Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 22
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Tafla I. Tilvísunarástæður fyrir fósturhjartaómskoðun.
Áhættuþættir fjölskyldu
- Áöur eignast barn með meöfæddan hjartagalla
- Faðir með meðfæddan hjartagalla
- Erfðasjúkdómar (til dæmis Marfans, Noonans)
Áhættuþættir móður
- Móðir með meðfæddan hjartagalla
- Efnaskiptasjúkdómur (til dæmis sykursýki, fenylketónmiga)
- Inntaka fósturskemmandi efna (til dæmis litíum, retinoíðar, flogaveikilyf, áfengi)
- Sýking á meðgöngu (til dæmis rauðir hundar, parvo B19, CMV, toxoplasmosis)
- Sjálfsónæmissjúkdómar (til dæmis rauðir úlfar, Sjögren sjúkdómur)
Áhættuþættir fósturs
- Óeðlileg fjögurra hólfa sýn
- Önnur missmíði en á hjarta
- Litningagalli
- Hjartsláttartruflun
- Fósturbjúgur
- Aukin hnakkaþykkt
- Fjölburar og TTTS
CMV=cytomegalovirus; TTTS=twin-to-twin transfusion syndrome
Ábendingar
□ fjölskyldusaga 53,3%
aukin hnakkaþykkt
" 13,4%
hjartsláttartruflanir
U 10,3%
□ sykursýki móður 6,3%
■ lyf á meðgöngu 3,3%
„ óeðlileg fjögurra hólfa
sýn 2,5%
■ fjölburar 1,5%
□ annað 5,5%
Tafla II. Alþjóðleg heiti hjartagalla og íslenskar þýðingar.
Alþjóðlegt heiti Islenskt heiti Skammstöfun
Ventricular septal defect Sleglaskilagalli VSD
Atrial septal defect Gáttaskilagalli ASD
Atrio-ventricular septal defect Lokuvísagalli AVSD
Mitral valve regurgitation Míturlokuleki MVR
Tricuspid atresia Þríblöðkulokun TAT
Interrupted aortic arch Rof á ósæðarboga IAA
Coarctation aortae Ósæðarþrengsli CoA
Triscuspid regurgitation Þríblöðkulokuleki TR
Hypoplastic left heart syndrome Vanþroska vinstra hjarta HLHS
Pulmonary stenosis Lungnaslagæðarþrengsli PS
Double outlet right ventricle Tvöfalt útfall hægra slegils DORV
Transposition of the great arteries Víxlun meginslagæða TGA
Tetrologia of Fallot Ferna Fallots TOF
Pulmonary atresia Lungnaslagæðarlokun PAT
Landspítala. Afdrif þungana þar sem hjartagalli
greindist með fósturhjartaómskoðun voru könnuð
og greiningar hjartagalla eftir fæðingu fengin úr
sjúkraskýrslum.
Um miðja meðgöngu er öllum konum boðin
ómskoðun með tilliti til stærðar fósturs, fylgjustað-
setningar og byggingargalla líffæra, þar með talin
fjögurra hólfa sýn hjarta. Þessi skoðtm er hér köll-
uð fósturómskimun. Flestar fósturómskimanir
eru framkvæmdar af sérþjálfuðum ljósmæðrum
sem starfa á fósturgreiningardeild Landspítala.
Á landsbyggðinni framkvæma ýmist læknar eða
ljósmæður skoðunina. Fósturhjartaómskoðun er
framkvæmd af bamahjartalæknum. Auk fjögurra
hólfa sýnar er metin tenging stóru æðanna við
hjartað, aðlægar bláæðar, þrengingar í lokum,
lokulekar og virkni hjartavöðva.
Við flokkun á hjartagöllum var stuðst við
alþjóðlegt flokkunarkerfi ICD-10 og alþjóðlegar
skammstafanir notaðar í megintexta ásamt ís-
lenskum heitum eða þýðingum. Greint er sérstak-
lega á milli opa í slegli hvort um er að ræða op
í vöðvahluta eða nálægt þunnum himnuhluta
sleglaskila (membranous/perimembranous). Op
milli gátta (ASD) er til staðar í fósturlífi og einnig
fósturæð. Því greinast þeir gallar ekki með vissu
fyrir fæðingu og eru ekki hafðir með í úrtakinu.
Op staðsett í neðri hluta gáttaskila (primum ASD)
flokkast með gátta- og sleglaskilagalla sem einnig
er kallaður lokuvísagalli (AVSD) og er með í þessu
úrtaki. Leki á þríblöðkuloku milli hægri slegils
og hægri gáttar getur verið af lífeðlisfræðilegum
ástæðum í fósturlífi án þess að vera byggingar-
galli. Hér er þríblöðkulokuleki ekki hafður með
nema um byggingargalla eða mjög marktækan
leka sé að ræða. Ef um samsettan hjartagalla er að
ræða, það er fleiri en þrír gallar saman, er hann
nefndur flókinn samsettur hjartagalli en jafnframt
eru erlendar skammstafanir einstakra galla hafðar
með innan sviga. Að öðru leyti vísast í töflu II yfir
íslenskar þýðingar og alþjóðlegar skammstafanir
hjartagalla.
Við vinnslu gagna voru notuð forritin PRISM
og Excel. Leyfi voru fengin frá Vísindasiðanefnd
Landspítala (16/2009), Persónuvemd oglækninga-
forstjóra Landspítala.
Niðurstöður
Alls voru framkvæmdar 15864 fósturómskimanir
við 19-20 vikna meðgöngu á fósturgreiningardeild
Landspítala á árunum 2003-2007. Þar af var
1187 (7,5%) þunguðum konum vísað í fóstur-
hjartaómskoðun hjá barnahjartalæknum á Barna-
spítala Hringsins. Fósturhjartaómskoðun leiddi
til greiningar hjartagalla í 73 (73/1187;6,l%)
94 LÆKNAblaðið 2010/96