Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 65

Læknablaðið - 15.02.2010, Qupperneq 65
Qlaira. Hafi kona ekki tekiö Qlaira samkvæmt fyrirmælum áður en hún missti íyrst úr blæðingar eða ef næstu blæðingar láta einnig á sér standa, skal útiloka að um þungun sé að ræða áður en hún heldur áfram að nota Qlaira. Ef óregla á blæðingum heldur áfram eða kemur fram eftir reglulega tíðahringi, skal íhuga hvort eitthvað annað en hormón geti verið ástæðan, og gera þarf viðeigandi ráðstafanir varðandi greiningu til að útiloka að um illkynja sjúkdóm sé að ræða eða þungun. Það gæti þýtt útskröpun. Milliverkanir: Milliverkanir getnaðarvamartafina og annarra iyQa, geta leitt til milliblæðinga og/eða dregið úr getnaðarvöm. Dienogest er ensímhvarfefni cýtókróms P450 (CYP) 3A4. Milliverkanir geta átt sér stað við lyf (t.d. fenýtoín, barbítúröt, prímidón, karbamazepín, rífampicfn og hugsanlega oxkarbazepín, tópíramat, felbamat, HIV lyf (t.d. rítónavír og/eða nevirapín), gríseófúlvín og efni sem innihalda Jóhannesarjurt. Þessi milliverkun virðist byggjast á lifrarensímörvandi eiginleikum þessara virku efna (t.d CYP 3A4 hvatans) sem auka úthreinsun kynhormóna. Konur sem taka tímabundið einhverja ofangreindra lyfjaflokka eða einstök virk efni skulu nota lil bráðabirgða aðra getnaðarvamaraðferð án hormóna til viðbótar samsettu getnaðarvarnartöflunum, þ.e. á meðan þær taka hitt lyfið og I 14 daga eftir að þær hafa hætt því. Konur sem taka rífampicín eiga að nota aðra getnaðarvöm, sem ekki inniheldur hormón, samtímis töku samsettu getnaðarvamartaflnanna meðan þær eru á rífampicínmeðferð og í 28 daga eftir að henni lýkur. Við langtímameðferð með lifrarensímörvandi virkum efnum er mælt með að nota aðra áreiðanlega aðferð án hormóna til vamar getnaði. Þekktir CYP3A4 hemlar eins og “azole” sveppalyf, címetidiin, verapamíl, makrólíðar, diltiazem, þunglyndislyf og greipaldinsafi geta hugsanlega aukið plasmastyrk dienogests. í rannsókn á áhrifum CYP3A4 hemla (ketókónasól, erythromycín) jukust plasmagildi dienogests og estradíóls við stöðugt ástand. Sumar klínískar skýrslur gefa til kynna að dregið geti úr lifrar-þarmahringrás estrógens við gjöf tiltekinna sýklalyfja sem geta dregið úr styrk estradíóls (t.d. penisillín, tetracyklín). Ahrif Qlaira á önnur lyf: Getnaðarvamartöflur geta hugsanlega haft áhrif á umbrot tiltekinna virkra efna og getur ýmist valdið auknum (t.d. lamótrigín) eða minnkuðum (t. d. ciklósporín) styrk í plasma og vef. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki skal taka Qlaira á meðgöngu. Ef þungun á sér stað meðan á töku Qlaira stendur skal hætta töku lyfsins. Samsettar getnaðarvarnartöfiur geta dregið úr magni og breytt samsetningu brjóstamjólkur. Hormón til getnaðarvama og/eða umbrotsefni þeirra geta skilist út í brjóstamjólk I litlu magni en ekkert liggur fyrir því til staðfestingar að slíkt hafi skaðleg áhrif á heilsu ungbams. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Qlaira hefur engin áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Sýkinfiar af völdum sýkla og snikjudýra; sjaldgœfar: Sveppasýking, candidasýkning í leggöngum, sýking í leggöngum. Mjög sjaldgœfar: Candidasýking, áblástur, váfumygluheilkenni í augum (presumed ocular histoplasmosis syndrome), litbrigðamygla, þvagfærasýking, leggangabólga af völdum baktería, skapa-og leggangabólga af völdum ’ sveppasýkingar. Efnaskipti og næring; sjaldgœfar: Aukin matarlyst. Mjög sjaldgœfar: Vökvasöfnun, hækkun þríglýseríða í blóði. Geðræn vandamál: sjaldgœfar: Þunglyndi/þungt skap, nnnnkuð kynhvöt, geðröskun, skapsveiflur. Mjög sjaldgœfar: Hverflyndi, árásargimi, kvíði, vanlíðan, aukin kynhvöt, taugaveiklun, óróleiki, svefntruflanir, streita. Taugakerfi: ahanmir. Höfuðverkur þar með talinn spennuhöfúðverkur. Sjaldgafar. Sundl. Mjög sjaldgœfar: Athyglistruflanir, náladofi (paraesthesia), svimi. Augu: Mjög sjaldgæfar: Óþol gegn sjónlinsum. Æðar; sjaldgœfar: Háþrýstingur, mígreni þar með talið migreni með fyrirboða og mígreni án fyrirboða. Mjög sjaldgafar: Blæðandi æðahnútar, hitakóf, lágþrýstingur, æðaverkur. Mellingarfæri; algengar: