Læknablaðið - 15.02.2010, Page 11
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Gísli H.
Sigurðsson1’4
svæfinga- og
gjörgæslulæknir,
Alma D. Möller1
svæfinga- og
gjörgæslulæknir
Bjarki
Kristinsson1
læknir
Ólafur
Guðlaugsson23
smitsjúkdómalæknir
Sigurbergur
Kárason1
svæfinga- og gjörgæslulæknir
Sigurður E.
Sigurðsson5
svæfinga- og gjörgæslulæknir
Már
Kristjánsson2
smitsjúkdómalæknir
Kristinn
Sigvaldason1
svæfinga- og gjörgæslulæknir
Lykilorð: inflúensa A,
lungnabólga, fjöllíffærabilun,
dánartíðni, faraldsfræði,
gjörgæsla, öndunarvélameðferð,
ECMO.
’Svæfinga- og
gjörgæsludeild Landspítala,
2smitsjúkdómadeild
Landspítala,
3sýkingavarnadeild
Landspítala, 4læknadeild
Háskóla íslands, 5svæfinga-
og gjörgæsludeild
Sjúkrahússins á Akureyri.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Gísli H. Sigurðsson,
svæfinga- og
gjörgæsludeild
Landspítala Hringbraut,
101 Reykjavík.
gislihs@landspitali. is
Símar: 824 5820, 543 7348
Gjörgæslusjúklingar með
inflúensu A (HlNl) á íslandi 2009
Ágrip
Tilgangur: Að lýsa helstu einkennum og afdrifum
þeirra sem lögðust inn á gjörgæsludeildir á íslandi
vegna inflúensusýkingar af A stofni (HlNl)
haustið 2009.
Aðferðir: Aflað var upplýsinga um sjúklinga
sem lögðust inn á gjörgæsludeildir á Islandi með
staðfesta HlNl 2009 sýkingu.
Niðurstöður: 16 sjúklingar lögðust inn á
gjörgæsludeildir vegna inflúensu A (HlNl)
sýkingar, meðalaldur 48 ár (1-81). Flestir töldust
vera tiltölulega frískir fyrir, en 13 höfðu þó sögu
um reykingar, offitu eða háþrýsting. 15 höfðu
hita, hósta, öndunarþyngsli og dreifðar íferðir í
báðum lungum á lungnamynd og margir fengu
fjöllíffærabilun. Allir fengu veirulyf og 12 voru
meðhöndlaðir í öndunarvél, þar af tveir einnig
í hjarta- og lungnavél. Enginn sjúklingur lést
á gjörgæsludeild, en einn fjölveikur aldraður
sjúklingur lést síðar á legudeild.
Ályktanir: (1) Tíðni alvarlegra sjúkdómseinkenna
af völdum inflúensu A (HlNl) sem leiða til
gjörgæslumeðferðar er há á íslandi. (2) Þessir
sjúklingar fá flestir, auk annarra líffæratruflana,
mjög alvarlega öndunarbilun sem oft lætur ekki
undan hefðbundinni öndunarvélameðferð. (3)
Árangur meðferðar á íslenskum gjörgæsludeildum
hefur verið góður. (4) Niðurstöður þessarar
rannsóknar geta nýst yfirvöldum við mat á
meðferðarmöguleikum og fyrirbyggjandi aðgerð-
um gegn þessum lífshættulega sjúkdómi.
Inngangur
Inflúensuveiran er orthomyxoveira og skiptist
í þrjá flokka, A, B og C. Flokkar A og B
valda sjúkdómum í mönnum. Inflúensa A er
þekkt fyrir það hvað hún á auðvelt með að
breyta sér. Það er tvennt sem veldur. Annars
vegar ónákvæmni í RNA polymerasanum sem
myndar ný stökkbreytt afbrigði veirunnar. Ef
það er nægilega frábrugðið til að víkja sér undan
ónæmissvari gegn móðurveirum getur það orðið
að næsta árstíðabundna faraldursstofni. Þessar
breytingar stafa af sameindalegri breytingu
í hæmagglútíni (H) og eða neuramídasa (N)
sem eru eggjahvítusameindir (væki) á yfirborði
veirunnar og flokkun þeirra byggir á. Hins vegar
geta genabútar veirunnar (1 til 8) endurraðast.
Þá myndast alveg ný veira sem enginn hefur
verndandi mótefni gegn og forsenda fyrir
heimsfaraldri verður til.1-2 Nýja veiran ber H og/
eða N væki sem ekki hafa verið í dreifingu meðal
fólks lengi/ áður.
Heimsfaraldur inflúensu hefur geisað fjórum
sirtnum á síðastliðnum hundrað árum og í
hvert sinn stafað af inflúensuveiru af A flokki.3-4
Spánska veikin (HlNl) 1918 var þeirra skæðust,
en hún olli tugum milljóna dauðsfalla. Á íslandi
létust tæplega 500 manns á sex vikum sem
faraldurinn geisaði og var talið að dánarhlutfall
þeirra sem sýktust hafi verið 2,6%.5 Asíuinflúensan
árið 1957 (H2N2) og Hong Kong inflúensan árið
1968 (H3N2) ollu vægari faröldrum.5 Það sem
einkenndi þessa heimsfaraldra var að ungt fólk
umfram aldraða voru fórnarlömbin.61 mars 2009
varð svokallaðrar svínainflúensu fyrst vart í
kjölfar faraldurs af alvarlegum lungnasýkingum
í Mexíkó7 og í tveimur börnum í Bandaríkjum
Norður-Ameríku.8 Þetta er ný inflúensuveira af
A flokki sem reynist vera upprunnin í svínum
með samruna tveggja veira, en báðar eiga rætur
að rekja til veirunnar sem olli spænsku veikinni
1918.9-111 Hún dreifðist skjótt til allra heimsálfa og
lýsti WHO yfir heimsfaraldursástandi af stigi sex
þann 11. júní 2009.
Á íslandi greindist fyrsta tilfellið 23. maí
2009 og voru fyrstu sjúklingarnir lagðir inn á
sjúkrahús 23. september sama ár. í byrjun var
faraldurinn í hægum gangi og flest tilfellin tengd
ferðalögum erlendis. Er leið á ágústmánuð færðist
hann í aukana, náði fullum krafti síðustu vikuna
í september og hámarki um miðjan október
síðastliðinn, en hefur verið í rénun síðan.11
Nokkrar vísindagreinar hafa þegar birst um
heimsfaraldurinn, meðal annars frá Mexíkó,12
Ástralíu og Nýja-Sjálandi13 og Kanada.14 í þessum
greinum er alvarlegustu tilfellunum lýst, það
er þeim sem lögðust inn á gjörgæsludeildir.
Niðurstöður rannsóknanna benda til að ungt
fólk verði einkum fyrir sýkingunni, flestir
LÆKNAblaðið 2010/96 83