Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2008, Page 25

Læknablaðið - 15.05.2008, Page 25
N Ý FRÆÐIGREINAR RNAFRUMUKRABBAMEIN Skurðaðgerðir vegna lungna- meinvarpa frá nýrnafrumu- krabbameini á Islandi Sæmundur J. Oddsson12 læknanemi á 6. ári HelgiJ. ísaksson3 meinafræðingur Eiríkur Jónsson4 þvagfæraskurðlæknir Guðmundur V. Einarsson4 þvagfæraskurðlæknir Tómas Guðbjartsson21 brjóstholsskurðlæknir Lykilorð: nýrnafrumukrabbamein, lungnameinvörp, lífshorfur, brott- nám meinvarpa, lungnaaðgerðir, lungnabrottnám, fylgikvillar. ’Læknadeild HÍ, 2hjarta- og lungnaskurðdeild, 3rannsóknarstofu í meinafræði, 4þvagfæraskurðdeild Landspítala. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, læknadeild HÍ tomasgud@landspitali. is Ágrip Inngangur: Við greiningu nýrnafrumukrabba- meins eru tæplega 20% sjúklinga með lungna- meinvörp. Lífshorfur þessara sjúklinga eru slæm- ar og aðeins tíundi hver sjúklingur með meinvörp er á lífi fimm árum eftir greiningu. Nýlegar erlend- ar rartnsóknir hafa sýnt fram á umtalsvert betri lífshorfur hjá völdum hópi sjúklinga sem hefur gengist undir brottnám á lungnameinvarpi nýrna- frumukrabbameins (30-49% sjúkdómsfríar fimm ára lífshorfur). Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna umfang þessara aðgerða hér á landi og afdrif sjúklinga. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er aftur- skyggn og náði til allra sjúklinga sem gengust undir brottnám á lungnameinvörpum nýrna- frumukrabbameins á tímabilinu 1984-2006. Vefja- fræði æxla var yfirfarin af meinafræðingi og æxlin flokkuð samkvæmt TNM-stigunarkerfi. Farið var yfir aðgerðarlýsingar, skráðir fylgikvillar og reikn- aðar hráar lífshorfur. Niðurstöður: Alls gengust 14 sjúklingar undir lungnaaðgerð vegna meinvarpa frá nýrnafrumu- krabbameini á 23 ára tímabili og var meðalaldur við greiningu 59 ár (bil 45-78 ár). Allir sjúkling- arnir höfðu áður gengist undir nýmabrottnám að meðaltali 39 mánuðum áður (bil 1-132 mánuðir). Flestir þessara sjúklinga (n=ll) voru með stakt meinvarp og var meðalstærð þeirra 27 mm (bil 8-50 mm). Helmingur sjúklinganna gekkst undir brottnám á lungnalappa (lobectomy) (n=7), þrír fóm í fleygskurð og aðrir þrír í lungnabrottnám. Fylgikvillar eftir aðgerð reyndust fátíðir og minni- háttar (gáttaflökt, vökvi í fleiðru). Allir sjúkling- arnir lifðu af aðgerðina. Nú eru fjórir sjúklinganna á lífi (meðaleftirfylgni 82 mánuðir), en tveggja og fimm ára lífshorfur voru 64% og 29%. Ályktun: Þriðjungur sjúklinga í þessari rann- sókn var á lífi fimm árum eftir greiningu lungnameinvarpa sem verður að teljast góður ár- angur borið saman við lifun þeirra sem fóru ekki ■■■■■■■■■■■■■I E N G LI S H Oddsson SJ, ísaksson HJ, Jónsson E, Einarsson GV, Guðbjartsson T Pulmonary resections for metastatic renal cell carcinoma in lceland Objective: At the time of diagnosis, approximately 20% of renal cell carcinoma (RCC) patients have pulmonary metastasis. These patients have poor survival with less than 10% of the patients being aiive 5 years after diagnosis. However, recent studies have reported 30-49% 5-year survival in selected patients that underwent pulmonary resection for RCC metastases. The aim of this study was to analyse the outcome of this patient group in lceland over a 23 year period. Materials and Methods: This is a retrospective population- based study including all patients in lceland that underwent pulmonary resection for RCC metastasis between 1984 and 2006. Complications were tabulated and the histology of all tumors reviewed by a pathologist. The renal tumors were classified and staged according to the TNM staging system (WHO). Crude survival was calculated using 1st of March 2007 as an endpoint, with mean follow up of 82 months. Results: A total of 14 patients were identified, 10 males and 4 females with an average age of 59 years (range 45-78). One patient had pulmonary metastases at the diagnosis of RCC. In the other patients, metastasectomy was performed on average 39 months afterthe nephrectomy (range 1-132 months). Most of these patients (n=11) had a single metastasis, with an average size of 27 mm (range 8-50). Lobectomy was the most common procedure (n=7), wedge resection and pulmectomy were performed in three cases each, and one patient underwent both lobectomy and wedge resection. There were no major surgical complications. and all patients survived surgery. Today, four of the 14 patients (29%) are alive with 2- and 5-year survival of 64% and 29%, respectively. Conclusion: In this retrospective study, every third patient survived five years after pulmonary resection of RCC metastases. This is a favorable survival-rate when compared to patients with metastases not operated on (9.8% survival). These operations seem to be safe and complications are most often minor. It should be kept in mind, however, that a selected cohort was studied and a well defined control group was absent. Keywords: renal cell carcinoma, pulmonary metastasis, survival, metastasectomy, pulmonary resection, complications. Correspondence: Tómas Guðbjartsson, tomasgud@iandspitaii.is LÆKNAblaðið 2008/94 377

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.