Læknablaðið - 15.05.2008, Síða 55
UMRÆÐUR O G FRÉTTI
SJÚKRASKRÁ
Erum orðin tíu árum á eftir
Óskar Einarsson lungnalæknir segir að leita megi
gagnlegra fyrirmynda meðal annars til Danmerkur
og Bandaríkjanna þar sem góð reynsla hefur kom-
ist á notkun rafrænna sjúkraskrá.
Hann segir að það sé fróðlegt að skoða hvem-
ig núverandi ástand hafi skapast og hvemig
Sögukerfið hafi orðið ofan á, „ . . . fyrir tilstuðlan
heilbrigðisráðuneytisins. Það kerfi er upphaflega
hugsað fyrir heilsugæsluna og hefur eflaust sína
kosti fyrir þann vettvang en sem sjúkraskrárkerfi
fyrir spítala eru vemlegir annmarkar á því. Það er
augljós galli að ekki skuli vera rafrænn aðgangur
á milli heilsugæslunnar og sjúkrahúsanna í þessu
kerfi þegar sjúklingur kemur kannski bráðveikur
inn á bráðamóttöku og engin leið að fá upplýs-
ingar hjá honum sjálfum og enn síður hægt að
nálgast þær í miðlægri sjúkraskrá. Menn deila
síðan um hversu miklar upplýsingar eigi að vera í
slíkum grunni og hvernig aðgangi skuli háttað en
af sjónarhóli sjúklingsins tel ég einsýnt hver kostur
er að því að læknar hafi greiðan aðgang að upp-
lýsingum um lyfjameðferð, greiningar, aðgerðir og
nýjustu rannsóknir, hvar svo sem þær hafa verið
framkvæmdar. í raun og vem er ekki fyrirsjáanlegt
að þetta breytist í náinni framtíð."
Óskar segir að vegna þess hversu hægt hafi
gengið að þróa rafræna sjúkraskrá sé ísland orðið
tíu árum á eftir þeim löndum sem það vill helst
bera sig saman við í þessum efnum. „Fyrir tíu
árum var Vista-kerfið í Bandaríkjunum í þróun
og við vomm á þeim tíma í mjög áþekkum spor-
um. Það kerfi hefur þróast mjög hratt og er orðið
gríðarlega öflugt og gott tæki fyrir lækna og heil-
brigðisyfirvöld í þeim ríkjum Bandaríkjanna sem
hafa samstarf um það. Á sama tíma hefur nánast
ekkert gerst hér hjá okkur. Versti þrándur í götu
þróunar sjúkraskrárkerfis var þó þegar umræða
um miðlægan gagnagmnn fór af stað. Þá sat ég í
stýrinefnd á vegum Landspítala í viðræðum við
Islenska erfðagreiningu og það var lögð gríðarlega
mikil vinna í að skilgreina gagnagrunninn, hvem-
ig sjúkraskráin ætti að líta út, hverjir ættu að hafa
aðgang og menn bundu miklar vonir við að úr
þessu kæmi heildstætt sjúkraskrárkerfi sem bæði
sjúkrahúsin og heilsugæslan gættu nýtt sér. Þessi
vinna stóð á annað ár en þegar upp var staðið var
fallið frá þeim hugmyndum. í kjölfarið varð óneit-
anlega bakslag og menn fóm að líta í kringum sig
og skoða hvað væri í gangi í nágrannalöndunum.
Þar voru engin afgerandi kerfi í notkun eða þróun
og hér varð ofan á að taka upp Sögukerfið með
þrýstingi frá heilbrigðisráðuneytinu. Reynslan af
því hefur verið slæm og það stenst engan veg-
inn samanburð við þau kerfi sem nú eru í gangi í
kringum okkur. Hér hefur verið lögð mikil vinna
í að samþætta þau kerfi sem í notkun em og það
er reyndar í samræmi við hugmyndirnar sem eru
að baki Vista-kerfinu. Það er í rauninni ekki kerfi
heldur eitt viðmót sem tengir saman fjölmörg
kerfi sem liggja á bakvið. Sögukerfið virðist hins
vegar ekki ráða við þessar tengingar nema að mjög
takmörkuðu leyti."
Óskar segir að það skipti í rauninni engu máli
hvað kerfið heitir og hver annast það heldur
einfaldlega að viðmótið og notkunarmöguleikar
séu í samræmi við þarfir notendanna. „Það má þó
ekki kenna kerfinu eingöngu um því hér er verið
að leggja mun minni fjármuni í þetta verkefni en
gert hefur verið í nágrannalöndunum og það hefur
auðvitað afgerandi áhrif á þróunina. Þessi mál
hafa setið á hakanum síðasta áratug og við dregist
verulega aftur úr."
Óskar hefur undanfarin ár verið formaður
nefndar um innleiðingu rafrænna lyfjafyrirmæla
á Landspítala. „Þessi mál hafa verið í þróun í
alllangan tíma og hófst með samvinnu við TM
Software um þróun hugbúnaðar. Kerfið var fyrst
tekið í notkun á lungnadeild Landspítala og stjórn-
in ákvað síðan að taka þetta upp á öllum spítalan-
um í áföngum. Þetta er í rauninni eitt skref í þá
átt að rafvæða að fullu lyfjaumsýslu spítalans og
kostirnir eru ótvíræðir. Annars vegar eykst öryggi
við lyfjagjafir til muna og hins vegar sparast að
miklu leyti sá tími sem hjúkrunarfræðingar eyða í
að taka til lyf þar sem lyfjatiltekt mun færast yfir í
sjálfvirkt form. Starf hjúkrunarfræðingsins felst þá
í því að gefa lyfin og sannreyna að sjúklingurinn
fá réttu lyfin með því að bera saman strikamerki
á lyfjunum og sjúklingnum. Rafræn lyfjafyrirmæli
eru auðvitað hluti af rafrænni sjúkraskrá enda
hluti af þeim nauðsynlegu upplýsingum sem allir
læknar sem koma að meðferð sjúklingsins þurfa að
hafa aðgang að."
Óskar Einarsson lungna-
læknir Landspítala.
LÆKNAblaðið 2008/94 407