Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2010, Page 60

Læknablaðið - 15.02.2010, Page 60
 Heilbrigðisstofnun Suðurlands Heilsugæslulæknir! Laus er staða heilsugæslulæknis við heilsugæslustöðina á Kirkjubæjarklaustri. Æskilegt er að umsækjandi hafi sérfræðiréttindi í læknisfræði. Staðan er laus frá 1. mars 2010 eða samkvæmt samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands. Umsóknarfrestur ertil 12. febr. 2010. Við mat á umsóknum verður mikið lagt upp úr eiginleikum sem lúta að samstarfi og sveigjanleika, skipulögðum og sjálfstæðum vinnubrögðum og hæfni í samskiptum. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri lækninga Óskar Reykdalsson í síma 480-5180 og 868-1488. Á Kirkjubæjarklaustri er einstaklega fallegt umhverfi og þar má finna alla grunnþjónustu. í þorpinu er m.a. matvöruverslun, apótek og heilsugæsla, bifreiðaverkstæði, hárgreiðslustofa, handverksbúð, sýningar, veitingastaðir og margt fleira. Þá er einnig glæsileg íþróttamiðstöð, sundlaug og leikvöllur í nágrenni skólans. Heilbrigðisstofnun Suðurlands varstofnuð 1. sept. 2004 við sameiningu heitsugæsiustöðva á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinn ar á Selfossi. Þjónustusvæði stofnunarinnar nær til um 20.000 íbúa á Suðurlandsundirlendinu. Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, eitt sjúkrahús á Selfossi með 31 sjúkrarúm og 40 hjúkrunarrúm. Alls eru um 241 stöðugildi við Heiibrigðisstofnun Suðurlands. HEILBRIGÐISSTOFNUN AUSTURLANDS Laus staða heilsugæslulæknis í Fjarðabyggð Heilsugæslan í Fjarðabyggð óskar eftir að ráða lækni til starfa frá og með 1. febrúar 2010, eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða ráðningu til lengri tíma en skammtímaráðning kemur einnig til greina. Sérfræðimenntun í heimilislækningum er æskileg. Einnig vantar lækni til afleysinga. Heilsugæslan í Fjarðabyggð er hluti af Heilbrigðisstofnun Austurlands, samanstendur af heilsugæslustöðvunum á Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðfirði og Stöðvarfirði og hefur þrjár læknastöður. Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað (FSN) er í 23 km fjarlægð frá Eskifirði. Þar eru lyflæknis-, handlækninga-, fæðinga- og endurhæfingardeildir. í Fjarðabyggð eru starfræktir öflugir grunnskólar, tónskólar, leikskólar og æskulýðsmiðstöðvar og hafa gjöld fyrir þjónustu sveitarfélagsins verið með þeim lægstu á landinu. Verslun er fjölbreytt svo og rekstur hótela, gistihúsa og veitingahúsa. Hitaveita er á Eskifirði. Aðstaða íþróttaiðkunar er mjög góð, ný sundlaug á Eskifirði, fjölnota íþróttahöll á Reyðarfirði og skíðasvæði í Oddsskarði. Framhaldsskólar eru Verkmenntaskóli Austurlands í Neskaupstað og Menntaskólinn á Egilsstöðum. Á Austurland er öflug og fjölbreytt menning og gróskumikið mannlíf. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar 2010. Upplýsingar gefa: Stefán Þórarinsson, framkvæmdastjóri lækninga, sími 892 3095, stefant@hsa.is og Emil Sigurjónsson, forstöðumaður starfsmannaþjónustu HSA, sími 895 2488, emils@hsa.is. 132 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.