Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 58
UMRÆÐUR 0 G
LÆKNADAGAR
F R É T T I R
Guðrún Inga Benediktsdóttir, Anna Gunnarsdóttir og Bryndís Sigurðardóttir.
Sigurður Guðmundsson, Tótnas Guðbjartsson og Brynjólfur Mogensen.
síðan ég hóf sérnám þar 1981, bjó svo hér á íslandi
í tvö ár en flutti aftur út til Svíþjóðar 1991.
Á rás fyrir Grensás
A fimmtudagsmorgni Læknadaga var blásið til
Læknahlaups og mættu nær 50 manns í anddyri
Laugardalslaugar klukkan rétt rúmlega sjö til að
hlaupa fimm kílómetra í hvössu roki meðfram
Sæbrautinni. Þátttökugjaldið rann óskert til
stuðnings Grenásdeildarinnar og söfnuðust með
þessu nær 100.000 krónur í þágu þessa góða
málefnis.
Enginn lét veðrið á sig fá og fauk hópurinn
undan vindi þar til snúið var upp í rokið við
tónlistarhúsið nýja og tók þá við barningur tii baka.
Tilhugsunin um vel útilátinn morgunverð í boði
Metronics, eins stuðningsaðila Læknadaganna,
Eyrún Harpa Gísladóttir, Össur Ingi Emilsson og Hjörtur Brynjólfsson 5. árs læknanemar.
hélt hlaupurum við efnið og allir komu þeir aftur.
Fyrstur í karlaflokki varð 5. árs læknaneminn
Stefán Guðmundsson sem er reyndar í hópi
bestu hlaupara landsins. Næstur í mark var
Óskar Jakobsson en fast á hæla honum kom
Magnús Gottfreðsson sem er í hópi okkar bestu
maraþonhlaupara. Stefán hlaut forláta Nike
hlaupaskó í verðlaun fyrir árangurinn.
í kvennaflokki kom fyrst í mark Jakobína
Guðmundsdóttir en hún er er systir Örnu
Guðmundsdóttur og þessi fjölskyldutengsl urðu
til þess að Arna aftók með öllu að veita
Jakobínu verðlaun fyrir árangurinn. Það hefði
mátt túlka sem klíkuskap sagði Arna af fullkomnu
miskunnarleysi. Næstu tvær konur í mark
voru Halldóra Hálfdanardóttir og Þórunn Selma
Bjamadóttir og síðan tíndust þátttakendur í mark
hver af öðrum, allir ánægðir með árangurinn,
enda skiptir mestu í þessu samhengi að vera með
og hugsanlega bæta sinn persónulega árangur.
Eflaust verður þetta endurtekið að ári og þá með
stóraukinni þátttöku.
130 LÆKNAblaðið 2010/96