Fréttatíminn - 19.12.2014, Síða 4
K onur og karlar hafa mjög ólíkar skoðanir á því hvern-ig fjármálaákvarðanir eru
teknar og það eru fyrst og fremst
atvinnutækifæri hvors kyns sem
ráða því hversu mikil áhrif hvor
aðili hefur á þessar ákvarðanir,“
segir Anna Varðardóttir, doktor í
hagfræði frá Stockholm School of
Economics. Arna var frummæl-
andi á málstofu hjá Seðlabanka
Íslands í gær, fimmtudag, um hvað
ræður því hvaða áhrif konur hafa
á fjármálaákvarðanir heimilis-
ins en þar fjallaði hún um hluta
af doktorsverkefni sínu og Tomas
Thörnqvist.
„Hingað til þegar fjallað er um
fjármálaákvarðanir er talað um
að heimilin geri þetta og hitt,
og þannig litið á heimilið sem
eina einingu. Við vildum skilja
hvernig þessar ákvarðanir eru
teknar og hvað ræður því að milli
heimila sem virðast svipuð eru
teknar gjörólíkar fjármálaákv-
arðanir. Svarið hlýtur að liggja
innan veggja heimilisins,“ segir
Arna. Þau Tomas fengu gögn frá
sænska ríkinu sem sýndu yfirlit
yfir alla fjármálagjörninga, eignir
og tekjur hjá sænsku þjóðinni yfir
sjö ára tímabil og skoðuðu hvernig
sveiflur í efnahagslífinu höfðu
áhrif á kynin. „Uppsveifla í bygg-
ingariðnaði hefur önnur áhrif á
karla en konur því það eru nánast
eingöngu karlar í byggingariðaði.
Slíkar sveiflur myndu þannig auka
ákvörðunarvald karla,“ segir hún.
Arna bendir á að það hafi
margoft verið sýnt fram á að konur
séu varfærnari í fjárfestingum en
karlmenn áhættusæknari. „Þetta
er munur sem hægt er að rekja
eingöngu til kyns. Þegar búið er að
leiðrétta fyrir menntun, tekjum og
eignum er samt þessi mikli kynja-
munur. Konur hafa einfaldlega
aðrar hugmyndir um hvernig á að
taka fjármálaákvarðanir. Þær fjár-
festa síður beint í hlutabréfum og
kjósa frekar að fjárfesta í sjóðum
og dreifa áhættunni,“ segir hún en
meðal þess sem fellur undir þessar
stóru fjármálaákvarðanir eru líf-
eyrissparnaður og fjárfestingar
vegna menntunar barna.
Ekki var lagt upp með það í
rannsókn þeirra að skoða hvort
kynið hefur meiri áhrif á ákvarð-
anatökuna heldur kortleggja hvað
hefur áhrif á hvort kynið stýrir
ákvarðanatökunni. „Það eru þeir
aðilar sem hafa betri atvinnu-
möguleika og fleiri tækifæri á
vinnumarkaði. Ef við berum
saman hjón þar sem maðurinn er
starfandi lögfræðingur og konan
heimavinnandi, og svo hjón þar
sem maðurinn er starfandi lög-
fræðingur en konan heimavinn-
andi menntaður lögfræðingur
þá hefði konan í seinna dæminu
meiri áhrif því hennar tækifæri
eru meiri og hún hefur meira vald
í samningaviðræðum um fjármála-
ákvarðanir,“ segir Arna.
Hún bendir á að konur hafi
allt aðra möguleika í dag en fyrir
nokkrum áratugum en sveiflur
í atvinnulífinu skipti máli. „Það
hefur verið bent á að það að eftir
hrun taki konur meiri þátt í ákvarð-
anatökunni og mínar niðurstöður
styðja þær kenningar. Það voru
frekar karllægar greinar sem urðu
fyrir barðinu á hruninu og ákvörð-
unarvald karla dróst þannig hlut-
fallslega saman,“ segir Arna.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminni.is
Fjölskylduband
Verð frá 34.000 kr.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Hvöss N-átt, v- og Nv til mEð sNjók.
