Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2011, Side 32

Læknablaðið - 15.06.2011, Side 32
UMFJÖLLUN O G GREINAR „Fræðin eru orðin það flókin að til að ná árangri þarf samstarf margra með sérþekkingu á ýmsum sviðutnsegir Einar Stefánsson augnlæknir. minni ég hafði gert ráð fyrir; menn voru ekki komnir útúr gamla farinu sem ég hafði kynnst aðeins áður en ég fór út tíu árum fyrr. En þetta var að breytast og þama voru komnir til áhrifa mjög öflugir menn eins og Helgi Valdimarsson og Þórður Harðarson ásamt fleirum sem voru brimbrjótar og skólinn var að breytast í þá vísindastofnun sem hann hefur orðið síðan. Fyrstu tvö til þrjú árin eftir að ég kom heim döluðu vísindarannsóknir mínar verulega, en þess í stað varð ég mjög virkur sem klíníker og skurðlæknir. Það var svo í árslok 1992, þegar ég var að taka saman skýrslu um ritstörf mín á árinu vegna háskólakennslunnar, að ég vaknaði upp við þann vonda draum að ég hafði eiginlega eingöngu skrifað greinar í Morgunblaðið allt það ár." Einar leggur þó áherslu á að þetta hafi verið mjög skemmtilegur og athafnasamur tími, árin eftir að hann kom heim. „Eg naut þess mjög að stunda augnlækningar og taka þátt í að byggja upp kennslu við læknadeildina og það má segja að ég hafi á vissan hátt gleymt mér við þau störf þar til að ég rankaði við mér þama í árslok 1992 og spurði sjálfan mig hvað orðið hefði um vísindamanninn. Þá tók við skemmtilegur tími sem stendur enn. Hér voru aðstæður þó allt aðrar en ég hafði vanist í Bandaríkjunum. Hér var engin aðstaða til að stunda dýratilraunir svo við fórum út í annars konar rann- sóknir. Við hófum að rannsaka skimun í sykursýki, en ísland hafði verið eitt fyrsta landið til að taka upp reglulega skimun við augnsjúkdómum af völdum sykursýki árið 1980 undir stjórn Þóris Helgasonar sykursýkilæknis ásamt Guð- mundi Bjömssyni prófessor og Frið- bert Jónassyni. Við fórum sem sagt að rannsaka árangur þessarar skim- unar en ásamt mér var ungur læknir, Jóhannes Kári Kristinsson, sem skrifaði doktorsritgerð sína um þetta efni undir minni handleiðslu. Við fundum það út að blinda vegna sykursýki hafði minnkað næstum því fimmfalt vegna þessara aðgerða. Um þetta skrifuðum við nokkrar merkar greinar sem urðu síðan til þess að fleiri lönd tóku upp skimun með sama sniði. Blinda vegna sykursýki er næstalgengasta orsök blindu í heiminum og víða um lönd er þetta algengasta ástæða þess að fólk á vinnualdri tapar sjón. Þetta er því gríðarlega alvarlegur augnsjúkdómur og það sýnir sig að ef þessar slæmu breytingar eru greindar tímanlega og meðhöndlaðar tímanlega með leisi- geislatækni er hægt að draga allt að því fimmfalt úr hættunni á því að fólk verði blint. Lykillinn að þessum árangri er að greina hættulegu breytingamar áður en sjúklingurinn fer að tapa sjón, og eina leiðin til þess að finna sjúk- dóminn áður en sjúklingurinn veit af honum sjálfur er með reglulegri skoðun. Þetta hefur verið að breiðast út um lönd og við höfum unnið markvisst að því að kynna árangurinn af þessu fyrirbyggjandi starfi. í framhaldi 372 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.