Læknablaðið - 15.02.2010, Síða 3
Frá vinstri Hrafnhildur Stefánsdóttir, Berglind María Jóhannsdóttir, Ásta Dögg Jónasdóttir og Haukur Heiðar Hauksson.
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL10URNAL
iwiw. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Vel heppnaðir Læknadagar
Læknadagar 2010 tókust vel og var metþátttaka að sögn skipuleggjenda. Voru flestir á einu máli
um að fjölbreytni einkenndi dagskrána og í samtölum Læknablaðsins við gesti kom skýrt fram að
mikilvægi Læknadaga hefur sjaldan verið meira á tímum niðurskurðar og aðhalds. Unglæknar
notuðu óspart tækifærið til fræðslu og skemmtunar og var þessi mynd tekin af fríðum hópi
deildarlækna.
Læknadögum lauk með vel heppnaðri árshátíð Læknafélags Reykjavíkur sem unglæknar stýrðu.
Þeir sendu yfirstjórn Landspítalans og eldri félögum óspart tóninn í skemmtiefni sínu.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
TÍRA: Horfðu í Ijósið heillin mín en ekki í skuggann
þarna. Þessi forvitnilega romsa er heiti Ijósmyndaseríu
sem telur 22 myndir alls og hefur hver þeirra sitt nafn.
Sú sem er á forsíðu Laeknablaðsins kallast Hvirfilbylur
og er verkið rétt eins og öll hin 80 x 80 cm að stærð
og frá árinu 2009. Höfundur er Bjargey Ólafsdóttir (f.
1972) sem hefur undanfarin
ár sýnt jöfnum höndum
kvikmyndaverk, Ijósmyndir
og teikningar. Heiti seríunnar
og undirtitlar verkanna gefa
til kynna að Bjargey sé að
vísa í gamlar þulur, þjóðsögur
eða ævintýri. Manni kemur
allavega til hugar einhvers
konar frásögn. Myndirnar
sjálfar styðja þessa hugmynd
aðeins að takmörkuðu leyti,
því þar er ekki að finna
rökrétta framvindu eða
dæmigerðar sögupersónur.
í aðalhlutverkum eru litaðar
slæður, teikningar, hús og
ýmsir hlutir sem vísa í einhvers
konar tilfinningu eða ástand
án þess að hægt sé að njörfa niður hvað sé á seyði. Þá
beitir listakonan ýmsum aðferðum í Ijósmyndatækni til að
brjóta upp myndirnar með leik að uppbyggingu, speglun,
birtu og fókus. Fyrir vikið verða verkin óræð og stundum
algjörlega abstrakt en öll hafa mjög sérstaka sjónræna
útgeislun, þau eru litrík og full af leikgleði. Hvirfilbylurinn
sýnir mislitar efnisdulur á þeytingi, Ijósgjafa og skugga
sem stafa af óþekktum uppruna og það er erfitt að greina
á milli þess hvort fyrirmyndin eða myndavélin ræður
ferðinni. Forgrunni og bakgrunnur blandast í eitt og
ómögulegt að átta sig á því hvað snýr upp og hvað niður.
Bjargey segir svo frá að hún hafi tekið sér tímabundið
hlé frá hversdeginum og
einangrað sig úti í sveit eitt
sumarið. Þar leitaði hún inn
á við, skráði draumfarir sínar,
hugleiddi andleg mál, hið
yfirnáttúrulega og eðli fegurðar.
Samtímis ástundaði hún
Ijósmyndun og aðra listsköpun
og Ijósmyndaserían TÍRA
varð að veruleika. Bjargey
lærði Ijósmyndun í Helsinki og
kvikmyndagerð í Amsterdam.
Hún hefur sýnt mjög víða
um lönd og verið kennd við
nokkur alþjóleg verðlaun. Á
síðasta ári sýndi hún TÍRU í
Ijósmyndasafni Reykjavíkur en
hún var einnig með sýningu
á teikningum í Listasafni ASÍ
sem kallaðist Stungið af til Suður-Ameríku. Bjargey
er búsett í Reykjavík en dvelur reglulega langdvölum í
listamannabústöðum úti á landi og um allan heim þar
sem hún vinnur að verkum sínum.
Markús Þór Andrésson
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi
Umhverfisvottuð prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að
birta og geyma efni blaðsins á
rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með
neinum hætti, hvorki að hluta né I
heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Ubrary of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2010/96 75