Læknablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 43
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
FRAMHALDSNÁM LÆKNA
nú eftir sérstökum samningi sem gerður var upp-
haflega fyrir sex árum og var endurnýjaður í apríl
2006. Það má segja að allar greinar heilbrigðisvís-
inda tengist Landspítala að meira eða minna leyti
þótt vissulega sé sérstaða læknadeildar ótvíræð.
Breytingar á fræðasviðum innan Háskólans hafa
einnig áhrif og kalla á aukið samstarf og nýja
háskólasjúkrahúsið er einmitt hannað með það í
huga."
Háskólasjúkrahús með bestu tækni
Kristján leggur áherslu á að þegar talað er um
Landspítala sé hann skilgreindur sem háskóla-
sjúkrahús en ekki sem hátæknisjúkrahús eins
og oft hefur verið. „Háskólasjúkrahús verður
auðvitað að hafa þann besta tæknibúnað sem völ
er á hverju sinni og geta sinnt kennslu og lækn-
ingum með þeim hætti en það verður einnig að
geta sinnt sjúklingum sem koma inn af götunni
með snúinn ökkla. Það hefur verið sagt að lækn-
isfræðin hafi þróast á 20. öldinni úr því að vera
lágtæknivædd með mikla snertingu yfir í að vera
hátæknivædd með litla snertingu. Nú viljum við
vera hátæknivædd með mikla snertingu þannig að
við fáum það besta úr hvorutveggja, búnaðinum
og lækninum."
Það fer ekki á milli mála að nýtt sjúkrahús
er Kristjáni ofarlega í huga og hann bindur
miklar vonir við framkvæmdina. „Þetta er stóra
tækifærið okkar í framtíðinni þar sem gefst stór-
kostlegur möguleiki á að tengja saman kennslu
og rannsóknir á öllum sviðum og mun flytja
menntun heilbrigðisstétta á nýtt stig í landinu.
Teikningin sem við höfum af nýja sjúkrahúsinu
gefur fyrirheit um heildstætt háskólasjúkrahús og
þegar við sýnum þetta erlendis er ekki laust við
að menn renni öfundaraugum til okkar. Það hefur
verið unnin alveg gríðarleg undirbúningsvinna
að þessu verkefni og fjöldi sérfræðinga á öllum
sviðum lækninganna hafa komið með tillögur og
athugasemdir. Nú er komið að því að arkitekt-
arnir fari að teikna en hingað til hefur þetta verið
í skissuformi svo hægt væri að taka tillit til allra
þarfa hinna ólíku deilda og kennsluþátta. Þetta er
ævintýralegt tækifæri sem bíður okkar."
Læknadagar 2009
Undirbúningur er hafinn fyrir Læknadaga sem haldnir verða 19.-23. janúar 2009. Fyrirhugað
er að ganga frá stærstum hluta dagskrár í byrjun sumars og eru þeir aðilar sem vilja
leggja til efni vinsamlegast beðnir að senda hugmyndir að fyrirlestrum, málþingum,
„vinnubúðum" eða öðrum dagskráratriðum fyrir 23. maí nk. til Margrétar Aðalsteinsdóttur
hjá Fræðslustofnun lækna, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi eða á tölvupósti magga@lis.is
Nauðsynlegt er að fram komi hvort óskað er eftir þátttöku Fræðslustofnunar við að greiða
kostnað fyrir erlendan fyrirlesara.
Undirbúningsnefnd
Endurlífgun II (ALS)
17.-18. janúar 2009
í tengslum viö Læknadaga mun Endurlífgunarráð landlæknis standa fyrir námskeiði í sérhæfðri endurlífgun II. Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem
geta þurft að stjórna endurlífgun á vettvangi.
Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp og að þeir séu færir um að veita sérhæfða endurlífgun og
stjórna aðgerðum á vettvangi. Markmiðið er jafnframt að undirbúa reynda meðlimi endurlífgunarteyma að meðhöndla sjúklinginn þar til flutningur
á sérhæfða deild er möguleg.
Námskeiðið tekur tvo daga (20 klst) og felur í sér fyrirlestra, sýnikennslu, verklegar stöðvar og umræðutíma. Kennslubók verður send til
þátttakenda fjórum vikum fyrir námskeiðið ásamt forprófi og mikilvægt er að þátttakandi lesi kennslubókina vel og skili forprófinu í upphafi
námskeiðs. Gert er ráð fyrir að nemandi búi yfir fullnægjandi þekkingu/hæfni í grunnendurlífgun. Námskeiðinu lýkur með prófi.
Skráningu þarf að vera lokið fyrir 1. desember 2008. Til að skrá sig skal senda tölvupóst á Hildigunni Svavarsdóttur, skólastjóra
Sjúkraflutningaskólans - hildig@fsa.is
Kostnaður - 60.000 krónur og innifalið er kennslubókin, evrópskt skírteini og hádegisverður.
LÆKNAblaðið 2008/94 395