Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 13

Læknablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 13
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR á sjúkrahús. Meðalaldur sjúklinganna var 47,5 ár (1-81) en flestir sjúklinganna voru á aldrinum 30-60 ára (mynd 2). Á þessu tímabili lögðust 170 sjúklingar inn á sjúkrahús á íslandi með einkenni um svínaflensu, þar af helmingur með staðfesta inflúensu A (HlNl). Sjúklingar með staðfesta inflúensu og sem þurftu gjörgæslumeðferðar við voru því um 20% af sjúklingum sem lögðust inn með staðfesta inflúensu, eða 10% af öllum innlögnunum vegna inflúensu, sem er svipað hlutfall og lýst hefur verið erlendis.12'13 Alls hafa 8650 einstaklingar með inflúensulík einkenni eða jákvætt RT-PCR leitað til heilbrigðisþjónustunnar á þessu tímabili, en talið að um 60-100 þúsund tilfelli sýkingarinnar hafi verið á landinu öllu.16 Flestir sem lögðust á gjörgæsludeildir töldust vera frískir fyrir þessi veikindi en 81% voru með undirliggjandi áhættuþætti. Reykingar, offita og háþrýstingur voru mest áberandi (tafla II). Engin ófrísk kona var meðal sjúklinganna. Allir nema einn (15/16) voru með einkenni hita, hósta og öndunarþyngsla og útbreidda lungnabólgu á röntgenmynd af lungum, en einn sjúklingur var lagður inn í kjölfar krampa (mynd 3). Áberandi einkenni var mikið og seigt slím í berkjum, einkum er leið á veikindin. Meirihluti sjúklinga (11 af 16) þurfti meðferð vegna losts og fjórir fengu bráða nýrnabilun eða önnur einkenni um fjöllíffærabilun (tafla III). Algengt var að sjá brenglun á blóðmynd sjúklinga við innlögn. Kreatínkínasi var mældur hjá sjö sjúklingum og reyndist hækkaður hjá þeim öllum (125-2900 U/L). Allir sjúklingarnir fengu oseltamivir eða zanamivir frá komu (tafla IV). Reynd var meðferð með ytri öndunarvél (BiPAP (Bi-level Positive Airway Pressure), Respironics©) hjá fjórum sjúklingum, en hún reyndist ófullnægjandi hjá þremur þeirra og voru þeir í framhaldinu svæfðir og lagðir í öndunarvél. Alls voru 12 sjúklingar meðhöndlaðir í öndunarvél. Margir sjúklinganna voru með svo alvarlegar lungnabreytingar að þéttni lungna á röntgenmynd eða ómun af lungum var sambærileg og á lifur (mynd 3). Þrír voru meðhöndlaðir í grúfulegu í öndunarvél, einn með níturoxíð innöndun (nitric oxide) og tveir í hjarta- og lungnavél (extra corporeal membrane oxygenation; ECMO) (tafla IV). Einn sjúklingur fékk krampa án þess að vera með fyrri sögu um flogaveiki. Meðal APACHE II skor sjúklinganna var 20 sem sýnir að þeir voru mjög veikir (tafla I) og samkvæmt því með áætlaða dánartíðni um 35%. Enginn sjúklingur lést á gjörgæsludeild, en einn fjölveikur sjúklingur á níræðisaldri lést af völdum alvarlegs grunnsjúkdóms á legudeild eftir útskrift Tafla I. Upplýsingar um sjúklinga og tímaþættir i veikindum þeirra. Gildi eru ýmist gefin upp sem meðaltal (±staðalfrávik) eða miðgildi (ásamt hæsta og iægsta gildi). Fyrir sjúkling sem var enn inniliggjandi 12. janúar 2010 var heildarlegutimi hans reiknaður frá innlögn til þess dags. Upplýsingar um sjúklinga og legutími gildi Fjöldi sjúklinga 16 karlar 12(75%) Meðalaldur (miðgildi) 48 (1-81) Likamsþyngdarstuðull (meðaltal) 31,3 ±6,48 APACHE II* 20 ,0 ± 10,8 SAPS II** 33,9 ± 22,4 Dagar frá upphafi einkenna að innlögn á sjúkrahús 3,5(0-11) Dagar frá innlögn á sjúkrahús að innlögn á gjörgæslu 1 (0-6) Legudagar á gjörgæslu 9,5 (1-57) Heildarlegutími á sjúkrahúsi 15,5(3-72) * APACHE II = Acute Physiology and Chronic Health Evaluation II ** SAPS II = Simplified Acute Physiology Score II Tafla II. Undirliggjandi sjúkdómar og aðrir áhættuþættir. Áhættuþættir n % Saga um reykingar 9 56% Offita (s30 BMI) 8 50% Háþrýstingur 7 44% Geðlyf 6 38% Hjartasjúkdómar 3 19% Langvarandi lungnasjúkdómar 3 19% Sykursýki 2 13% Engir undirliggjandi sjúkdómar 3 19% Tafla III. Fylgikvillar. Fylgikvillar n (%) SOFA* skor 6,9 ±3,3 Bráður nýrnaskaði skv RIFLE** skilmerkjum 4 (25%) Áhætta (Risk) 1 (6,25%) Skaði (Injury) 0 Bilun (Failure) 1 (6,25%) Tap (Loss) 2 (12,5%) Lost 11 (69%) Síðkomin lungnabólga 3(19%) Blóðmynd Lækkun á blóðflögum(<150 x 109/L) 8 (50%) Lækkun á eitilfrumum(<1,1 x 109/L ) 13(81%) *SOFA = Sequential Organ Failure Assessment score. *‘RIFLE = Risk, Injury, Failure, Loss, and End-stage Kidney (RIFLE) classification. frá gjörgæsludeild. Þegar þetta er skrifað eru allir sjúklingamir útskrifaðir af sjúkrahúsinu. Sá sem lá lengst var í sjö vikur á gjörgæsludeild, þar af fjórar vikur í ECMO-meðferð og 12 vikur á sjúkrahúsinu. LÆKNAblaðið 2010/96 85
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.