Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 42
LANDSPÍTALI
Öldrunarlækningar
Sérfræðilæknir í geðlækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í geðlækningum með aðsetur á Landakoti. Um er að ræða uppbyggingar- og þróunarstarf í
öldrunargeðlækningum. Náin samvinna er við öldrunarlækna.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Sérhæfð geðlæknisþjónusta við eldra fólk, sem flest hefur
llkamlega sjúkdóma jafnframt
» Göngudeildarþjónusta eftir tilvísun frá læknum eða öðru
heilbrigðisstarfsfólki, þar sem unnið er í teymisvinnu með
hjúkrunarfræðingi og sálfræðingi
» Ráðgjafaþjónusta fyrir inniliggjandi sjúklinga á
öldrunarlækningadeild
Hæfnikröfur
» Sérfræðiviðurkenning í geðlækningum
» Áhugi á öldrunargeðlækningum
» Hæfni og lipurð í samskiptum
Sérfræðilæknir í lyflækningum
Laust er til umsóknar afleysingastarf sérfræðilæknis í lyflækningum á öldrunarlækningadeildum. Starfið veitist til eins árs eða skemur með
möguleika á framlengingu. Starfsvettvangur er á Landakoti og eru vaktir þar.
Helstu verkefni og ábyrgð Hæfnikröfur
Starfið á deildunum felur m.a. I sér teymisvinnu með öðrum » Sérfræðiviðurkenning I lyflækningum en læknir með mikla
starfstéttum og sérgreinum spítalans. Leitast er við að hafa samfellu I reynslu í lyflækningum eða skyldum greinum kemur einnig til
meðferð sjúklinga. greina
» Hæfni og lipurð í samskiptum
Deildarlæknir í öldrunarlækningum
Laust er til umsóknar starf deildarlæknis í öldrunarlækningum. Um er að ræða námsstöðu sem veitist til eins árs en möguleiki er á skemmri
ráðningu. Starfið er kjörið til sérnáms í öldrunarlækningum, heimilislækningum, lyflækningum og fleiri greinum. Starfsvettvangur er á
Landakoti og í Fossvogi. Vaktir eru á Landakoti. Einnig getur staðan verið góð endurmenntunarstaða fyrir starfandi heimilislækna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarlæknir hlýtur þjálfun og reynslu á öllum sviðum
öldrunarlækninga, við greiningu og meðferð á hinum ýmsu
öldrunarlækningadeildum, svo sem bráðaöldrunarlækningadeild,
öldrunarlækningadeildum með áherslu á endurhæfingu, auk
dagdeildar, göngudeildar og starfi á hjúkrunarheimilum.
Hæfnikröfur
» Almennt lækningaleyfi
» íslenskukunnátta
» Hæfni og lipurð í samskiptum
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 23.07.2011.
» Starfshlutfall er 100% en varðandi sérfræðilæknastarf þá kemur hlutastarf til álita.
» Störfin veitast frá og með 1. september 2011 eða eftir samkomulagi.
» Umsókn um starf sérfræðilæknis fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
ásamt sérprentun eða Ijósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat stöðunefndar læknaráðs Landspltala byggist á
innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim.
» Umsókn um starf deildarlæknis fylgi náms- og starfsferilskrá.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast, í tvlriti, til Pálma V. Jónssonar, yfirlæknis, K4 öldrunarlækningar Landakoti.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. yfirlýsingu LSH vegna
kjarasamnings sjúkrahúslækna dags. 2. mal 2002, sbr. breytingu 5. mars 2006 . Sótt er um starf rafrænt á heimasíðu Landspltala, www.landspitali.is, undir „laus
störf". Ef ekki eru tök á að sækja um rafrænt má nálgast umsóknareyðublöð I upplýsingum Fossvogi og Hringbraut og hjá mannauðssviði, Eiríksgötu 5. Tekið er mið
af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspitala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
438 LÆKNAblaðið 2011/97