Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 27

Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 27
Ú R SÖGU LÆKNISFRÆÐINNAR uppgötvana Louis Pasteurs á bakteríum.11 Þegar sú grein birtist var Stadfeldt hins vegar einn þeirra allra fyrstu sem hóf að nota aðferðir Listers í fæðingafræðinni, með miklum árangri. Hann áttaði sig á að barnsfarasóttin var sama eðlis og sárasýkingar og að sömu aðferðir þyrfti að nota. Hann varð þannig áhrifamikill brautryðjandi í Danmörku og á Norðurlöndum varðandi barnafarasótt og sóttvamir á fæðingadeildum þótt hann væri ekki sá allrafyrsti til að nota aðferðir Semmelweiss og Listers, meðal annars aðeins á eftir fyrrum keppinauti sínum í Kaupmannahöfn, Frantz Howitz. Stadfeldt var gætinn og ekki var auðhlaupið að því að ganga gegn kenningum sér eldri manna án góðra gagna. I þá daga sömdu menn, lásu upp og lögðu fram greinargerðir á fundum lærðra manna (á ensku „to read a paper") og það gerði hann á þingi í Brussel 1876, þegar hann skýrði í ýtarlegu erindi á frönsku frá niðurstöðum 25 ára uppgjörs um fæðingar í Kaupmannahöfn þar sem hann kom með nýjar kenningar um forvarnir vegna barnsfarasóttar. Þetta vakti verðskuldaða athygli og átti hvarvetna þátt f hröðum breytingum til batnaðar. Áhrif sóttvarnanna voru „vidunderlig" að hans eigin mati. Árið 1890 gat hann skrifað í ársskýrslu spítalans að engin kona hefði látist úr barnsfarasótt meðal 1500 fæðandi kvenna á deildinni, en tók fram að slíkt gæti verið tilviljun („skyldtes vel tildels et Held"), sem reyndar var, þó slík dauðsföll yrðu nú óalgeng. Mynd 1. Asger Snebjom Nicolai Stadfeldt, 1830-96, prófessor og forstöðulæknir fæðinga- og barnadeildanna á Friðriksspítala í Kaupmannahöfn, 1866-96. Myndfrá yngri árum, með leyfi frá Medicinsk Museion, Kaupmannahöfn. loftbærni- eða miasmakenningunni og ekki Semmelweiss) varð Stadfeldt yfirlæknir smábarnadeildarinnar (Pleye Stiftelse for de Nye Fadde Born) sem hafði verið stofnuð í næsta húsi við fæðingadeildina og ári síðar var honum veitt lektorsstaða í faginu „fæðingahjálp, kvensjúkdómafræði og barnalæknisfræði", 37 ára gömlum. Ári eftir það varð hann hlutskarpari hinum álíka hæfa Frantz Howitz í umsókn um prófessorsstöðuna og meðfylgjandi forstöðulæknisstöðu hinna sameinuðu fæðinga- og nýburastofnana1 og var endanlega skipaður 1869.5-6-8 Asger Stadfeldt varð mikilvirkur og virtur læknir.6 Kennslubók í ljósmóðurfræðum eftir Stadfeldt kom út 1870 og var endurbætt tvisvar. Bók um misræmi milli fósturs og grindar (De Mekaniske Misforhold under Fodselen), kennslubók um hvernig ætti að höndla afbrigðilegar fæðingar, kom út 1873. Jón Hjaltalín var þá landlæknir í Reykjavík og Gísli Hjálmarsson, vinur Jóns Sigurðssonar, var aðstoðarlæknir Hjaltalíns. Þeir höfðu gert fyrsta keisaraskurðinn á íslandi 1865 í moldarkofa í Þingholtunum,10 áður en Joseph Lister birti grein sína um sóttvarnaaðgerðir 1867 á grunni Eitt það fyrsta sem honum tókst að gera sem yfirmanni fæðingastofnunarinnar á Friðriksspítala var að opna þar göngudeild fyrir konur með kvensjúkdóma árið 1870, þó innlagnadeild fyrir kvensjúkdóma yrði ekki að veruleika fyrr en stuttu fyrir lát hans.6-8 Hann vildi sameina fæðingarhjálp og kvensjúkdóma, en það tókst ekki vel vegna þess hve allar aðstæður voru frumstæðar og lélegar á þessum gamla spítala. Þama niður undir Amalíuborgarhöll kóngsins var meginspítali Kaupmannahafnar og Danmerkur í nær 160 ár fram að opnun Ríkisspítalans 1910. Svo til allir danskir og velflestir íslenskir læknakandídatar lærðu þar að gera ytri og innri vendingar, að draga niður bamið og leggja tangir, auk hinna mikilvægu sóttvama. Þetta vom meginatriðin fyrir lækna að kunna í fæðingarhjálp. Þar lærðu íslenskir læknanemar við Kaupmannahafnarháskóla (alls um 25 á starfstíma Stadfeldts) sín verklegu fræði og sóttu fyrirlestra, og þangað fóru útskrifaðir kandídatar frá landlæknum (útskriftaleyfi veitt 1862) og Læknaskólanum í Reykjavík (stofnaður 1876) til að sækja sér reynslu og þekkingu um fæðingarhjálp og með tímanum kvensjúkdóma.12' 13 Frá 1849 hafði dönskum læknum verið gert að skyldu að starfa um tíma á fæðingastofnuninni í Kaupmannahöfn áður en þeir mættu hjálpa konum í bamsnauð og sama skilyrði var áréttað árið 1871 fyrir lækna sem útskrifuðust á Islandi. Fararstyrkur fékkst til þessa.12 Alls störfuðu 19 danskir læknar á 19. öld á íslandi en allir nema þrír voru í læknadeild Kaupmannahafnarháskóla fyrir tíma Stadfeldts sem prófessors. Þeir sem gætu hafa þekkt hann best, auk Jóns Hjaltalíns landlæknis (sem var þekktur maður í Danmörku vegna vatns- og baðlækninga), Gísla Hjálmarssonar og Jónasar Jónassens landlæknis, voru Hans Jacob Georg Schierbeck, landlæknir og Peter Anton Schleisner sem rannsakaði ginklofann Kfij. KGF FfiöTOSRAFH GEÖRG F. HAHSFJaCOVP. LÆKNAblaðið 2011/97 423
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.