éljum og skafrENNiNgi.
Höfuðborgarsvæðið: Él og
skafrenningur, en hiti um frostmark.
vErsNar þEgar líður á dagiNN, stormur
mEð sNjókomu og síðar rigNiNgu.
Höfuðborgarsvæðið: gengur í
sa-hvassviðri með hlákublota.
sNýst í sv-átt mEð éljum og
frystir smámsamaN aftur.
Höfuðborgarsvæðið: fremur
hæg sv-átt og Éljagangur .
skammvinn hláka, en síðan
meiri vetur
seinnipartinn á morgun, laugardag er von
á skilum lægðar úr suðvestri. hríðar-
veður til að byrja með upp úr hádegi, en
hlýnar ákveðið og fer fljótlega í slyddu
og rigningu. vatnsagi verður þá götum,
en stendur ekki lengi því
aftur kólnar á sunnudag með
éljaveðri. í komandi viku er
útlit fyrir að kólni ákveðið
og líkur á að mjög kalt
verði á landinu yfir jólahá-
tíðina.
0
-1 -4
-5
-1
-1
-3 -7 -8
-2
-1
-2 -1
-0
-0
Einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
viKan sem var
Costco í garðabæ
bandaríska verslunarkeðjan Costco ætlar að
opna fjórtán þúsund fermetra verslun við Kauptún í
garðabæ á næsta ári. Costco er þriðja stærsta smásölu-
keðja í heimi.
gunnar einars-
son, bæjarstjóri í
garðabæ, kveðst
himinlifandi með
komu Costco.
15
ár í röð hefur vladimír Pútín, forseti
rússlands, verið valinn maður ársins
þar í landi. Hann hlaut 68 prósent
atkvæða almennings í kosningu.
Strákarnir á sama stað
íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu
er í 33. sæti á styrkleikalista fifa á
lista sem gefinn var út í vikunni og
stendur í stað frá því í nóvember.
1.400
fjölskyldur hafa sótt um jólaaðstoð til
fjölskylduhjálpar íslands.
Hægt að samþykkja
í jólavikunni
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri
kveðst vonast til að hægt verði að opna
fyrir samþykki umsækjenda á höfuð-
stólslækkun íbúðalána um eða upp úr
helginni. áður var stefnt að því hægt
væri að samþykkja um miðjan þennan
mánuð.
Jónína kveðst hafa
verið beitt harðræði
Jón ína Bene dikts dótt ir var beitt harð-
ræði þegar hún var hand tek in vegna
gruns um ölv unar akst ur í nóv em ber í
fyrra, að sögn verjanda hennar. hún
var látin dúsa í fangaklefa í ellefu
klukkustundir án matar, að sögn
verjandans. Jónína áfrýjaði 30 daga
fangelsisdómi til Hæstaréttar.
anna varðardóttir, doktor í hagfræði
frá stockholm school of economics.
Fjármál Konur og Karlar haFa ólíKa sýn á FjármálaáKvarðanir
Ákvörðunarvald karla í
fjármálum dregist saman
atvinnutækifæri karla og kvenna hafa úrslitaáhrif á hversu mikil áhrif kynin hafa á fjármála-
ákvarðanir innan heimilisins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í doktorsverkefni Önnu
Varðardóttir sem hún kynnti á málstofu í Seðlabankanum. Hún segir konur mun varfærnari í
fjárfestingum en karla. Í efnahagshruninu fóru hefðbundin karlastörf verr út en kvenna og því
minnkaði ákvörðunarvald karla hlutfallslega þegar kemur að fjármálaákvörðunum heimilisins.
atvinnutækifæri og möguleikar hvors kyns skipta sköpum þegar kemur að því hvaða áhrif karlinn eða konan hafa á fjármála-
ákvarðanir innan heimilisins. NordicPhotos/Getty
4 fréttir Helgin 19.-21. desember 2014