Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.12.2014, Page 40

Fréttatíminn - 19.12.2014, Page 40
É g flutti til Svíþjóðar og við færðum okkur um set fyrir tveimur árum og fórum til Noregs,“ segir Ragnar Zolberg. Hann er rólyndisdrengur sem lítur út fyrir að vera rokkstjarna. Sem hann er. „Konan mín er skólastjóri í förðunarskóla í Noregi, en ég er mjög mikið í Svíþjóð, þar sem hljómsveitin sem ég er í er sænsk.“ Ragnar spilar með hljómsveitinni Pain of Salvation og hefur gert síðan 2012. „Upphaflega fluttum við út til Svíþjóðar því konan mín ætlaði í nám og hún á fjölskyldu í Svíþjóð. Við vorum orðin leið á því að moka skít hér heima, pökkuðum í bíl og drifum okkur í Norrænu,“ segir Ragnar. „Þegar ég var á leiðinni út fékk ég símtal frá Þýskalandi og var spurður hvort ég væri til í að leika í og gera tónlist fyrir Voda- fone auglýsingu þar, svo ég fór bara beint í það verkefni. Þar kynntist ég pródúser sem ég hef unnið mikið með síðan. Þetta verkefni borg- aði vel og gaf mér smá svigrúm, verandi nýfluttur til útlanda og ekki með neitt í hendi,“ segir Ragnar. „Ég notaði tækifærið og setti mér það markmið að semja 1-2 lög á hverjum degi. Tók svo upp jafn- óðum. Sum lögin voru mjög þreytt en ég leit á þetta sem æfingu frekar en eitthvað annað. Fyrir vikið er ég miklu betri lagasmiður í dag. Ann- að slagið hef ég svo leitað í þennan banka þegar ég er að semja, það er gott að eiga svona banka.“ „Í kjölfarið af þessu fór ég að vinna svolítið í Þýskalandi og komst á samning þar hjá Sony. Þeir vildu auðvitað gera poppmúsík en ég vildi það ekki svo þar við sat,“ segir Ragnar. „Ég hélt samt áfram að vinna með þessum pródúser og var fenginn til þess að spila einu sinni lagið úr auglýsingunni á ein- hverjum tónleikum. Á eftir mér voru Backstreet Boys og tugir þúsunda áhorfenda. Ég áttaði mig á því þá að þetta gaf mér nákvæm- lega ekki neitt,“ segir Ragnar. „Ég uppgötvaði það með sjálfan mig að þetta væri ekki það sem ég væri að leita að. Tjáningin er það sem skipt- ir mig máli, að ég geti tjáð mig í gegnum tónlistina. Það skiptir ekki máli hvort það eru 10 manns eða 10 þúsund manns. Bara ef fólkið á eitt- hvað sameiginlegt með tónlistinni sem ég er að spila. Það þarf ekkert endilega að vera mín eigin tónlist, en það verður að vera tenging.“ Svíar eru ekki mikið að knúsast Ragnar sendi frá sér tvær sóló- plötur í kjölfarið en hlutirnir áttu eftir að þróast í skemmtilega átt og allt út frá hugmynd eiginkonu Ragnars þegar hún var að leita að afmælisgjöf fyrir hann. „Konan mín er svo frábær. Hún ætlaði að gefa mér miða á tónleika í afmælis- gjöf og var að tékka á því hvort Pain Of Salvation væri eitthvað að spila, en hún er ein af mínum uppáhalds,“ segir Ragnar. „Hún sér á heimasíðu sveitarinnar að þeir voru að leita að gítarleikara og hún sendi inn umsókn í mínu nafni. Svo stuttu seinna hringir bara Daniel, söngv- ari sveitarinnar, í mig og vill fá mig til þess að koma í prufu. Það voru 150 sem sóttu um og 5 sem fengu að koma í prufu og ég var einn af þeim,“ segir Ragnar. „Ég fékk viku til þess að læra þrjú lög á meðan hinir fjórir voru búnir að hafa einhverjar vikur. Ég svaf þá bara aðeins minna í nokkra daga, æfði mig, fór í prufuna og fékk giggið. Einhverju seinna var ég að tala við eiginkonu söngvarans og hún sagði mér að ég hefði gefið honum knús þegar ég mætti, og hann hefði verið mjög hissa,“ segir Ragnar. „Svíar eru ekkert mikið að knúsast.“ Undanfarin tvö ár hefur Ragnar ferðast með Pain of Salvation um allan heim og spilað á fjölmörgum tónleikum og er eftirsótt tónleika- sveit. „Þetta eru allskonar tónleikar, allt frá 200 upp í mörg þúsund manna hús. Þetta er mín vinna í dag, en þetta er óregluleg vinna. Það er kannski túr í nokkrar vikur og svo er frí í nokkra mánuði. Þetta er hark eins og allt hitt. Bara aðeins öðruvísi. Þetta er allt hark, og ég held að maður geri sér enga grein fyrir því hvenær það hættir að vera hark,“ segir Ragnar. „Ég hef alltaf verið „underdog“ og ég held að mér eigi alltaf eftir að líða þannig. Lífið er helvítis hark,“ segir Ragnar brosandi. Of mikið hark og sukk Þegar Ragnar flutti út hafði hljóm- sveitin hans Sign átt velgengni að fagna bæði hér heima, sem og erlendis. Ragnar var samt kominn með mikla leið á því lífi sem því fylgdi. „Ég var orðinn rosalega þreyttur á því að gera þessa músík. Mig vantaði alveg bráðnauðsyn- lega að gera eitthvað annað,“ segir Ragnar. „Við vorum búnir að spila sömu lögin í langan tíma og ég var þreyttur. Það var bara mjög heil- brigt að breyta til, fyrir okkur alla. Sign var aðeins of mikið hark, og sukk,“ segir Ragnar. Sign hefur þó ekki verið alveg undir grænni torfu því á síðasta ári kom út platan Hermd. „Það er efni sem ég hafði átt fyrir og við fórum saman til Þýskalands að vinna hana. Þetta efni kallaði svo mikið á Sign að þetta gat ekki verið sólóplata frá mér, og ég var farinn að sakna Sign aðeins,“ segir Ragnar. „Ég er á því að til þess að Sign geti haldið áfram að spila sé nauðsynlegt að gera nýja músík. Það er pínu nostalgíustemning hjá fólki þegar það kemur á Sign tónleika, sem mér finnst pínu leiðinlegt. Það er samt nauðsynlegt að spila nýtt efni, í bland við gamalt stöff.“ Ragnar ætlar þó ekki að stoppa lengi á Íslandi því hann ætlar að halda jól heima í Noregi. „Við ætlum að hafa það bara mjög rólegt heima um jólin,“ segir Ragnar sem er kvæntur Sóleyju Ástudóttur förð- unarfræðingi og fyrir 6 mánuðum síðan eignuðust þau dóttur. Sóley átti tvö börn fyrir svo það er mikið að gera á stóru heimili. „Á næsta ári stendur til að vinna meira með þýska pródúsernum og byrja að taka upp nýja plötu með Pain Of Salvation. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Ég fékk viku til þess að læra þrjú lög á meðan hinir fjórir voru búnir að hafa einhverjar vikur. Ég svaf þá bara aðeins minna í nokkra daga, æfði mig, fór í prufuna og fékk giggið. Ljósmynd/Hari www.gjofsemgefur.is PIPAR\TBW A • SÍA • 133567 undir tré á Íslandi GEFÐU jólapakka Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis. Helgin 19.-21. desember 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.