Læknablaðið - 15.06.2011, Side 15
Y F I R L I T
Sjálfsprottin innanskúmsblæðing
- yfirlitsgrein
ÓlafurÁrni Sveinsson1 læknir, Ingvar H. Ólafsson2 læknir, Ólafur Kjartansson3 læknir, Einar Már Valdimarsson4 læknir
ÁGRIP
Sjálfsprottin innanskúmsblæðing er blæðing inn í innanskúmshol án þess að um áverka sé að ræða. Æðagúlar eru orsökin í 80% tilfella. Aðrar ástæður
eru æðamissmíð, blóðþynningarmeðferð, æðabólga og æxli í heilavef. Sjálfsprottin innanskúmsblæðing er algengasta ástæða heilablóðfalls hjá
ungu fólki. Nálægt helmingur sjúklinga deyr af völdum sjúkdómsins. Af þeim sem lifa af kemst aðeins helmingur f fulla vinnu aftur og margir búa við
skert lífsgæði. í endurblæðingu felst mesta bráðahættan. Því beinast fyrstu viðbrögð að lokun æðagúlsins, annaðhvort með innanæðahnoðrun með
platínuþráðum, eða klemma er sett á æðagúlinn með taugaskurðaðgerð.
Inngangur
'Taugadeild Karolinska
sjúkrahússins í
Stokkhólmi,
2taugaskurðdeild,
3röntgendeild,
“taugalækningadeild
Landspítala.
Fyrirspurnir:
Ólafur Sveinsson
olafur.sveinsson®
karolinska.se
Sjálfsprottin innanskúmsblæðing (SIB) er blæðing inn í
innanskúmsholið (subarachnoidal space) án þess að um
áverka sé að ræða. Æðagúlar eru orsökin í um 80% til-
fella. Aðrar ástæður eru meðal annars æðamissmíð
(arteriovenous malformation), blóðþynningarmeðferð,
æðabólga og æxli í heilavef (sjá töflu I). SIB er algengasta
ástæða heilablóðfalls hjá ungu fólki. Nálægt helmingur
sjúklinga með SIB deyr af völdum sjúkdómsins.1 Af
þeim sem lifa af kemst eingöngu helmingur í fulla
vinnu aftur og margir búa við skert lífsgæði. Því er
um mjög alvarlegan sjúkdóm að ræða. í endurblæðingu
felst mesta bráðahættan. Fyrstu viðbrögð beinast því að
lokun æðagúlsins, annaðhvort með innanæðahnoðrun
(endovascular coiling) með platínuþráðum eða að klemma
er sett á æðagúlinn í opinni höfuðaðgerð (clipping).‘
Algengasti fylgikvilli SIB er æðasamdráttur sem getur
leitt til heilablóðþurrðar. Þá áhættu er hægt að minnka
með gjöf kalsíumhemilsins nímódipíns og með því að
halda uppi góðum fylliþrýstingi æða. Vatnshöfuð er
annar fylgikvilli sem hægt er að meðhöndla tímabundið
með fráflæðislegg (ventricular drainagé) eða varanlegum
ventli (ventriculo-peritoneal shunt).
Tafla I. Sjaldgæfar ástæður innanskúmsblæðingar.
Bólgusjúkdómar í heilaæðum
Sveppalíkisæðagúll (mycotic aneurysms)
Æðbólgur (Polyarteritis nodosa, Churg-Strauss heilkenni og
æðabólga Wegeners)
Aðrar ástæður
Flysjun (Arterial dissection)
Æðaflækja (Cerebral arteriovenous malformations)
Slag- og bláæðarfistill í heila
Cavernous angiomas
Stokkasegi (Ceæbral venous thrombosis)
Heilamýlildissjúkdómur (Cerebral amyioid angiopathy)
Moyamoya-sjúkdómur
Blæðing f heiladingulsæxli
lllkynja tróðæxli (glioma)
Æðakímfrumæxli (haemangioblastoma) á mænu
Lyf
Kókaínmisnotkun
Blóðþynnandi lyf
Barst: 8. febrúar 2011
Samþykkt: 17. maí 2011
Höfundar tiltaka hvorki
styrki né hagsmunatengsl.
Faraldsfræði
í flestum rannsóknum er nýgengi SIB 6-7 tilfelli á ári
á hverja 100.000 íbúa.2-3 Þrefalt hærri nýgengistölum
er lýst í rannsóknum frá Finnlandi og Japan.2 Þó að
nýgengið aukist með aldri er helmingur sjúklinga yngri
en 55 ára.3 Meðalaldur við rof æðagúls er um 50 ár.
í nokkrum rannsóknum hefur nýgengið verið allt að
tvöfalt hærra hjá konum en körlum.1
Orsakir
Æöagúlar
í um 80% tilfella eru brostnir æðagúlar ástæðan fyrir
SIB. Um 10% SIB eru staðsett í kringum miðheila
(perimesencephalic).4 í þeim tilfellum finnst æðagúll
sjaldnast. Aðrar orsakir eru sjaldgæfar (sjá töflu I).
Æðagúlar koma fram á stöðum þar sem æðar
greinast. Algengasta staðsetningin er á æðahring Willis
og við nálægar æðagreinar hans (mynd l).4 Æðagúlar
eru kenndir við æðina þar sem þeir myndast. Um
LÆKNAblaðið 2011/97 355