Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 32

Læknablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 32
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Tafla I. Algengustu lyfin notuð við lyfjaeitrun, oft notuð lyf úr fleiri en einum lyfjaflokki (n = 227 komur).‘ Lyfjaflokkur Hlutfall (fjöldi) Bensódíazepín 47% (106) Þríhringlaga geðdeyfðarlyf 26% (59) SSRI/SNRI 21 % (47) Hefðbundin geðrofslyf 17% (38) Parasetamol og skyld lyf 17% (38) Antihistamin 16% (36) Óhefðbundin geðrofslyf 14% (32) * Önnur aðferð en lyf notuð í 23 tilfellum, ófullnægjandi upplýsingar í einu tilfelli. Tafla II Afdrif sjúklinga eftir útskrift af gjörgæslu (n=246).' Afdrif Hlutfall (fjöldi) Innlögn á lyflaekningadeíld 54% (134) Innlögn á geðdeild 17% (43) Útskrift heim 11% (28) Innlögn á barnadeild 7% (16) Innlögn á barna- og unglingageðdeild <1% (1) Innlögn á skurðdeild 1 % (3) Útskrift gegn vilja læknis <1% (1) Upplýsingar vantar i sjúkraskrá 8% (20) * Fimm sjúklingar létust á gjörgæslu. Tafla III. Eftirfylgd sjúklinga eftir útskrift af gjörgæslu og almennum deildum (n=244). * Tegund eftirfylgdar Hlutfall (fjöldi) Innlögn á geðdeild 36% (88) Göngudeild 24% (59) Einkastofa geðlæknis 10% (25) Eftirfylgd talin óþörf" 5% (12) Innlögn á barna- og unglingageðdeild 4%(9) Áfengismeðferð 3% (8) Heimilislæknir 2% (4) Sálfræðingur 2% (4) Engin eftirfylgd 1 % (2) Annað 1 % (2) Upplýsingar vantar i sjúkraskrá 13% (31) ' Alls létust 7 sjúklingar á sjúkrahúsi (5 á gjörgæslu og 2 á almennum deildum). " Sjúklingur hafnaði eftirfylgd og geðlæknir taldi hana óþarfa. vegna sjálfsvígstilrauna. Dánartíðni þessa hóps á sjúkrahúsi er umtalsverð (3%) miðað við meðalaldur hans. Sjálfsvígstíðni er há innan hópsins á næstu árum eftir útskrift af sjúkrahúsi (10%) þó svo að meirihluti hans (80%) hljóti eftirfylgd innan geðheilbrigðiskerfisins. Sjitklmgahópuriim Að meðaltali leggjast 50 einstaklingar á ári inn á gjörgæsludeildir Landspítala vegna alvarlegrar sjálfsvígstilraunar. Sjúklingahópurinn er tiltölu- lega ungur (36 ár ± 14) og konur eru í meirihluta (61%) sem er andstætt því sem gerist almennt á gjörgæsludeildum.17 Þetta er í samræmi við nýlega rannsókn á alvarlegum sjálfsvígum í Finnlandi þar sem litið var á alla þá sem þurftu á sjúkrahúsvist að halda eftir sjálfvígstilraun.1 Mjög hátt hlutfall hópsins (61%) hafði áður gert sjálfsvígstilraun og var það nánast jafnt meðal karla og kvenna sem bendir til þess að þessi hópur sé frábrugðinn hinum almenna hópi sem kemur á bráðamóttöku vegna sjálfsskaða.8- 10 I áðurnefndri rannsókn hafði 21% hópsins sögu um fyrri tilraun en þetta gæti skýrst á mismunandi inntökuskilyrðum í rannsóknunum.1 í finnsku rannsókninni voru kannaðar allar innlagðar sjálfsvígstilraunir en í þessari rannsókn einungis sá hópur sjálfsvígstilrauna sem þurfti meðferð á gjörgæsludeild og ætla má að hópurinn í þessari rannsókn hafi því gert alvarlegri og ákveðnari tilraun. Af hópnum lögðust 10% aftur inn á gjörgæsludeild á rannsóknartímabilinu vegna endurtekinnar tilraunar. Samrýmist það niður- stöðum annarra rannsókna en talið er að þeir sem reynt hafa sjálfsvíg séu í áhættu að sýna áfram sjálfsvígshegðun (12-30%) og sú áhætta sé aukin sérstaklega á fyrsta ári eftir sjálfsvígstilraun.1-8-18 Tegund sjálfsáverka Inntaka lyfja var algengasta aðferðin við sjálfsvígstilraunina (91%). Þau lyf sem mest voru notuð reyndust bensódíazepín, þríhringlaga geðdeyfðarlyf og síðan nýrri þunglyndislyf sem er í samræmi við aðrar rannsóknir.1-19-21 Byggist þetta val væntanlega á aðgengi lyfja í umhverfi sjúklingsins. Líklegast hafa þau lyf verið notuð sem læknir hefur skrifað upp á vegna meðferðar enda 61% með sögu um fyrri sjálfsvígstilraun og væntanlega verið til meðhöndlunar hjá læknum. Það er því óhægt um vik að fjarlægja þennan orsakavald úr umhverfinu. Draga má þó úr honum með því að taka upp lyfjaskömmtun eða ávísa sem lægstum skammti hverju sinni. Þetta ber að íhuga í hverju tilviki eftir sjálfsvígstilraun. Karlar notuðu oftar beinskeyttari og alvarlegri aðferðir sem einnig er þekkt annars staðar frá.3 Þetta er einnig í samræmi við að karlar á íslandi nota oftar skotvopn en konur lyf í staðfestum sjálfs- vígum.4 Ríflega helmingur sjúklinganna (56%) var undir áhrifum áfengis þegar sjálfsvígstilraunin var gerð en áfengisvíma er þekktur áhættuþáttur fyrir bæði sjálfsvígstilraunir og sjálfsvíg.22 Meðferð á bráðamóttöku Það vekur athygli hve stór hluti sjúklinga fær magaskolun þrátt fyrir að hafa tekið lyfin inn 104 LÆKNAblaðið 2010/96
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.