Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 53
U M R Æ Ð U R 0 G FRÉTTIR UNGLÆKNIR var að koma í búðirnar í janúarbyrjun og vonandi heldur eftirspurnin áfram." Framundan hjá Diktu er tónleikaferð um Evrópu undir vorið og nýja platan er væntanleg út víðar þegar kemur fram á árið 2010. Haukur Heiðar kveðst ætla að hvíla sig nokkuð eftir annasamt haust þar sem saman fóru vaktir á Landspítalanum og vinnsla plötunnar. „Þetta er búið að vera ansi sturlað og starfshlutfallið var ca. 250% ef einhver var á annað borð að reikna. Ég hefði ekki haldið þetta út mikið lengur. Ég ákvað að festa mig ekki í vinnu eftir að platan kom út til að hvfla mig og hafa betri tíma til að fylgja plötunni eftir." Gæti hugsað sér heimilislækningar Hann segist ekki hafa ákveðið hvaða sérgrein hann ætli að leggja fyrir sig en heimilislækningar höfði til hans. „Ég hef unnið talsvert í heilsugæslu, bæði á Sólvangi í Hafnarfirði og í Arbæ og hef haft mikla ánægju af því og get vel hugsað mér heimilislækningarnar." Aðspurður hvort hann geti samræmt ímyndina sem læknir og poppari brosir hann og segist hafa velt þessu talsvert fyrir sér. „Það er nauðsynlegt í starfi sínu sem læknir að koma vel fyrir og vekja traust sjúklingsins. Það hefur gerst að ég hafi hitt sjúkling sem kvöldið áður var að horfa á mig á tónleikum. Það er kannski svolítið skrýtið. En ég held að þetta sé þó ekki eins skrýtið og það hljómar. Ég er líka vanur þessu heiman frá mér því pabbi var alltaf að spila samhliða því að vera læknir. Ég skal reyndar viðurkenna að það er dálítið annað að vera meðleikari grínista en að sleppa sér sem aðalsöngvari rokksveitar. Ég finn reyndar að mörgum kollegum mínum þykir ekkert að þessu, finnst það jafnvel flott og sannleikurinn er sá að margir í poppbransanum verða skrýtnari á svipinn þegar þeir heyra að ég er læknir. „Ertu líka læknir?" spyrja þeir algjörlega gáttaðir." Hvernig líst honum svo á sig þessi fyrstu skref í læknisstarfinu? „Það er auðvitað frábært að vera læknir og ég vil ekki vera neitt annað. En aðstæðumar sem mæta manni em ekki alveg eins og maður bjóst við. Grunnlaun unglækna eru skammarlega lág sem þýðir að til að ná viðunandi tekjum verður að vinna mjög mikið, taka alla aukavinnu og vaktir sem bjóðast. Þetta fer ekki vel saman við fjölskyldulíf og margir eiga erfitt með að ná utan um þetta. Ástandið í þjóðfélaginu bætir ekki úr skák og í fyrsta sinn standa unglæknar frammi fyrir því að fá jafnvel ekki vinnu því ráðningastopp á Landspítalanum setur strik í reikninginn. Maður er því ekki alveg heiðskír í bjartsýninni og kannski er bara eins gott að hafa músíkina með. Vera bæði spilamaður og læknir." Vísindaþing Geðlæknafélags íslands Geðlæknafélag íslands Þriöja vísindaþing Geðlæknafélags íslands verður haldið á Grand Hótel Reykjavík dagana 23. og 24. apríl 2010. Þingið er haldið í tengslum við 50 ára afmæli Geðlæknafélagsins. Dagskrá hefst kl. 13 föstudaginn 23. apríl og stendur til kl. 17 laugardaginn 24. apríl. Aðalfundur kl. 9-11 á laugardeginum. Á þinginu munu geðlæknar og annað fagfólk á geðheilbrigðissviði kynna afrakstur vísindastarfs síns í stuttum erindum og á veggspjöldum. Frestur til að skila ágripum erinda (hámark 250 orð) er til 20. mars 2010 og skal senda með tölvupósti til Magnúsar Haraldssonar, hmagnus@tandspitati.is Á þinginu mun forseti samtaka evrópskra geðlækna (European Psychiatric Association), prófessor Hans-Jurgen Möller, halda erindi um stöðu og framtíð geðlækninga. Laugardagskvöldið 24. apríl verður hátíðarkvöldverður og skemmtidagskrá. í undirbúningsnefnd eru geðlæknarnir Kristinn Tómasson, Magnús Haraldsson og Sigurður Páll Pálsson. LÆKNAblaðið 2010/96 125
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.