Læknablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 24
ALDARAFMÆLI HÍ
Björn Sigurðsson
læknir og ævistarf hans
Eins og alþjóð veit er aldarafmæli Háskóla íslands á þessu ári. Einn
liður í afmælishátíðinni er helgaður afburða vísindastörfum Björns
Sigurðssonar, læknis og fyrsta forstöðumanns Tilraunastöðvar
Háskólans í meinafræði að Keldum.
Björn Sigurðsson fæddist að Veðramóti í Skagafirði árið 1913.
Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1932 og fimm árum síðar
kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla íslands. Það var óvenju
stuttur námstími. Sumarið 1936 sendi landlæknir læknanemann
Björn Sigurðsson norður í Flatey á Skjálfanda að rannsaka
taugaveikifaraldur sem þar gekk. Um árangur þeirrar ferðar
skrifaði Björn skýrslu sem landlæknir birti í Heilbrigðisskýrslwn
1936. Vinnan sem lýst er í þessari frumsmíð höfundarins, ber
með sér alla þá eiginleika sem áttu eftir að móta farsælt starf
hans síðar á ævinni, vandvirkni, óþreytandi starfsorku, rökhyggju,
útsjónarsemi og frumleika. Þama á skerinu norður við Dumbshaf
tókst Birni að búa til nothæfan hitaskáp úr næstum því engu
efni. Við þessar „starfsaðstæður" leysti hann af hendi með prýði
það verk sem hann hafði tekið að sér. Sömu eiginleikar nutu sín
vel nokkrum árum síðar, þegar Björn lagði fræðilegan og efna-
hagslegan grundvöll að Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að
Keldum og þeim verkefnum sem þar var unnið að í hans tíð.
Björn var námskandídat á sjúkrahúsi Hvítabandsins í Reykjavík
og jafnframt aðstoðarlæknir á rannsóknastofu Háskólans í
meina- og sýklafræði við Barónsstíg. Að loknu kandídatsárinu
lá leið Björns til Kaupmannahafnar í framhaldsnám í meina- og
sýklafræði. Þar var hann vorið 1940, þegar Þjóðverjar hernámu
Danmörku og Bretar ísland. Björn kom heim haustið 1940 með
Petsamóhópnum, síðasta íslendingahópnum sem komst hingað frá
Danmörku meðan seinni heimsstyrjöldin geisaði. Hann fór aftur að
vinna á rannsóknastofu Háskólans. Sumarið 1941 fékk Björn styrk
úr Rockefellersjóði til framhaldsnáms í Bandaríkjunum. Hann var
þar í tvö ár við nám og rannsóknir í Princeton-háskóla í New
Jersey og lagði aðaláherslu á veirufræði, fræðigrein sem þá var
eiginlega í frumbernsku. Björn kom heim úr Bandaríkjadvölinni
sumarið 1943.
A námsárum Björns barst hingað plága sem gerði nærri útaf
við sauðfjárbúskapinn, einu atvinnugreinina í landinu í þá daga.
Árið 1933 voru fluttar hingað 20 kindur af karakúlstofni. Þær
komu frá margverðlaunuðu þýsku fjárræktarbúi og voru með öll
tilskilin heilbrigðisvottorð í góðu lagi. Islenskur dýralæknir hafði
verið sendur að skoða þær vel og vandlega áður en þær voru
keyptar, og hér tók við tveggja mánaða sóttkví í Þerney áður
en kindunum var dreift á bestu bæi um land allt. Samt fluttu
þessar skepnur með sér fjóra banvæna sjúkdóma sem höfðu
ekki áður sést hér. Tveir þeirra, garnaveiki (paratuberculosis) og
votamæði (pulmonary adenomatosis), voru þekktir í öðrum lönd-
um, þó að enginn hefði áður séð þá hér, en tveir, þurramæði
(;maedi) og visna (visna), höfðu hvergi fundist áður. Alþjóðaheiti
þeirra eru íslensk, þ.e. heitin sem Björn Sigurðsson notaði í
fræðigreinunum þegar hann lýsti meingerð þeirra fyrstur manna.
Rannsóknir á þessum fjórum sjúkdómum urðu aðalstarf Björns og
grundvöllur þeirrar skilgreiningar á hæggengum veirusýkingum
sem hann er þekktastur fyrir. Það liðu tvö til sex ár frá þessum
innflutningi þar til fór að bera á sjúkdómum í heimafénu hér.
Rannsóknaraðstaða var hvergi nema á rannsóknastofu Háskólans
í meina- og sýklafræði og læknarnir þar unnu allir að því að
reyna að leysa gátuna þegar glíman við hana byrjaði. Tjón
bænda jókst með hverju ári sem leið og mikil þörf var orðin
á betri rannsóknaraðstöðu fyrir landbúnaðargeirann. Þegar Björn
kom aftur frá Bandaríkjunum fór hann beint í fulla vinnu á
rannsóknastofu Háskólans og vann jafnframt að því að koma
upp alveg nýrri stofnun, Tilraunastöð Háskólans í meinafræði
að Keldum. Stór Rockefellerstyrkur fékkst til þessarar nýju til-
raunastöðvar með því skilyrði að Björn Sigurðsson yrði þar
forstöðumaður. Þessi nýja tilraunastöð tók til starfa árið 1948
og stýrði Bjöm henni af miklum krafti til æviloka.
Björn var einstakur starfsmaður sem allir á Keldum báru mikla
virðingu fyrir. Fyrir Birni voru erfiðleikar til að sigrast á þeim,
verkefnin til að vinna þau vel, niðurstöður tilrauna til að draga
af þeim rökréttar ályktanir, skoðanamunur til að ræða hann og
komast að rökréttum niðurstöðum, og í fræðunum fannst honum
réttast að leggja spurningar vandlega fyrir náttúruna sjálfa með
tilraunum og athuga svörin. Þannig lifði Bjöm lífinu í dagsins
önn. Hann vann daglega langan starfsdag. Þó að hann hefði
með höndum svo mikla stjórnsýslu að flestum fyndist það fullt
starf nú, virðist það ekki hafa komið mjög mikið niður á vinnu
364 LÆKNAblaðiö 2011/97