Fréttatíminn - 19.12.2014, Side 34
E lma Stefanía Ágústsdóttir segir að hún hafi hrifist strax af Mikael Torfasyni
og geri enn. „Við giftum okkur á
aðfangadag 2011 og vorum búin
að vera saman í sirka sex mánuði,“
segir Elma og það er ekki laust við
að það komi smá blik í auga.
Var það bara rökrétt framhald?
„Já, já, við vorum alveg ákveðin,“
segir Elma og í þeim töluðu orð-
um kemur Mikael heim með fulla
poka af bakkelsi með kaffinu. „En
þetta gerðist vissulega mjög hratt
hjá okkur,“ heldur Elma áfram og
Mikael botnar: „Á Íslandi er samt
algengara að eignast börn fyrst og
gifta sig svo þegar búið er að kom-
ast að því að makinn sé ágætur til
undaneldis.“
Fórum saman í keilu
Þau Elma og Mikael eiga fjögur
börn samtals: „Það búa tvö börn
hjá okkur að staðaldri,“ útskýrir
Mikael en það eru þau Gabríel, 19
ára, elsti sonur Mikaels, og svo er
það hún Ísold sem er fimm ára.
Hana átti Elma þegar þau Mikael
kynntust. „Svo á ég hann Jóel, sem
er 8 ára, og Kristínu Unu, sem er
17 ára, en þau eru hjá okkur aðra
hvora helgi,“ segir Mikael.
Það er 12 ára aldursmunur á
þeim hjónum og var Elma 24 ára
þegar þau kynntust og Mikael 36
ára.
„Það pældi enginn í því hvað
hann væri gamall þegar við byrjuð-
um saman,“ segir Elma. „Kannski
finnst mörgum eitthvað til þess
koma en maður má ekki leggja
sig eftir slíku því þá getur maður
flækst í því, en maður situr auð
-vitað sjálfur uppi með lífið sitt á
endanum.“
Hvernig kynntust þið?
„Hvar kynnist fólk sem er ekki
Kaffibarnum um helgar?“ spyr
Mikael og glottir: „Það kynnist á
Facebook. Við könnuðumst aðeins
við hvort annað, eins og gengur,
og það var bara röð tilviljana sem
leiddi okkur saman. Við fórum að
tala saman og fórum í keilu, og þá
var þetta komið.“
„Hann segist hafa leyft mér að
vinna,“ skýtur Elma inn í.
Var Mikki svona áhugaverður?
„Já. Skemmtilegur, klár og gáf-
aður og svo var hann sætur, sem er
bónus. Svo hefur þetta þróast eins
og hjónabönd gera. Styrkst með
hverjum deginum og við erum fé-
lagar í listum og viðskiptum og auð-
vitað lífinu sjálfu. Það er mjög gott
að hafa einhvern sem skilur mína
vinnu. Það er ofboðslegur stuðn-
ingur að geta komið heim og fengið
endurspeglun sem er dýpri en hún
væri ef hann væri ekki rithöfundur
og leikskáld,“ segir Elma.
„Elma er náttúrulega miklu klár-
ari en ég,“ segir Mikael. „Hún hjálp-
aði mér ótrúlega mikið þegar ég var
að skrifa Harmsögu, sem hún lék
síðar í, bæði á Íslandi og í Banda-
ríkjunum. Ég var mjög „impóner-
aður“ af hennar hæfileikum þegar
ég kynntist henni,“ heldur Mikael
áfram og það er greinilegt að þau
eru bæði einstaklingar sem vita ná-
kvæmlega hvað þau vilja út úr lífinu.
Ritstjórinn erfiðari í sambúð
Mikael er þekktur fyrir að hafa
sterkar skoðanir á hlutunum og
hefur látið til sín taka sem blaða-
maður meðfram rithöfundarstarf-
inu. Hann var ritstjóri Fréttablaðs-
ins í 18 mánuði þangað þar til upp
úr sauð í lok sumars og hann hætti
skyndilega. Elma segir þó furðu
auðvelt að búa með honum.
