Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 21

Læknablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 21
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Fósturhjartaómskoðanir á íslandi 2003-2007; ábendingar og útkoma Sigurveig Þórisdóttir læknanemi1 Hildur Harðardóttir fæðinga- og kvensjúkdómalæknir’2 Hulda Hjartardóttir fæðinga- og kvensjúkdómalæknir2 Gylfi Óskarsson barnahjartalæknir1'3 Hróðmar Heigason barnahjartalæknir3 Gunnlaugur Sigfússon barnahjartalæknir1-3 Lykilorð: fósturhjartaómskoðun, ábendingar, meðfæddir hjartagallar. ’Læknadeild HÍ, 2kvennasviði, 3Barnaspítala Hringsins, Landspítala Hringbraut. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Hildur Harðardóttir, kvennasviði Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. hhard@landspitali. is Ágrip Inngangur: í þessari rannsókn voru skoðaðar ábendingar og útkoma fósturhjartaómskoðana og hvaða ábendingum fylgja mestar líkur á hjartagalla. Efniviður og aðferðir: Farið var yfir ábendingar og útkomu fósturhjartaómana sem gerðar voru á árunum 2003-2007 og hjartagallar sem greindust skráðir. Meðgöngulengd við greiningu, hnakkaþykkt fósturs við 12 vikur, afdrif þungunar, niðurstöður krufninga og greining bams eftir fæðingu fengust úr sjúkraskýrslum. Niðurstöður: Alls voru framkvæmdar 1187 fósturhjartaómskoðanir og greindist hjartagalli í 73 fóstrum. Algengasta ábendingin var fjölskyldu- saga um hjartagalla (631/1187;53,2%) sem leiddi til greiningar 18 hjartagalla í fósturlífi (18/631;2,9%). Næstalgengasta ábendingin var aukin hnakkaþykkt (159/1187;13,4%) og voru 16 hjartagallar greindir (16/159;10,1%). Þrjátíu konur (30/1187;2,5%) fóru í fósturhjartaómun vegna óeðlilegrar fjögurra hólfa sýnar sem leiddi til greiningar 22 (22/30;73,3%) hjartagalla sem kröfðust inngrips á nýburaskeiði eða höfðu slæmar horfur. Aðrar ábendingar leiddu til greiningar á minniháttar hjartagöllum. Ályktanir: Óeðlileg fjögurra hólfa sýn er mikilvægasti forspárþátturinn fyrir greiningu hjartagalla í fósturlífi. Sú ábending var aðeins 2,5% af heildarfjölda fósturhjartaómana á tímabilinu en leiddi til greiningar 30% allra hjartagalla og voru allir meiriháttar. Inngangur Meðfæddir hjartagallar eru algengastir allra fæðingargalla og valda flestum dauðsföllum.1 Á árunum 1990-1999 greindust 740 börn eða 1,7% lifandi fæddra bama á íslandi með hjartagalla.2 Nýgengi meðfæddra hjartagalla virðist því vera hærra hér en erlendis þar sem talið er að um 1% lifandi fæddra barna hafi hjartagalla.2-4 Stafar þetta af auknum fjölda minniháttar hjartagalla en nýgengi alvarlegra hjartagalla er í samræmi við erlendar rannsóknir.2 Um þriðjungur meðfæddra hjartagalla á íslandi er meiriháttar og þarfnast meðferðar fljótlega eftir fæðingu.2 Almennt er talið að helmingur meðfæddra hjartagalla séu meiriháttar. Mikilvægt er að greina alvarlega hjartagalla fyrir fæðingu þar sem sýnt hefur verið fram á að þá eru horfur barna betri eftir fæðingu samanborið við böm sem fæðast með ógreindan hjartagalla.5,6 Öllum konum er boðin ómskoðim með tilliti til byggingargalla fósturs um miðja meðgöngu. Þá er svokölluð fjögurra hólfa sýn notuð til að meta hvort fjögur hólf hjartans séu til staðar og hvort eðlileg skil séu á milli hólfa og að samræmi sé milli stærðar slegla annars vegar og gátta hins vegar. Rannsóknir á næmi fjögurra hólfa sýnar til að greina byggingargalla í hjarta hafa gefið mjög mismunandi niðurstöður eða á bilinu 15-80%.7'9 Fósturhjartaómskoðun hefur reynst vera áreiðan- legt tæki til greiningar á hjartagöllum á fóstur- skeiði og gerir kleift að greina fleiri hjartagalla en áður.10 Þó greinast flestir meðfæddir hjartagallar eftir fæðingu.2'n-12 Engar íslenskar rannsóknir hafa verið gerðar á því hvaða ábendingar fyrir fósturhjartaóm- skoðunum leiða til flestra greininga hjartagalla á fósturskeiði. í þessari rannsókn verða skoðaðar algengar ábendingar fyrir fósturhjartaómskoðun og lagt mat á hverjum fylgja mestar líkur á hjarta- galla. Þær upplýsingar eru gagnlegar við mat á því hvaða einstaklingum á öðrum fremur að vísa áfram til fósturhjartaómskoðunar. Efniviður og aðferðir Farið var yfir niðurstöður fósturhjartaómana sem framkvæmdar voru á árunum 2003-2007. í þeim tilfellum þar sem hjartagalli fannst voru ábending og niðurstaða rannsóknarinnar skráðar. Ábendingum var skipt í áhættuþætti í fjölskyldu, áhættuþætti móður og áhættuþætti fósturs (tafla 1 og skífurit).13 Upplýsingum um meðgöngulengd við grein- ingu og hnakkaþykkt fósturs við 12 vikna skoðun var aflað úr skrám fósturgreiningardeildar LÆKNAblaðið 2010/96 93
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.