Læknablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 38
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI
Mynd 1. Sár t húð efst og til hægri og ífarandi æxlisvöxturfyrir miðju og neðst til vinstri
(H&E, meðalmikil stækkun).
Mynd 2. ífarandi æxlisvöxtur við mót yfirhúðar og leðurs (H&E, mesta stækkun).
og brjóstum.5 Húðmeinvörp eru afar ósértæk í
útliti og eru yfirleitt á formi hnúta í undirhúð,
eru hörð viðkomu, eymslalaus og án bólgu- eða
sýkingarmerkja.3 Birt hefur verið tilfelli þar sem
meinvarp frá ristilkrabbameini var á nákvæmlega
sama stað og í þessu tilfelli.6 Meinvörpin koma
gjarnan í ljós á fyrstu tveim árunum eftir að
frumæxli hefur verið fjarlægt og birtast jafnan
samtímis meinvörpum í lifur, lífhimnu og
lungum. Það er því afar sjaldgæft að húðmeinvarp
frá endaþarms- eða ristilkrabbameini sé til staðar
við fyrstu greiningu (0,05%). Einungis 0,5%
meinvarpa í húð leiða til greiningar á frumæxli.2
Birtist slíkt meinvarp í nafla nefnist hann „Sister
Mary Joseph Nodule".7 Húðmeinvörp benda til
útbreidds sjúkdóms og batahorfur að sama skapi
ekki góðar.5
Lokaorð
Þetta tilfelli ítrekar mikilvægi þess að skoða húð
sjúklings vel þegar grunur leikur á að um sé að
ræða illkynja sjúkdóm. Einnig er mikilvægt að
senda öll húðsýni sem fjarlægð eru til frekari
skoðunar.
Heimildir
1. Abrams Hl, Spiro R, Goldstein N. Metastases in carcinoma;
analysis of 1000 autopsied cases. Cancer 1950; 3: 74-85.
2. Lookingbill DP, Spangler N, Helm KF. Cutaneous metastasis
in patients with metastatic carcinoma: a retrospective study
of 4020 patients. J Am Acad Dermatol 1993; 29: 228-36.
3. Brownstein MH, Helwig EB. Metastatic tumors of the skin.
Cancer 1972; 29:1298-1307.
4. Brownstein MH, Helwig EB. Pattems of cutaneous
metastasis. Arch Dermatol 1972; 105: 862-8.
5. Lookingbill DP, Spangler N, Sexton FM. Skin involvement
as the presenting sign of intemal carcinoma. J Am Acad
Dermatol 1990; 22:19-26.
6. Stavrianos SD, McLean NR, Kelly CG, Fellows S. Cutaneous
metastasis to the head and neck from colonic carcinoma. Eur
J Surg Oncol 2000; 26: 518-9.
7. Brady LW, O'Neill EA, Farber SH. Unusual Sites of
Metastases. Semin Oncol 1977; 4: 59-64.
Case report: Facial skin metastasis from rectal adenocarcinoma
This case report describes an 82 year old male who
sought medical attention for changes in bowel habits.
Colonoscopy revealed a tumor located 10 to 15cm from
the anus. Biopsy showed signetring cell adenocarcinoma.
The tumor was not resected due peritoneal dissemination
and a tumor invasion into the urinary bladder, found
intraoperatively. During hospital stay a skin lesion of the
face was removed at the request of the patient. Biopsy
showed metastatic signetring adenocarcinoma. Colorectal
metastatic lesions to the skin are rare findings, especially
metastasis to the face. Skin examination in patients with
suspected or known malignancies is an important part of
the clinical examination.
Vilbergsson E, Isakssort HJ, Möller PH.
Case Report: Metastasis from colorectal signet ring adenocarcinoma to the skin of face. Icel Med J 2010; 96:109-10
Key words: Rectal cancer, metastases, skin.
Correspondence: Páll Helgi Möller, pallm<Slandspitali.is
>
0C
<
2
2
=>
V)
<fí
o
z
UJ
1 1 0 LÆKNAblaðið 2010/96
Barst: 12. september 2008, - samþykkt til birtingar: 9. desember 2009
Hagsmunatengsl: Engin