Kviðverkur þar með talinn þaninn kviður. Sjaldgœfar: Niðurgangur, ógleði, uppköst. Mjög sjaldgœfar: Harðlífi, meltingartruflanir, bakflæði’ssjúkdómur. Lifur muaU; mjög sjaldgafar: Aukning alanín amínótransferasa, góðkynja æxli í lifur. Húð og undirhúð; aleenear: Þrymlabólur. Sjaldgœfar: Skalli, kláði þar með talinn kláði almennt og kláði með útbrotum, útbrot þar með talin útbrot sem ekki em upphækkuð. Mjög sjaldgœfar: Ofnæmisútbrot í húð þar með talin ofnæmisútbrot og ofsakláði, þungunarfreknur, ofnæmishúðbólga, húðbólga, óeðlilegur hárvöxtur, ofhæring, húðskæning, röskun á húðlit, húðröskun, flasa, strekkt húð, húðkvilli, þar með herpingur í húð. Stoðkerfi og stoðvefnr: mjög sjaldgœfar: Bakverkur, vöðvakrampi, þyngslatilfinning. Æxlunarfæri og brjóst; algengar: Tíðateppa, óþægindi í brjóstum þar með talinn brjóstverkur, geirvörtukvilli og verkur í geirvörtu, tiðaþrautir, milliblæðingar þar með taldar óreglulegar tíðir. Sjaldgœfar: Brjóstastækkun, bandvefshnútar í brjóstum, frumubreytingar í leghálsi, tíðaröskun, sársauki við samlarir, belgmein í brjósti, asatíðir, tíðatmflanir, blöðrur á eggjastokkum, móðurlífsverkir, fyrirtíðaspenna, leghálsrangvöxtur, hnútur í legi, krampar í legi, útferð úr leggöngum, þurrkur í leggöngum og sköpunt. Mjög sjaldgæfar: Belgmein í brjósti, blæðing úr kynfærum, góðkynja hnútur I brjósti, belgmein I brjósti, blæðing við samfarir, mjólkurmyndun, blæðin’g frá kynfærum, minnkun tíðablæðinga, seinkun tíðablæðinga, sviði í leggöngum, blæðingar úr legi/leggöngum þar með taldar blettablæðingar, óþefur úr leggöngum, óþægindi í leggöngum og Sköpum. Blóð og eitlar; mjög sjaldgæfar: Bólgnir eitlar. Almennar aukaverkanir og aukaverkanir á ikomustað: sjaldgœfar: Erting, bjúgur. Mjög sjaldgæfar: Brjóstverkur, þreyta, slappleiki. Rannsóknamiðurstöður; algengar. Þyngdaraukning. Sjaldgœfar: Þyngdartap. Greint hefur verið frá eftirfarandi alvarlegum aukaverkunum hjá konum sem taka getnaðarvarnartöfiur. Segarekskvillar í bláæðum. Segarekskvillar í slagæðum. Háþrýstingur. Æxli t lifur. Tilvist eða versnun einkenna, sem gætu tengst notkun getnaðarvamartaflna án þess að það sé staðfest: Crohns sjúkdómur, sáraristilbólga, flogaveiki, mígreni, legslímuvilla, vöðvahnútar í legi, porfyría, rauðir úlfar, meðgöngublöðmbóla, rykkjadans (Sydenhams chorea), blóðlýsuþvageitranarheilkenni, gallstíflugula. Þungunarfreknur. Bráðar eða langvinnar traflanir á lifrarstarfsemi geta gert það að verkum að nauðsynlegt sé að hætta notkun hormonagetnaðarvamartaflna þar til hfrargildin eru kontin í eðlilegt horf. Hjá konum með arfgengan ofsabjúg, geta utanaðkomandi estrógen valdið því að sjúkdómur kemur fram eða versnar. Tíðni greiningar á brjóstakrabbameini eykst mjög lítillega hjá notendum getnaðarvamartaflna til inntöku. Þar sem brjóstakrabbamein er sjaldgæft hjá konum undir 40 ára að aldri er aukning á fjölda litill miðað við heildaráhættuna á brjóstakrabbameini. Tengslin við samsettar getnaðarvarnartöflur era óþekkt. Auk ofantalinna aukaverkana hafa þrimlaroðaþrot, regnbogaroðasótt, útferð úr brjóstum og ofnæmi komið fram við meðferð með samsettum getnaðarvamartöflum sem innihalda etinýlestradíól. Þrátt fyrir að ekki hafi verið tilkynnt um þessi einkenni meðan á klínískum rannsóknum á Qlaira stóð er ekki hægt að útiloka möguleikann á að þau komi einnig fram við meðferð. Ofskömmtun: Eftirfarandi einkenni eru hugsanleg ef of stór skammtur er tekinn af virkum töfium: ógleði, uppköst og smávægileg blæðing frá leggöngum hjá ungum stúlkum. Ekkert mótefni er þekkt og miða ber meðferð við einkennin hverju sinni. Pakkningar og hámarksverð (1. des. 2009): 3 x 28 filmuhúðaðar töflur; 7.911 kr. Afgrciðslutilhögun og grciðsluþátttaka: R, E. Markaöslcyfishafi: Bayer AB, Box 606, SE-169 26 Solna, Svíþjóð. Dagsetning endurskoðunar tcxtans: 2. Febrúar 2009. Heimildir: Samantekt á eiginleikum lyfs (SPC) janúar 2010. Sérfygaskrártexta í heild sinni má nálgast hjá umboðsaðila á íslandi, Icepharma hf. og á heimasíðu LyQastofnunar: www.Iyfjastofnun.is. LÆKNAblaðið 2010/96 1 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.