Læknablaðið - 15.02.2010, Page 40
5 E L E X I D®
p I v m e c 11 M n a m
Valið er einfalt*
*Þvagfærasýkingar af völdum sýkla, sem eru næmir fyrir mesillínami1’
Selexid 200 mg filmuhúöaöar töflur.
Hver tafla inniheldur: 200 mg af pivmecillinamhýdróklóríði. Ábendingar: Þvagfærasýkingar af völdum sýkla, sem eru næmir fyrir mesillínami. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir: 200 mg (1 tafla) þrisvar sinnum á
dag. Þennan skammt má tvöfalda við alvarlegar sýkingar. Börn: 20 mg/kg líkamsþyngdar á sólarhring, skipt 13 jafna skammta. Fráfaendingar: Penisillínofnæmi. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við
notkun: Selexid eykur útskilnað carnitíns í þvagi og veldur lækkun á blóðþéttni þess. Við venjulega skammtíma meðferð eru þessar breytingar óverulegar, en við langtíma- eða síendurtekna meðferð er
hugsanlegt, að einkenni um carnitínskort komi fram. Einkum á þetta við, ef sjúklingur tekur jafnframt valpróinsýru. Við slíka meðferð getur verið nauðsynlegt að gefa carnitín samtimis. Milliverkanir við önnur lyf
og a4rar milliverkanir: Próbenesíð dregur úr útskilnaði lyfsins, ef það er tekið inn samtímis. Meðganga og brjóstagjöf: Nota má lyfið. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Engin þekkt áhrif á hæfni til
aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Ógleði og uppköst eftir inntöku. Niðurgangur kemur fyrir. Ofnæmi. Ef tafla festist í vélinda, veldur það ertingu og jafnvel sármyndun. Llkur á þessu má minnka með þvi
að taka lyfiö með a.m.k. hálfu glasi af vatni. Ofskömmtun: Engar upplýsingar liggja fyrir um ofskömmtun. Lyfhrif: Flokkun eftir verkun: Breiðvirk penicillin, ATC-flokkur: J 01 C A 08. Selexid töflur innihalda
pivmecillmam, sem er forlyf virka sýklalyfsins mecillinams. Það hefur aðallega virkni gegn Gram-neikvæðum bakteríum, en iitla virkni gegn Gram-jákvæðum bakteríum. Það verkar með því að hindra nýmyndun
frumuveggja bakteríunnar. Lyfjahvörf: 75-80% pívmesillinams frásogast frá meltingarvegi. Eftir inntöku 200 mg af pivmesillínami næst hámarksþéttni mesillínams I sermi sem er um 3 míkróg/ml á um 1 klst.
Helmingunartími I plasma er 70 mínútur og próteinbindingin 5-10% Um 50% af heildarskammti finnst I þvagi og mestur hluti innan 6 klst. frá inntöku. Forklinískar upplýsingar: Engar forklínískar upplýsingar
ligaa tyrir sem skipta máli fyrir lækna sem ávísa lyfinu utan þeirra upplýsinga, sem þegar hafa verið nefndar í öðrum köflum þessarar samantektar. Pakkningar og verð (janúar 2010): Filmuhúðaðar töflur 20 stk
(þynnupakkað) kr. 3.170; filmuhúðaðar töflur 30 stk. (þynnupakkað) kr. 4.210; filmuhúðaðar töflur 100 stk. (þynnupakkað) kr. 14.766.-. Afgreiðslutilhögun R. Greiðsluþátttaka 0. Tilv” Sullivan Á Edlund C
Nord CE, J Chemother 2001; 13:299-308. Umboðá Islandi: Vistorhf., Hörgatúni2, 210Garðabæ