Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 32

Læknablaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 32
UMFJÖLLUN O G GREINAR Miðlæg lyfjaskrá á landsvísu er lykilatriði Samkvæmt tölum síðasta ársfrá sjúkrahúsinu Vogi sprauta níu afhverjum tíu sprautufíklum sig með rítalíni. Tillögur um úrbætur liggja fyrir Páll Matthíasson framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala rakti tillögur nefndar sem hann sat í ásamt landlækni og Kristni Tómassyni. Nefndin skilaði ítarlegum tillögum til velferðarráðherra í janúar á þessu ári um hvemig mætti taka á þessum vanda sem öllum sem vita vildu hafði verið ljós um þó nokkurt skeið. A málþingi um ADHD og rítalínnotkun fullorðinna á Læknadögum í janúar gerði Páll ennfremur grein fyrir tillögunum. Samkvæmt upplýsingum Lækmblaðsins hefur fátt gerst síðan nefndin skilaði tillögum sínum. Fyrr en nú. Og má þá velta fyrir sér hvort faglegar ráðleggingar eru léttvægari þegar kemur að viðbrögðum embættis- og stjórnmálamanna en óþægileg vakningarumræða á vettvangi landsfjölmiðla. Umræða undanfarinna vikna virðist hafa verið sú vakning sem þurfti til að vekja þessa aðila af doðanum og fá þá til að veita fjármunum til þess brýna verkefnis að stemma stigu við misnotkun metýlfenídatlyfja. A málþinginu um rétt fullorðinna til ADHD-meðferðar á Læknadögum kom skýrt fram sú afstaða hjá Tómasi Zoéga geðlækni að Embætti landlæknis þurfi að nýta lyfjagagnagrunn sinn og þau lagaúrræði sem embættið hefur til að sinna eftirliti með ávísunum ávanalyfja. Það má því heita merkilegt að læknar sem unnið hafa ötullega að því að vekja athygli á vandanum og koma með tillögur til úrbóta hafa á umliðnum mánuðum beint og óbeint verið sakaðir um að þeir hafi ekki brugðist við vandanum og eigi jafnvel beinlínis sök á honum. Þar hafa læknar orðið fyrir barðinu á gagnrýni sem ætti ekki síður að beinast að meingölluðu lyfjaskráningarkerfi og sundurlausri rafrænni sjúkraskráningu sem læknar hafa um árabil óskað eftir að yrði samræmd á landsvísu. En án fjármuna og pólítísks vilja verða engar úrbætur gerðar á gagnagrunnum og rafrænni sjúkraskrá þrátt fyrir fögur orð. ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Viðar Om Eðvarðsson sérfræðingur í bamalækningum hefur á undanfömum missemm unnið með starfsfólki Upp- lýsingatæknideildar Landspítalans að málefnum rafrænnar sjúkraskrár. Hann segir stöðu rafrænnar lyfjaumsýslu á Islandi óviðunandi, bæði innan og utan Landspítala, og allt of lítið hafa breyst síðustu árin ef frá er tal- in rafræn ávísun skráðra sérlyfja sem nýlega er til komin. Viðar segir að miðlæg lyfjaskrá sjúklings, með upplýsingum um þau lyf sem sjúkl- ingurinn tekur á hverjum tíma, lyfjasögu sjúklings og yfirliti yfir óinnleysta lyfseðla sé nauðsynleg til að læknar geti haft nauðsynlega yfirsýn og veitt rétta og markvissa meðferð í öllum tilfellum. Nauðsynlegt er að miðlæg lyfjaskrá verði hluti af rafrænni sjúkraskrá. „Mikilvægasta röksemdin fyrir miðlægri lyfjaskrá er öryggi sjúklingsins en einnig dregur slík skrá úr hættu á lyfjamisnotkun." segir Viðar. „Þar sem miðlæg lyfjaskrá sjúklings er ekki til, er hvergi til öruggt yfirlit um virk lyf sjúklings, lyfjasögu og lyfseðla. Þetta ástand leiðir því miður til rangra lyfjaávísana í einhverjum tilfellum og óþarfa lyfjanotkunar sem jafnvel er skaðleg fyrir viðkomandi, auk þess sem læknir getur ekki stöðvað lyfjameðferð sem hann veit ekki af." Viðar segir miðlæga lyfjaskrá þurfa að vera þannig útbúna að hún uppfærist sjálfkrafa í hvert sinn sem lyfseðlar eru innleystir eða lyfjabreytingar gerðar. „Þannig muni læknar geta séð strax hvaða lyf sjúklingurinn er að taka, hver lyfjasagan er og hvaða lyfseðlar hafa verið gefnir út á sjúklinginn og hverjir 428 LÆKNAblaðið 2011/97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.