Læknablaðið - 15.03.2011, Síða 19
FRÆÐIGREINAR
Ylfa Rún
Óladóttir1 2
kandídat
Sigurður
Kristjánsson3
barna- og ofnæmislæknir
Michael Clausen34
barna- og ofnæmislæknir
Lykilorð: bráð berkjungabólga,
einkenni, greining, meðferð.
’Læknadeild HÍ,2
Landspítala, 3Barnaspítala
Hringsins,
4göngudeild í
ofnæmissjúkdómum
Landspítala Hringbraut.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Michael Clausen,
mc@landspitali. is
Y F I R L I T
Bráð berkjungabólga
Yfirlitsgrein
Ágrip
Bráð berkjungabólga er veirusýking í neðri
öndunarfærum. Þetta er mjög algengur sjúk-
dómur meðal ungra bama og er oftast af
völdum RS-veirunnar. Sjúkdómurinn einkennist
af bólgu og þrengingu á smáum berkjum í
lungum barnanna og veldur öndunarerfiðleikum
og teppu. Greining bráðrar berkjungabólgu
byggist á sjúkdómseinkennum, en rannsóknir
koma að litlu gagni. Meðferðin er fyrst og fremst
stuðningsmeðferð, lyf og önnur úrræði hafa lítil
áhrif á sjúkdómsganginn. Horfur eftir bráða
berkjungabólgu eru yfirleitt mjög góðar og flest
böm jafna sig að fullu.
Tilgangur þessarar yfirlitsgreinar er að rekja
einkenni, greiningu og meðferð bráðrar berkjunga-
bólgu samkvæmt gagnreyndum heimildum.
Einnig er gerð grein fyrir faraldsfræði, meina-
lífeðlisfræði og langtímahorfum sjúklinga með
bráða berkjungabólgu.
Inngangur
Bráð berkjungabólga (bronchiolitis) er veirusýking
í neðri öndunarfærum sem leggst aðallega á ung
börn. Árlega er komið með um 20% barna yngri
en eins árs til læknis vegna bráðrar berkjunga-
bólgu.1 RS-veiran (Respiratory syncytial virus),
er algengasti orsakavaldur, en nokkrar aðrar
veimr og bakteríur geta valdið sjúkdómnum.
Árstíðabundnar sveiflur em á tíðni sýkinga af
RS-veirunni og árlega eru faraldrar yfir vetrar-
tímann.2'5
Berkjungabólga er í flestum tilfellum vægur
sjúkdómur sem gengur yfir af sjálfu sér. Lyf og
önnur úrræði hafa yfirleitt lítil áhrif á klínískan
gang sjúkdómsins.2' 3'6-8 Aðaleinkenni eru kvef-
einkenni og hósti og geta varað í allt að tvær
vikur.3'5'9 Flest börn jafna sig að fullu, en nokkur
hluti fær astmaeinkenni í tengslum við kvefsýk-
ingar, jafnvel fram á unglingsár.10'13
Misjafnt er hvernig bráð berkjungabólga er
greind og meðhöndluð, hvort sem er inni á sjúkra-
húsi eða utan þess.14 Gefnar hafa verið út klínískar
leiðbeiningar um greiningu og meðferð bráðrar
berkjungabólgu sem byggðar em á gagnreyndum
heimildum.3-6'7 í þessari yfirlitsgrein er fjallað um
greiningu og meðferð bráðrar berkjungabólgu
samkvæmt gagnreyndum heimildum.
Faraldsfræði
Bráðri berkjungabólgu var fyrst lýst eftir inflú-
ensufaraldur í Bretlandi árið 1941. Ung böm voru
sérstaklega viðkvæm fyrir þessum sjúkdómi sem
einkenndist af mikilli andnauð.15 Síðan hefur
komið í ljós að margar veimr geta valdið bráðri
berkjungabólgu sem er meðal algengustu sýk-
inga sem leggjast á ung börn.1'3'4-16 Flest tilfelli
eru væg og innan við 3% barna á fyrsta ári sem
greinast með bráða berkjungabólgu þurfa að
leggjast inn.2'16-18 Sjúkdómurinn er árstíðabundinn
og faraldrar eru á veturna og fram á vor. Komið
hefur fram í nokkmm rannsóknum að tilfellum
bráðrar berkjungabólgu hafi fjölgað síðustu ára-
tugi en ástæðan fyrir því er ekki að fullu þekkt.
Talið er að bætt lifun fyrirbura skipti máli í því
sambandi, en vitað er að fyrirburar eru í aukinni
hættu á að fá alvarlega berkjungabólgu.5' 16' 19
Einnig hefur dagvistun barna aukist og er þekktur
áhættuþáttur fyrir öndunarfærasýkingu.20 Veiran
sem oftast veldur bráðri berkjungabólgu er RS-
veiran, eða í um 43-90% tilfella.2-4'5'21 Veiran
hefur verið þekkt síðan árið 1956 og greindist
hjá simpönsum.22 Veiran veldur oftast bráðum
öndunarfærasýkingum í börnum og meirihluti
barna hefur fengið smit af henni við tveggja ára
aldur.5-18 Sýkingartíðnin er hæst hjá börnum á
aldrinum sex vikna til sex mánaða og endur-
teknar sýkingar eru algengar þar sem ekki verður
viðvarandi ónæmi gegn veirunni við sýkingu.3-
5'18 RS-veiran veldur jafnan vægum einkennum,
en tæplega þriðjungur fær einkenni frá neðri
öndunarvegum og 2-3% allra ungbama yngri en
eins árs þurfa að leggjast inn á sjúkrahús vegna
RS-veirusýkingar.2'16
Aðrir sýklar sem geta valdið bráðri berkj-
ungabólgu eru rhinoveira, inflúensuveirur, para-
inflúensuveirur, Bordetella pertussis, Mycoplasma
pneumonie, boca-veira, adeno-veira og human
metapneumo-veira.3-4 Human metapneumo-veira
var nýlega uppgötvuð í Hollandi. Þessi veira
hefur gengið á milli manna í að minnsta kosti 50
LÆKNAblaðið 2011/97 151