„Það er mikill lúxus að búa með
Mikka,“ segir Elma.
„Er það ekki bæði og kannski?“
skýtur Mikael inn í og heldur
áfram: „Við höfum bæði átt sam-
band þar sem ég er rithöfundur, og
þá er ég hvers manns hugljúfi og
ágætur á heimilinu. Svo hef ég líka
verið ritstjóri og þá er maður undir
miklu meira álagi og er ekki eins
mikið að baka súrdeigsbrauð eða
elda kvöldmat handa leikkonunni,“
segir Mikael.
„Í dag er þetta allavega fullkom-
ið, heitur matur á kvöldin og Mikki
bakar brauð á morgnana og allir
vakna glaðir,“ segir Elma.
„Ég er hamingjusamastur sjálf-
ur sem rithöfundur,“ segir Mikael.
„Þó ég eigi eflaust eftir að taka
annan bardaga í fjölmiðlum ein-
hverntímann, þá er ég í eðli mínu
rithöfundur. Það er stóri draumur-
inn og nú er ég að lifa hann og geri
það í botn. Elma kenndi mér þá lífs-
skoðun að maður eigi aldrei gera
neitt nema ofboðslega vel,“ segir
Mikael.
„Gerðu allt sem þú gerir eins vel
og þú getur, og helst betur,“ segir
Elma.
„Og það er í öllu sem maður
gerir. Þetta er stórt mottó í okkar
heimilislífi,“ segir Mikael.
Tilbúin í Ástu Sóllilju
Elma Stefanía útskrifaðist sem
leikkona árið 2013 og var ráðin
strax við Þjóðleikhúsið. Fyrsta
hlutverkið sem hún fékk var í
verkinu Harmsögu, sem er eftir
Mikael. Eftir Harmsögu fylgdi
hlutverk í Eldrauninni eftir Arth-
ur Miller en Elma var tilnefnd til
Grímunnar fyrir það hlutverk. Í
vetur hefur Elma fengið mikið lof
fyrir frammistöðu sína í Konunni
við 1000 gráður, eftir Hallgrím
Helgason, og á annan í jólum verð-
ur jólaleikrit Þjóðleikhússins frum-
sýnt, sem í ár er Sjálfstætt fólk og
leikur Elma eina af ástsælustu
persónum íslenskrar bókmennta-
sögu, sjálfa Ástu Sóllilju.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég
vinn með Þorleifi Erni Arnarssyni
leikstjóra og það er mjög ánægju-
legt að vinna með honum,“ segir
Elma og bætir því við að þetta sé
mjög krefjandi verk. „Sjálfstætt
fólk hefur lifað með okkur lengi
og sem leikrit þá gerir það miklar
kröfur til leikaranna. Þorleifur er
líka þannig leikstjóri að hann fer
ótroðnar slóðir í sinni leikstjórn
þótt hann myndi kannski ekki
orða það þannig sjálfur. Hann hef-
ur sterka og ferska sýn sem leik-
stjóri og sögumaður,“ segir Elma
sem vonar að Sjálfstætt fólk skapi
umræðu enda eigi verkið sér vísan
Hjónin Mikael Torfason rithöfundur og Elma Stefanía Ágústsdóttir leikkona eru samtaka. Hvort
sem það er á heimilinu eða í list sinni. Mikael er nýkominn í þá aðstöðu að vera orðinn rit-
höfundur aftur, eftir að hafa unnið sem ritstjóri Fréttablaðsins. Elma mun leika hlutverk Ástu
Sóllilju í Sjálfstæðu fólki, jólasýningu Þjóðleikhússins í ár. Hún segir það vera sína stærstu
rullu hingað til og ferill hennar er svo sannarlega að komast á flug. Þau settust niður á fallegu
heimili sínu í vesturbæ Reykjavíkur og ræddu listir, fjölmiðla, pólitík og fjölskylduna og eru ekki
feimin við það að tjá sínar tilfinningar.
Fundu ástina á Facebook
Ljósmyndir/hari
framhlad á næstu opnu
34 viðtal Helgin 19.-21. desember 2014