Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 18
RANNSÓKN
Mynd 1. Staðsetning veðurstöðvar og sólarnema.
Gögnin voru síðan flutt í töflureikninn Excel sem notaður
var við úrvinnslu og línuritagerð.
1.4.2010 l.S.2010 1.6.2010 1.7.2010 1.8.2010 1.9.2010
Dagsetning
Mynd 2. ÚF-stuðull <UV-index) sumarið 2010.
Niðurstöður
A mynd 2 má sjá UF-stuðul yfir sumarmánuðina árið 2010. Flesta
daga fer ÚF-stuðullinn yfir þrjá. Þannig fór ÚF-stuðull yfir þrjá,
21 dag í maí, 26 daga í júní, 26 daga í júlí, 23 daga í ágúst,
en einungis tvo daga í september.. Hæsta gildi mældist 18. júni
2010 kl. 13.25, og reyndist vera 7,3.
Á mynd 3 má sjá línurit yfir fjölda staðlaða roðavaldandi
skammta á klukkustund nokkra heiðskíra daga sumarið 2010.
Valinn var einn heiðskír dagur í hverjum mánuði. Reynt var
að velja dag sem næst miðjum mánuði, en það tókst ekki alltaf
vegna þess að miðað var við sólríka heiðskíra daga.
Nánari upplýsingar má síðan sjá í töflu I, fyrir tímabilið apríl
til september 2010.
Þar sem niðurstöður á mælingum á roðavaldandi geislum hafa
ekki verið birtar áður hérlendis, er áhugavert að bera mælingar á
íslandi við staði erlendis á svipaðri breiddargráðu. Þrándheimur
í Noregi liggur á nánast sömu breiddargáðu, er nálægt sjó og
er í svipaðri hæð og Skorradalur og varð því fyrir valinu.10
Niðurstöður þessa samanburðar má sjá í töflu II. Þar má sjá
meðaltal ÚF-stuðuls, fjölda daga sem stuðullinn er hærri en þrír,
fjölda daga þar sem hann er hærri en fimm og hæsta gildi sem
mældist í hverjum mánuði.
Tafla I. Niðurstöður mælinga á roðavaldandi geislum i Skorradal sumarið 2010.
I fyrsta dálki er meðalgildi staðlaðra roðaskammta (SRS, SED), í næsta dálki há-
og lággildi, síðan er talinn fjöldi daga þar sem fjöldi SRS (SED) er 20 eða meira.
Öll gildi eru brotin niður eftir mánuðum.
Mánuður SRS (SED) Meðalgildi á dag SRS (SED) Há- og lággildi Fjöldi daga þar sem SRS (SED) fer yfir 20
Apríl 7,2 1,6-19,2 0
Maí 15,5 6,1 -27,1 9
Júní 20,3 8,9 - 32,2 15
Júlí 17,5 3,8 - 30,0 11
Ágúst 14,1 6,4 - 23,5 6
September 5,3 1,3-11,6 0
Umræður
Hér eru birtar fyrstu niðurstöður á mælingum á roðavaldandi
geislum á íslandi. Sólargeislar hérlendis hafa oft verið taldir
veikir í samanburði við önnur lönd. Sú fullyrðing hefur þó ekki
verið byggð á gögnum. Gísli heitinn Jónsson prófessor var mikill
áhugamaður um mælingar á útfjólubláum geislum hérlendis og
tengsl þeirra við húðkrabbamein. í kringum 1995 hófu hann
og samstarfsmenn hans mælingar á útfjólubláum geislum í
Reykjavík með rófgreini (spectrometer). Ekki mun hafa verið um
samfelldar mælingar að ræða. Þær mælingar tóku ekki tillit til
mismunandi áhrifa geisla á húðina eftir bylgjulengd og eru því
ekki samanburðarhæfar við núverandi niðurstöður. Frumgögnin
munu vera til (upplýsingar: Ragnar Sigbjörnsson prófessor, janúar
2011). Það er verðugt verkefni að reikna ÚF-stuðul út frá þeim
gögnum.
Þær niðurstöður sem hér eru birtar benda til að styrkur
roðavaldandi geisla sé hár hér á landi að sumarlagi. Mikilvægt
er að slíkar upplýsingar séu aðgenglegar almenningi, læknum
og vísindamönnum. Birting ÚF-stuðuls gagnast til þess að miðla
upplýsingum til almennings um styrk útfjólublárra geisla, hvenær
skuli nota sólvörn og hvenær sé æskilegt að forðast sólina. Má
nefna sem dæmi að notkun sólvarnarkrema er ráðlögð þegar ÚF-
stuðull er hærri en þrír. Einnig eru upplýsingar um ÚF-stuðul og
magn roðavaldandi geisla mikilvægar til að skýra hvort tengsl
séu við aukningu húðkrabbameina sem hefur sést hérlendis á
undanfömum árum.
Þrándheimur í Noregi er á svipaðri breiddargráðu og Skorra-
dalur. ÚF-stuðull ætti að vera svipaður á þessum stöðum. Þó þarf
að taka tillit til breytileika í veðurfari, staðbundinna aðstæðna
og þykkt ósonlagsins.
Þegar meðalgildi ÚF-stuðuls hvers mánaðar eru borin saman
eru niðurstöður mjög sambærilegar í Skorradal og Þrándheimi.
Fjöldi daga þar sem ÚF-stuðull mælist þrír eða hærri er einnig
mjög sambærilegur á báðum stöðum. Þegar dagar þar sem ÚF-
stuðull mælist fimm eða hærri eru skoðaðir, eru niðurstöður mjög
sambærilegar, nema í júní, en þar sker Skorradalur sig úr (16
dagar miðað við einn í Þrándheimi). Sama gildir um hæstu gildi
hvers mánaðar, en þar hefur Skorradalur greinilega vinninginn
414 LÆKNAblaðið 2011/97