Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2010, Side 55

Læknablaðið - 15.02.2010, Side 55
U M R Æ Ð U R 0 G F R É T T I R K R E P P A N En fátækt og hin félagslega niðurlæging sem henni fylgir hefur ekki síður áhrif á börn en fullorðna." Hann bendir að lokum á að rannsóknir sýni að börn sem líði skort af einhverju tagi og búi við versnandi andlega heilsu muni síðar á ævinni njóta verri líkamlegrar heilsu en ella. „Þetta eru einstaklingar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að taki meiri áhættu með heilsu sína og hirði minna um hana en aðrir. Þeir eiga frekar á hættu að ánetjast áfengi og tóbaki, fá lífsstílssjúkdóma sem tengjast slæmu mataræði og lenda frekar í slysum vegna ógætilegrar hegðunar eða skertrar dómgreindar. Það er því margt að varast þegar huga skal að vörnum við verstu mögulegum áhrifum kreppu, þó íslenskt samfélag virðist að mörgu leyti vel í stakk búið til að takast á við hana." „Stúlkur gætu upplifað mintii frjósemi þegar þær komast á barneignaraldur," segir Nick Spencer barnalæknir og prófessor emeritus við Wariuick háskóla. Athugasemd Björn Gunnarsson bjorn.gunnarsson@hve.is Rún Halldórsdóttir Höfundar eru svæfingalæknar á Sjúkrahúsi Akraness. í síðasta tölublaði Læknablaðsins (1/2010) er viðtal við Björn Zoéga, forstjóra Landspítalans, þar sem harm meðal annars fjallar um sparnað í heilbrigðiskerfinu og starfsemi sjúkrahúsanna í kringum Reykjavík. Þar kemur hann inn á svokallaðar „hagkvæmnisathuganir" og er þar væntanlega að vitna í skýrslu starfshóps heilbrigðisráðuneytisins um sjúkrahúsþjónustuna á suðvesturhorninu og segir að þar komi glögglega í ljós hversu óhagkvæmt núverandi fyrirkomulag sé. Þar er fyrst til að taka að mjög margt er við þessa skýrslu heilbrigðisráðuneytisins að athuga og of langt mál að koma með þær athugasemdir hér enda hefur ráðuneytið fengið þær til sín. Rekstur Sjúkrahússins og heilsugæslunnar á Akranesi (áður SHA) hefur verið til fyrirmyndar um áraraðir. Starfsmenn hafa undanfarið tekið á sig umtalsverða kjaraskerðingu til að ekki þyrfti að segja upp fólki. Það er erfitt að skilja að hagkvæmt geti verið að leggja niður slíka stofnun og flytja alla starfsemi til Landspítala sem virðist ofhlaðinn verkefnum og glímir við mikinn hallarekstur. Fyrir örfáum dögum var frétt í Morgunblaðinu um að spítalinn væri kominn nærri öryggismörkum hvað mönnun áhrærir; samt segist yfirstjórn Landspítala geta tekið við flestum verkefnum kragasjúkrahúsaima með litlum tilkostnaði. Ekki er efi í okkar huga að Landspítalinn er „endastöð" þegar upp koma mjög alvarleg tilfelli. En fæst tilfelli eru alvarleg og margt má gera og er gert á minni stofnunum. Ummæli forstjóra Landspítala um að bakvaktir á sjúkrahúsunum í kringum Reykjavík veiti falskt öryggi og séu einungis til þess að hækka laun eru ómerk og ber að vísa til föðurhúsanna. Það er naumast stórmannlegt að gera lítið úr vinnu annarra. Við trúumþví að læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk um allt land vinni jafnvel fyrir kaupinu sínu og starfsfólk Landspítalans. Landspítalinn er sjúkrahús allra landsmanna og það er öllum í hag að góð samvinna sé við sjúkrastofnanir um allt land. Sparnaðar- og hagræðingarkröfur á hendur Landspítala mega ekki verða til þess að vegið sé með óréttmætum hætti að öðrum stofnunum. Landspítalinn verður líka að hagræða; það er ekki traustvekjandi að ætla einhverjum öðrum að spara fyrir sig. LÆKNAblaðið 2010/96 127

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.