Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 51
U M R Æ Ð U R
0 G FRÉTTIR
UNGLÆKNIR
„Mörgum kollegum mínum
pykir ekkert að þessu,finnst
pað jafnvel flott," segir
Haukur Heiðar Hauksson
læknir og söngyari
hljómsveitarinnar Diktu.
eru skráðir nær 37 þúsund aðdáendur, frá öllum
heimshornum, svo vinsældir hljómsveitarinnar
eru engar ýkjur.
Klásus betri en inntökuprófin
Haukur Heiðar var í síðasta hópnum sem fór í
gegnum klásus í læknadeildinni og hann segist
upphaflega hafa ætlað sér að taka sér eitt ár í
frí áður en hann réðist í læknisfræðina. „En svo
fréttist að þetta yrði síðasta haustið með klásus
svo ég ákvað að skella mér. Þó klásusinn hafi verið
miskunnarlaust fyrirkomulag þá fannst mér það
sanngjarnara en inntökupróf. Klásusprófin voru
tekin eftir þriggja mánaða nám en inntökuprófin
eru tekin að sumri til án kennslu. Þar ræður
undirbúningur úr menntaskólanum mestu en allir
lærðu sama námsefnið fyrir klásus. Allir sátu við
sama borð."
Læknisfræðin tók sín hefðbundnu sex ár
og Haukur Heiðar útskrifaðist vorið 2008.
„Kandídatsárið teygði dálítið úr sér því ég fékk
nokkur frí útaf hljómsveitinni. í sumar byrjuðum
við að vinna að nýju plötunni sem heitir Get
it Together og gerðum við eiginlega allt sjálfir.
Okkur langaði að stjóma ferðinni algerlega
sjálfir í þetta sinn en við höfðum lært gríðarlega
mikið af vinnslu annarrar plötunnar og smátt
og smátt breyttist æfingahúsnæðið okkar í lítið
upptökustúdíó. Við höfum verið duglegir við að
bæta við okkur tækjum og eigum núna talsvert
af upptökugræjum þó ýmislegt höfum við fengið
að láni. Þetta kostar allt sitt. Svo datt okkur í hug
að fá Jens Bogren, sænskan upptökustjóra sem
vakið hafði athygli okkar fyrir frábærar upptökur
með hljómsveitinni Opeth, til að hljóðblanda fyrir
okkur upptökurnar. Við sendum honum tölvupóst
og spurðum hvort hann væri til í mixa fyrir okkur
og það var alveg sjálfsagt. Svo sendum við honum
upptökurnar og fengum lögin snilldarlega mixuð
til baka. Við hittum hann aldrei. Þetta fór allt fram
á netinu. Planið var að fara og vera viðstaddir
þegar hann mixaði en okkur seinkaði svo með
upptökurnar að það var enginn tími til þess. En
þetta gekk allt upp og platan kom út fyrir jólin."
Aðdáendur biðu í ofvæni eftir plötunni og hún
varð söluhæsta platan í síðustu vikunni fyrir jól.
Upplagið seldist upp og margir urðu frá að hverfa
án þess að ná í eintak fyrir jólin. „Utgefandinn
misreiknaði eftirspurnina og upplagið var of lítið.
Eflaust hefði verið hægt að selja fleiri diska fyrir
jólin en það er ekkert við því að gera. Nýtt upplag
LÆKNAblaðið 201 0/96 123