Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Fárveikir sjúklingar með inflúensu
A (HlNl)v 2009 og skjót birting
greina hjá Læknablaðinu
Gunnar
Guðmundsson
ggudmund@landspitali. is
Sérfræðingur í
lyflækningum, lungna- og
gjörgæslulækningum og er í
ritstjórn Læknablaðsins.
Critically ill patients with
Influenza A H1A1v 2009
and rapid publication in
the lcelandic Medical
Journal
Gunnar Gudmundsson
MD, PhD
Specialist in internal
medicine, pulmonary and
critical care medicine.
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að á seinni
hluta ársins 2009 gekk faraldur inflúensu A
(HlNl)v 2009 yfir ísland og talið er að tugþúsundir
manna hafi veikst. Fram fór fjöldabólusetning og
tilfellum fækkaði mikið. Búist er við að faraldurinn
geti farið aftur af stað á vormánuðum 2010 en
verði mun vægari en síðasta hluta árs 2009 vegna
fjölda bólusetninga sem framkvæmdar hafa verið.
Síðastliðið haust veiktust nokkrir einstaklingar
alvarlega af inflúensu og þörfnuðust innlagnar
á gjörgæslu og sumir öndunarvélameðferðar.
Gísli H. Sigurðsson og félagar segja frá þessum
sjúklingum í grein í þessu tölublaði Læknablnösins
sem nefnist: Gjörgæslusjúklingar með inflúensu
(HlNl) á íslandi 2009.1 Þetta voru 16 sjúklingar
og var meðalaldur þeirra 48 ár. Hluti hópsins var
ekki með neina alvarlega undirliggjandi sjúkdóma
en 13 einstaklingar reyktu, voru of þungir
eða höfðu háþrýsting. Tólf af sjúklingunum
voru lagðir í öndunarvél og tveir fóru síðar í
hjarta- og lungnavél. Enginn sjúklinganna lést á
gjörgæslu en einn aldraður fjölveikur maður lést
á gjörgæslu. Höfundar álykta að tíðni alvarlegra
sjúkdómseinkenna á íslandi sé há og einkennist af
alvarlegri öndunarbilun sem láti ekki alltaf undan
hefðbundinni öndunarvélameðferð. Ljóst er að
starfsfólk gjörgæsludeild vann mikil afrek með
því að koma öllum þessum sjúklingum í gegnum
þetta erfiða sjúkdómsferli á þessum stutta tíma.
Þessar niðurstöður eru að sumu leyti svipaðar
og þær sem sagt hefur verið frá í öðrum löndum.2"4
Höfundar bæta einnig við með grein sinni nýjum
og mikilvægum upplýsingum um sjúkdómsgang
og meðferð bráðveikra sjúklinga með inflúensu
A (HlNl)v 2009. Eins og Gísli og félagar benda
á er ekki ljóst af hverju tíðni alvarlegra einkenna
er hærri á íslandi en í Ástralíu, Nýja-Sjálandi
og Kanada miðað við höfðatölu. Hugsanlega
skýringu telja þeir geta verið að um sé að ræða
hlutfallslega stærri faraldur, en erfðafræðilegir
þættir gætu líka skipt máli. Þetta gæti verið
fróðlegt að rannsaka nánar.
Eins og sjá má í lok greinar Gísla og félaga leið
stuttur tími frá því greinin var send til Læknablaðsins
og þar til hún var samþykkt til birtingar og hún
birtist svo á prenti. Eins leið stuttur tími frá því
sjúklingarnir voru inniliggjandi og þar til búið
var að draga saman niðurstöður um þá og koma
saman í grein. Tilskilin leyfi fengust einnig
fljótt fyrir rannsókninni hjá Vísindasiðanefnd og
lækningaforstjóra Landspítala og hún var tilkynnt
til Persónuverndar. Hér gengu því margir þættir
mjög fljótt fyrir sig. Hér hafa fengist mikilvægar
upplýsingar sem geta nýst heilbrigðisyfirvöldum
til að gera frekari ráðstafanir vegna inflúensunnar
og nýtast læknum sem annast sjúklinga til að
veita þeim bestu mögulegu meðferð. Án efa mun
greinin verða mikið skoðuð erlendis í gegnum þá
gagnagrunna sem Læknablaðið er nú skráð í því
hún gefur mikilvægar nýjar upplýsingar fyrir
heilbrigðisyfirvöld og lækna um allan heim.
Ritstjórn Læknablaðsins stefnir að því að bjóða
höfundum upp á hraðari ritrýni og styttri tíma
frá innsendingu til birtingar greinar í völdum
tilvikum. Þetta á sérstaklega við í tilvikum
eins og hér þegar verið er að birta upplýsingar
um alvarlegan sjúkdóm sem ekki eru miklar
upplýsingar til um áður á alþjóðavísu. Þeir sem
hafa áhuga á að birta greinar í Læknablaðinu ættu að
kanna þennan möguleika þegar þeir eru að íhuga
val á tímariti til birtingar á nýjum og mikilvægum
niðurstöðum, hvort sem um er að ræða grunn- eða
klínískar rannsóknir.
Heimildir
1. Sigurðsson GH, Möller AD, Kristinsson B, et al.
Gjörgæslusjúklingar með inflúensu A (HlNl)v á íslandi
2009. Læknablaðið 2010; 96: 83-90.
2. Domínguez-Cherit G, Lapinsky SE, Macias AE, et al.
Critically ill patients with 2009 influenza A (HlNl) inMexico.
JAMA 2009, 302:1880-7.
3. The ANZIC Influenza Investigators. Critical Care Services
and 2009 HlNl Influenza in Australia and New Zealand. N
EnglJMed 2009; 361:1-10.
4. Kumar A, Zarychanski R, Pinto R, et al. Canadian Critical
Care Trials Group HlNl Collaborative. Critically ill patients
with 2009 influenza A(H1N1) infection in Canada. JAMA
2009; 302:1872-9.
LÆKNAblaðið 2010/96 79