Fréttatíminn - 19.12.2014, Qupperneq 48
Hátíðarnar á Ströndum
stjórnast af tíðarfari
Á Ströndum stjórnast hátíðarhald af veðurfari líkt og allt annað um háveturinn. Eva Sigurbjörns-
dóttir, hótelstýra á Hótel Djúpuvík og oddviti Árneshrepps, segist löngu vera orðin því vön, hún
sé farin að læra að skipuleggja sig vel eftir 30 ár á Djúpuvík. Hún veit aldrei hversu mörgum hún
má búast við í mat um jólin og það er aldrei hægt að gera ráð fyrir því að gestirnir komist aftur
heim.
N ú eru börnin öll flutt að heiman og komin með sín-ar f jölskyldur þannig að
það er svona upp og ofan hversu
margir eru hjá okkur yfir jólin,“
segir Eva Sigubjörnsdóttir, hótel-
stýra á Hótel Djúpuvík og oddviti
Árneshrepps á Ströndum, nyrsta
og fámennasta hrepps landsins.
Hún og Ásbjörn Þorgilsson, eigin-
maður hennar, reka Hótel Djúpu-
vík og eru einu íbúar þorpsins. „Við
hjónin höfum bara einu sinni verið
tvö hérna en venjulega er alltaf ein-
hver úr fjölskyldunni með okkur,“
segir Eva en þau hjónin hafa alltaf
haldið jólin á Djúpuvík, fyrir utan
eitt skipti, síðan þau fluttu þangað
fyrir 30 árum.
Enginn vill lokast inni yfir
hátíðar
„Þetta veltur auðvitað allt saman á
veðrinu. Ef það er jafn leiðinlegt tíð-
arfar og hefur verið núna þá er það
bara verið happa og glappa hvort
það er hægt að komast til okkar eða
ekki. Og svo líka hvort hægt er að
komast frá okkur aftur. Það vill nátt-
úrulega enginn lokast inni, “ segir
Eva og hlær.
„Mig minnir að þessi einu jól sem
við vorum ein þá hafi það verið eitt-
hvað tvísýnt með veðrið og þess
vegna enginn komið. Það eru þó-
nokkur ár síðan það var.“
Eva segir þau hjón vera orðin vön
einverunni en það sé þó öðruvísi
yfir hátíðarnar, þá vilji maður hafa
sína nánustu hjá sér.
Enginn snjómokstur í 3 mánuði
En það er ekki bara fjölskylda
og vinir sem sækja þau heim því
erlendir ferðamenn hafa eytt jól-
unum í Djúpuvík. „Við erum með
lítil hús til leigu á bak við hótelið
þar sem útlendingar hafa eytt jól-
um eða áramótum. Þetta fólk er
ekki inni á hótelinu og sér því að
mestu leyti um sig sjálft en það er
samt gott að vita af þeim í næsta
nágrenni vegna veðurs og færð-
ar,“ segir Eva sem er smeyk við að
taka við fólki yfir veturinn, þrátt
fyrir fjölda fyrirspurna. „Ég hef
eiginlega tekið fyrir það að fólk
sé að koma því þetta er svo mikið
vesen ef það er eitthvað að veðri
og færð því við fáum svo slæma
þjónustu hérna á Ströndum. Hér
er mokað svona einu sinni í viku
fram til 5. janúar og eftir það er
ekkert mokað fyrr en 20. mars.
Það er hægt að nauða í Vegagerð-
inni en þá þarf Árneshreppur að
borga helminginn af þjónustunni
úr eigin vasa á móti ríkinu. Það
gengur bara ekki upp því við erum
svo fá hér,“ segir Eva en í Árnes-
hreppi búa nú 56 manns.
Samgangur milli hreppsbúa
yfir jólin
Eva segir allt snúast um veðrið hjá
þeim yfir veturinn, hvort sem það
eru jól eða ekki. „Ef það er fært þá
fær maður heimsóknir og heimboð
frá nágrönnunum yfir hátíðarnar,
kaffi á annan í jólum og svona. Það
er mjög oft og það er huggulegt. Ef
það er góð tíð þá eru haldin spila-
kvöld í félagsheimilinu milli jóla
og nýárs. Það er voða gaman. Eitt
sinn var tíðarfarið það gott að við
vorum átján manns á hótelinu yfir
jólin, vinir og ættingjar. Það kom-
ust allir á milli bæja það árið svo
við ákváðum að halda kvöldvöku 2.
janúar, það vakti mikla lukku og var
gaman, það mætti allur hreppurinn.
En það viðrar því miður ekki mjög
oft fyrir svoleiðis.“
Skortir aldrei neitt
Þrátt fyrir einangrun og slæmt
tíðarfar hefur Eva ekki lent í því
að vanta nokkuð þegar kemur að
eldamennskunni yfir hátíðarnar.
„Ég lenti einu sinni í því og það var
fyrsta veturinn minn hér. Það var
bara vegna þess að ég kunni bara
ekki að kaupa inn. Ég var bara al-
gjör borgarstelpa, nýflutt norður og
kunni ekkert á hlutina. En svo lærir
maður bara inn á þetta og það kem-
ur bara aldrei fyrir að mann skorti
nokkuð. Hér erum við með fullt af
frystikistum og frystum allan skap-
aða hluti, kjöt og fisk og líka mjólk
og brauð.“
Eva ætlar að elda hamborgar-
hrygg á aðfangadag. „Það er venjan
og svo hangikjöt á jóladag en við
erum ekki enn búin að ákveða hvað
verður á annan í jólum,“ segir Eva
sem veit ekki heldur enn hversu
margir verða í mat. Það veltur allt
á tíðarfari.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstýra á Hótel Djúpuvík og oddviti Árneshrepps, segir allt vera undir veðrinu komið búi maður á
Ströndum, líka um jólin. Þau láta það samt ekki á sig fá, hafa ekki gert það í 30 ár. „Við horfum alltaf mjög bjartsýn fram á
veginn og sérstaklega til næsta árs því þá ætlum við að fagna 30 ára afmæli hótelsins. Við stefnum á að fagna því með því að fá
hingað fjölbreyttan hóp listamanna aðra hverja helgi allt næsta sumar til að fagna með pompi og prakt.“
Eva með hundinn sinn, hana Freyju. Mynd Hari.
Hjónin Eva og Ásbjörn byrjuðu að gera upp húsið sem hýsir hótelið fyrir 30 árum.
Það getur verið mjög snjóþungt yfir veturinn og frá 5. janúar fram til 20.mars sér
Vegagerðin ekki um neinn mokstur í Árneshreppi.
48 fréttir Helgin 19.-21. desember 2014
Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi lindesign.is
Ættartré Grýlu
Dúkar og renningar
Verð frá 4.980 kr
T a k k f y r i r a ð
v e l j a b æ k u r !
08.12–14.12.2014
1 UNGMENNA-
BÆKUR
2. PRENTUN VÆNTANLEG
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39