Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 30
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Vinnuálagið, vinnuaðstaðan og kjörin Nú á vordögum lét Læknafélagið gera könnun meðal almennra lækna. Meta átti ánægju með þær breytingar sem gerðar voru á vaktafyrirkomulagi þeirra á Landspítalanum. Deila um vinnu- fyrirkomulag milli almennra lækna og Landspítalans um páskaleytið 2010 fór væntanlega ekki framhjá neinum. Það mál leystist með þeim hætti að nefnd var sett á laggirnar, skipuð fulltrúum spítalans og almennra lækna, sem vann að breytingum á vaktafyrirkomulaginu. Niðurstaðan varð sú að ekki voru gerðar vaktabreytingar á nokkrum svið- um innan spítalans, en annars staðar tóku ný vaktakerfi gildi á fyrstu mán- uðum þessa árs. Það verður að teljast jákvætt að meirihluti þeirra sem tóku þátt í könn- uninni vildu heldur vinna í því kerfi sem nú er við lýði en því vaktakerfi sem var í gangi fyrir breytingar. Einhver atriði hafa því greinilega verið færð til betri vegar með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á vaktafyrirkomulaginu á þessu ári. Þó eru þrjú atriði í niður- stöðum könnunarinnar sem virðast uppspretta starfsóánægju almennra lækna. Þessi þrjú atriði eru vinnuálagið, vinnuaðstaðan og kjörin. Vinnuálag lækna hefur löngum verið mikið og ekki hefur það lagast með fækkun lækna síðustu ár. í könnuninni kom fram að 47,2% aðspurðra mátu vinnuálagið of mikið við hættumörk meðan einungis 10,4% töldu það hæfi- legt. Margir nefna að dagvinnan dugi ekki til að ljúka við þau störf sem þarf að inna af hendi og um fjórðungur segist vinna oftar en þrjá daga í viku 426 LÆKNAblaðið 2011/97 lengur en 30 mínútur umfram um- saminn vinnutíma. Víða er ekki gert ráð fyrir tíma í pappírsvinnu í skipulagi vinnuvikunnar og algengt er að einungis einn almennur læknir eða kandídat sinni nú teymum í dagvinnu sem fyrir nokkrum árum var jafnan sinnt af tveimur. Einnig er minni tími í kennslu og fræðastarf og oft gefst fólki ekki færi á að komast frá störfum sínum á deildinni til að mæta í fyrirlestra, greinafundi eða annað skipulagt kennsluprógramm. Ahyggjur flestra lækna snúa að því að geta ekki sinnt sjúklingunum sínum eins vel og þeir óska. Hætta á mistökum eða yfirsjón eykst með auknu álagi og tíminn til að sinna hverjum sjúklingi styttist. Lengd vinnuvikunnar og fjöldi unninna vakta í mánuði er víða mjög mikill. Flestir vilja hafa val um hve margar helgar- og kvöldvaktir þeir vinna en eins og staðan er í dag hafa læknar enga stjórn á því. Vaktabyrði sveiflast gjarnan mikið eftir því hvernig mönnunarmál standa og getur það verið æði misjafnt meðal almennra lækna. Vinnuaðstaða spilar stórt hlutverk í starfsánægju fólks og víða má bæta starfsánægjuna með einföldum úrbótum á vinnuaðstöðu. Á flestum sviðum spítalans er búningsaðstaðan léleg, enginn aðgangur að sturtu eða læstum skápum og ókynjaskiptir klefar. Víða á deildunum hafa deildarlæknar ekki sérstaka vinnuaðstöðu, sem þó er þörf á. Aðgangur lækna að tölvum er háður því að aðrir séu ekki að nota þær, auk þess sem tölvurnar og tölvukerfin eru oft hægvirk. Eina aðstaðan til deildarvinnu og læknabréfaskrifa er gjarnan inni á vaktinni þar sem eilífur erill er, fólk að koma og fara, rapport, símhringingar, mónitorar að pípa og fólk að spjalla. Við slíkar aðstæður getur oft reynst erfitt að vinna hratt og vel þegar þess er þörf. Þriðja atriðið sem nefnt var í könn- uninni eru kjörin. Almennt þykja grunn- launin of lág og ekki í nokkru samræmi við laun annarra stétta, það mikla nám sem er að baki, vinnuálag og þá ábyrgð sem á herðum lækna hvílir. Til viðbótar hefur yfirvinna ekki verið greidd, regl- ur varðandi námsferðir verið hertar, lögbundin vinnutíma- og hvíldarákvæði reglulega verið brotin án þess að frí- tökuréttur sem á að koma á móti safnist upp eða að fólk geti leyst hann út. Allt þetta leggst á eitt við að skapa óánægju og þá tilfinningu að starfið sé ekki metið að verðleikum. Óánægja er ekki bara bundin við almenna lækna og mikið áhyggjuefni er hve erfitt er orðið að fá lækna til baka úr sérnámi til starfa á Islandi. Þegar upplifun lækna af vinnuumhverfi sínu og kjörum hér á landi er eins og hér er lýst, er í sjálfu sér ekki skrýtið að hugurinn stefni ekki heim að sérnámi loknu. Lítil skref hafa verið stigin í rétta átt, svo sem átakið Virðum vinnutímann sem FAL hrinti af stað á vormánuðum. Þar er leitast við að minnka ólaunaða yfirvinnu innan Landspítalans. Því miður hafa jafnmörg, ef ekki fleiri, skref verið stigin í ranga átt í nafni sparnaðar og hagræðingar. Tími er kominn til að stjórnendur og yfirvöld opni augun og bregðist við þessari óheillavænlegu þróun því brýnt er orðið að bæta kjör og vinnuumhverfi lækna. Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir formaður Valgerður Á. Rúnarsdóttir varaformaður Sigurveig Pétursdóttir gjaidkeri Anna K. Jóhannsdóttir ritari Ágúst Örn Sverrisson Árdís Björk Ármannsdóttir Orri Þór Ormarsson Ragnar Victor Gunnarsson Þórey Steinarsdóttir i pistlunum Úr penna stjórnarmanna U birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.