Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR Fárveikir sjúklingar með inflúensu A (HlNl)v 2009 og skjót birting greina hjá Læknablaðinu Gunnar Guðmundsson ggudmund@landspitali. is Sérfræðingur í lyflækningum, lungna- og gjörgæslulækningum og er í ritstjórn Læknablaðsins. Critically ill patients with Influenza A H1A1v 2009 and rapid publication in the lcelandic Medical Journal Gunnar Gudmundsson MD, PhD Specialist in internal medicine, pulmonary and critical care medicine. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að á seinni hluta ársins 2009 gekk faraldur inflúensu A (HlNl)v 2009 yfir ísland og talið er að tugþúsundir manna hafi veikst. Fram fór fjöldabólusetning og tilfellum fækkaði mikið. Búist er við að faraldurinn geti farið aftur af stað á vormánuðum 2010 en verði mun vægari en síðasta hluta árs 2009 vegna fjölda bólusetninga sem framkvæmdar hafa verið. Síðastliðið haust veiktust nokkrir einstaklingar alvarlega af inflúensu og þörfnuðust innlagnar á gjörgæslu og sumir öndunarvélameðferðar. Gísli H. Sigurðsson og félagar segja frá þessum sjúklingum í grein í þessu tölublaði Læknablnösins sem nefnist: Gjörgæslusjúklingar með inflúensu (HlNl) á íslandi 2009.1 Þetta voru 16 sjúklingar og var meðalaldur þeirra 48 ár. Hluti hópsins var ekki með neina alvarlega undirliggjandi sjúkdóma en 13 einstaklingar reyktu, voru of þungir eða höfðu háþrýsting. Tólf af sjúklingunum voru lagðir í öndunarvél og tveir fóru síðar í hjarta- og lungnavél. Enginn sjúklinganna lést á gjörgæslu en einn aldraður fjölveikur maður lést á gjörgæslu. Höfundar álykta að tíðni alvarlegra sjúkdómseinkenna á íslandi sé há og einkennist af alvarlegri öndunarbilun sem láti ekki alltaf undan hefðbundinni öndunarvélameðferð. Ljóst er að starfsfólk gjörgæsludeild vann mikil afrek með því að koma öllum þessum sjúklingum í gegnum þetta erfiða sjúkdómsferli á þessum stutta tíma. Þessar niðurstöður eru að sumu leyti svipaðar og þær sem sagt hefur verið frá í öðrum löndum.2"4 Höfundar bæta einnig við með grein sinni nýjum og mikilvægum upplýsingum um sjúkdómsgang og meðferð bráðveikra sjúklinga með inflúensu A (HlNl)v 2009. Eins og Gísli og félagar benda á er ekki ljóst af hverju tíðni alvarlegra einkenna er hærri á íslandi en í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Kanada miðað við höfðatölu. Hugsanlega skýringu telja þeir geta verið að um sé að ræða hlutfallslega stærri faraldur, en erfðafræðilegir þættir gætu líka skipt máli. Þetta gæti verið fróðlegt að rannsaka nánar. Eins og sjá má í lok greinar Gísla og félaga leið stuttur tími frá því greinin var send til Læknablaðsins og þar til hún var samþykkt til birtingar og hún birtist svo á prenti. Eins leið stuttur tími frá því sjúklingarnir voru inniliggjandi og þar til búið var að draga saman niðurstöður um þá og koma saman í grein. Tilskilin leyfi fengust einnig fljótt fyrir rannsókninni hjá Vísindasiðanefnd og lækningaforstjóra Landspítala og hún var tilkynnt til Persónuverndar. Hér gengu því margir þættir mjög fljótt fyrir sig. Hér hafa fengist mikilvægar upplýsingar sem geta nýst heilbrigðisyfirvöldum til að gera frekari ráðstafanir vegna inflúensunnar og nýtast læknum sem annast sjúklinga til að veita þeim bestu mögulegu meðferð. Án efa mun greinin verða mikið skoðuð erlendis í gegnum þá gagnagrunna sem Læknablaðið er nú skráð í því hún gefur mikilvægar nýjar upplýsingar fyrir heilbrigðisyfirvöld og lækna um allan heim. Ritstjórn Læknablaðsins stefnir að því að bjóða höfundum upp á hraðari ritrýni og styttri tíma frá innsendingu til birtingar greinar í völdum tilvikum. Þetta á sérstaklega við í tilvikum eins og hér þegar verið er að birta upplýsingar um alvarlegan sjúkdóm sem ekki eru miklar upplýsingar til um áður á alþjóðavísu. Þeir sem hafa áhuga á að birta greinar í Læknablaðinu ættu að kanna þennan möguleika þegar þeir eru að íhuga val á tímariti til birtingar á nýjum og mikilvægum niðurstöðum, hvort sem um er að ræða grunn- eða klínískar rannsóknir. Heimildir 1. Sigurðsson GH, Möller AD, Kristinsson B, et al. Gjörgæslusjúklingar með inflúensu A (HlNl)v á íslandi 2009. Læknablaðið 2010; 96: 83-90. 2. Domínguez-Cherit G, Lapinsky SE, Macias AE, et al. Critically ill patients with 2009 influenza A (HlNl) inMexico. JAMA 2009, 302:1880-7. 3. The ANZIC Influenza Investigators. Critical Care Services and 2009 HlNl Influenza in Australia and New Zealand. N EnglJMed 2009; 361:1-10. 4. Kumar A, Zarychanski R, Pinto R, et al. Canadian Critical Care Trials Group HlNl Collaborative. Critically ill patients with 2009 influenza A(H1N1) infection in Canada. JAMA 2009; 302:1872-9. LÆKNAblaðið 2010/96 79
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.