Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN Háskóli íslands - hugleiðingar eftir heila öld Sigurður Guðmundsson forseti heílbrigðisvísindasviðs Háskóla islands siggudm@hi.is Háskóli íslands er 100 ára á þessu ári. Það er ekki langur tími í lífi háskóla, en skólanum hefur vissulega vaxið fiskur um hrygg á þessum tíma. Fyrsta veturinn stunduðu 45 stúdentar þar nám, nú eru þeir um 14.000. Skólinn hefur vaxið úr andarunga, í sjálfu sér ekki ljótum, í fullfleyga álft á þessum tíma. Langur aðdragandi var að stofnun hans, fyrsta tillagan um tilurð háskóla var lögð fram á Alþingi 1881 og síðan fylgdu allmargar slíkar í kjölfarið sem annaðhvort dagaði uppi eða náðu ekki fram að ganga. Þrautseigju aldamótakynslóðarinnar hinnar fyrri var hins vegar viðbrugðið og skólinn leit dagsins ljós 1911. Skólinn hefur á þessum tíma breyst úr skóla sem menntaði fólk sem samfélagið þurfti á að halda, lækna, lögfræðinga, presta, í öflugan og víðtækan skóla sem leggur áherslu á mikinn fjölda fræði- greina. Hann er einnig orðinn það sem prýðir mikilvirka háskóla, altæk rann- sóknastofnun. Árangur Islendinga á sviði vísindarannsókna er með nokkrum ólík- indum; þegar horft er til tilvitnana í greinar í alþjóðlegum tímaritum á svið líf- og heilbrigðisvísinda eru þær í efsta sæti meðal þjóða OECD. Hér vegur hlutur starfsmanna Háskóla íslands og samstarfsstofnana hans þyngst. Við Islendingar erum miklir meist- arar í því að hreykja okkur af ýmsum afrekum misstórum, en einhvern veginn hefur þjóðinni yfirsést þetta, lítið er um þetta fjallað í umræðu dagsins. Skilur þjóð- in kannski ekki mikilvægi þessa, eða hvað? Við vitum líka að íslenskir háskóla- stúdentar standa sig yfirleitt vel þegar þeir hleypa heimdraganum og leita á önnur mið til frekara náms við erlenda háskóla og stofnanir. Þeir standa sig vel á alþjóðlegum prófum og er skemmst að minnast mjög góðrar frammistöðu íslenskra læknanema á prófi, Comprehensive Clinical Science Examination (CCSE), sem þorri banda- rískra læknanema tekur og stendur okkar fólk kollegum sínum vestanhafs fyllilega á sporði. Þessi árangur er um margt merkilegur fyrir svo litla þjóð, en ekki síst í ljósi þess að í alþjóðlegum samanburði er Háskóli íslands ódýr skóli, mjög ódýr. Samkvæmt nýlegu yfirliti frá OECD, Education-at-a- Glance 2010, er hlutfallslega mun minna fé sett í háskólamenntun hér en í flestum nálægum löndum, og munur á kostnaði við nema í grunnskóla og háskóla nær enginn, en tvö- til þrefaldur í ýmsum náiægum löndum. Hér getum við því státað af góðum skóla sem kostar samfélagið lítið. En er það æskilegt til framtíðar og hvar liggja þolmörkin? Er víst að sá eldmóður og kraftur starfsmanna skólans sem býr að baki þessum merkilega árangri haldist til eilífðar að öllu óbreyttu? Við höfðum ekki úr ýkja háum söðli að detta fjárhagslega þegar kreppan skall á okkur haustið 2008. Niðurskurður á fjár- framlögum til HÍ hefur lauslega áætlað numið um 20% frá þeim tíma. Að því hlýtur að koma að gæði starfsins bíði hnekki, og óttumst við að sú stund sé upp runnin. Þetta lýtur bæði að kennslu og rannsóknum við skólann. Ekki má gleyma að lokapróf úr nær öllum deildum heilbrigðisvísinda er ígildi starfsleyfis, mikið er því í húfi að gæði náms séu ekki skert. Jafnframt er íhugunarefni hve hugmyndir um samstarf eða sameiningu tveggja stærstu háskólanna hér, HÍ og HR, fá lítinn hljómgrunn, en sú gjörð væri líklega einfaldasta og öflugasta leiðin til að mæta þeirri skerðingu fjár- framlaga sem háskólastarf hér býr við. Þetta hefur lítið hreyft við þjóðarsálinni. Unnt væri að spyrja, hvaða hæðum gætum við náð, ef háskólinn sæti að þessu leyti við sama borð og skólar í nálægum löndum? Ber núverandi aldamótakynslóð ef til vill ekki sama hug til menntunar og vísinda eins og aldamótakynslóðin hin fyrri gerði? Hefur okkur sem störfum að menntun ekki tekist að koma mikilvægi háskólamenntunar og vísinda nægilega vel áleiðis? Drukkna raddir okkar í sí- bylju daganna? Þetta meinta afskipta- og áhugaleysi kemur þó ekki fram hjá unga fólkinu, aðsókn að háskólanum hefur aldrei verið jafnmikil og nú. Nú er ýmislegt sem bendir til að kreppunni ljúki senn, miklu skiptir að samfélagið komi sér saman um hvernig við ætlum að byggja okkur upp að nýju. Efling menntunar og vísinda er ljóslega eitt af forgangsmálum þar. Því er sér- stakt ánægjuefni að ríkisstjórnin færði nýverið háskólanum 150 milljónir króna í afmælisgjöf, sem nýtast munu til eflingar rannsókna og kennslu í samræmi við nýsamþykkta stefnu skólans. Sé þetta vísbending um að samfélagið og stjórnvöld vilji sækja fram og efla Háskóla Islands sem homstein og rekakkeri íslenskrar háskólamenntunar væru fáar gjafir skólan- um kærkomnari. Hér er verk að vinna fyrir stjórnvöld og tilefnið ærið. University of lceland - on crossroads at it's centennial Dean of School of Health Sciences University of lceland LÆKNAblaðiö 2011/97 403
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.