglun er slímhúðin yfirleitt eðlileg og grein- ing fæst eingöngu með sýnatöku úr ristilslímhúð. Við smásjárskoðun sést ristilbólga með ákveðnum meinafræðiskilmerkjum. Meinafræðilega einkenn- ist bandvefsristilbólga af þykknuðu kollagenlagi undir yfirborðsþekju slímhúðar ristilsins (3, 9) en eitilfrumuristilbólga af eitilfrumuíferð í yfir- borðsþekju, kirtilþekju og eiginþynnu slímhúðar án aukningar á kollageni í ristilslímhúðinni (5, 10). Þv£ hefur verið haldið fram að sameiginleg orsök sé fyrir sjúkdómunum tveimur og vegna mjög áþekkrar klínískrar myndar hefur hugtakið „watery diarrhea-colitis syndrome" verið sett fram (7-8). En þrátt fyrir sömu einkenni er margt sem bendir til þess að þetta séu tveir sjúkdómar eins og rætt verður hér að neðan. Bandvefsristilbólgu var fyrst lýst árið 1976 en eitilfrumuristilbólgu árið 1989 (9-10). Síðan þá hefur fjöldi rannsókna birst um sjúkdóm- ana tvo sem styrkt hefur fræðilega tilurð þeirra. Smásæ ristilbólga hefur verið nokkuð rannsökuð í Bandaríkjunum og Evrópu og meðal annars á Islandi en ekki hefur verið skrifað um smásæja ristilbólgu á íslensku svo höfundar viti til. Tilgangurinn með þessari yfirlitsgrein er að kynna ’Meltingarsjúkdómadeild Landspítala, 2meltingasjúkdómadeild St. Jósefsspítala, 3rannsóknastofu í meinafræði, Landspítala, 4læknadeild Háskóla íslands. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Jón Gunnlaugur Jónasson, rannsóknastofu í meinafræði, Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. Sími: 543-8354. jongj@landspitali. is ^■iENGLISH SUMMARYHH Sveinsson ÓÁ, Örvar KB, Birgisson S, Jónasson JG Microscopic colitis - review Microscopic colitis (MC) is an encompassing term for two diseases; collagenous colitis and lymphocytic colitis. The colon appears normal by colonoscopy and a diagnosis is only obtained with a biopsy. The histopathology of collagenous colitis is mainly characterized by a thickening of the subepithelial basement membrane of the colonic mucosa with a band of collagen. Lymphocytic colitis is mainly characterized by an intraepithelial lymphocytosis without the collagen thickening. Even though the two diseases have a distinctive pathology their clinical symptoms are characterized by chronic watery diarrhea without bleeding. Microscopic colitis is thought to cause about 4-13% of all chronic diarrhea but their relative frequency is much higher among older people. The mean annual incidence for collagenous and lymphocytic colitis has been increasing. Steroids are the most effective treatment for microscopic colitis and budesonide is the most studied and effective therapy for MC. The aim of this paper is to give a review of two relatively new diseases which are among the most common cause of chronic diarrhea, especially among older people. Keywords; microscopic colitis, collagenous colitis, lymphocytic colitis, diarrhea, abdominal pain, drug treatment. Correspondence: Jón Gunnlaugur Jónasson, jongj@landspitali.is LÆKNAblaðið 2007/93 363

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.