Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 56
Dýrahljóðfæri
Indónesísk hljóðfæri úr viði sem eru
vinsæl fyrir börn. Ugluflauturnar eru í
laginu eins og uglur og með því að blása
í þær kemur ugluhljóð. Höfrungarnir eru
notaðir sem slagverk en einnig er hægt
að blása í þá og kemur þá flautuhljóð.
Froskarnir eru eingöngu slagverkshljóð-
færi og öll eru dýrin fáanleg í nokkrum
stærðum.
Sítar
Indverskt strengjahljóðfæri með 18-20
strengi sem liggja í tveimur lögum
og er mikið notað í norður-indverskri
tónlist. Þeir sem kaupa sítara eru helst
áhugafólk um indverska tónlist, ind-
verska menningu og hljóðfærið sjálft.
Einn þekktasti sítarleikari síðari tíma er
Ravi Shankar, faðir tónlistarkvennanna
Norah Jones og Anoushka Shankar, sem
meðal annars kenndi George Harrison í
Bítlunum.
Ukulele
Ukulele er strengjahljóðfæri með fjórum
strengjum sem á rætur sínar að rekja til
Hawaii. Þetta er eitt vinsælasta hljóð-
færið í Sangitamiya enda hefur verið
nokkur uppgangur í kennslu á ukulele
í leik- og grunnskólum á síðustu árum.
Það eru þó ekki síður atvinnutónlistar-
menn sem spila á ukulele sem fæst
í fjórum stærðum og eru það allt frá
ódýrum byrjendahljóðfærum í hágæða
ukulele úr vönduðum viði. Einnig er
hægt að fá sérstakan ukulele-bassa sem
hægt er að spila á í gegnum magnara og
er hljóðið líkara hljóði úr kontrabassa en
rafbassa.
Hapi tromma
Hapi tromman er kringlótt, stillt málm-
tromma sem hefur einstaklega seiðandi
og töfrandi tón. Hún hefur þróast út frá
hefðbundnum karibískum stáltrommum
og afrískum tungutrommum, en ólíkt ka-
ribískum stáltrommum er lögun hennar
kúpt út á við. Hapi tromman kemur í
mismunandi stærðum og stillingum,
þar sem pentatónískar stillingar eru
vinsælastar, og hægt er að spila á þær
bæði með kjuðum og berum höndum.
Ekki þarf sérstaka kunnáttu til að geta
spilað á hapi trommuna og hægt að nota
hana hvort sem er eina sér eða spila
undir laglínu, eða jafnvel til að búa til
hljóð-effekta.
Didgeridoo
Frumbyggjar Ástralíu notuðu upphaf-
lega blásturshljóðfærið didgeridoo til
að hafa samskipti þegar langt var á milli
fólks. Blása þarf nokkuð kröftuglega
í það og kemur þá eins konar dimmt
drónahljóð. Hljóðfærið er yfirleitt gert
úr eukalyptus-tré sem termítar hafa étið
að innan. Engin göt eru á didgeridoo og
er það gjarnan skreytt fagurlega. Hljóð-
færið er bæði notað í tónlistarsköpun en
einnig í tengslum við hugleiðslu.
TónlisT Hljóðfæraverslunin sangiTamiya læTur líTið yfir sér
Guðaveigar tónlistar-
innar á Grettisgötu
Tónlistarheimur verslunarinnar Sangitamiya er mörgum hulinn þó þessi litla búð hafi staðið í
miðbæ Reykjavíkur í bráðum tíu ár. Hugmyndin að versluninni kom frá hinum andlega meistara
og tónlistarmanni Sri Chinmoy þegar hann dvaldist hér á landi. Þar er að finna gríðarlegt úrval af
hljóðfærum hvaðanæva úr heiminum, hvort sem fyrir börn og aðra byrjendur eða atvinnumenn í
tónlist.
H ugmyndin að búðinni kom frá kennara mínum í hug-leiðslu, Sri Chinmoy. Hann
leit á tónlist sem tungumál hjartans
og sem leið til að draga fram innri
frið,“ segir Eymundur Matthías-
son, stofnandi og eigandi hljóðfæra-
verslunarinnar „Sangitamiya – The
Nectar Music“ sem stendur á horni
Grettisgötu og Klapparstígs í Reykja-
vík. Sri Chinmoy samdi fleiri þús-
und lög og hélt yfir 700 friðartón-
leika víðs vegar um heiminn, þar af
þrenna á Íslandi. „Það má því segja
að Sangitamiya eigi rætur sínar að
rekja til þessarar hugsjónar hans um
frið og tónlist. Sri Chinmoy hvatti
mig til að opna hljóðfæraverslun í
Reykjavík. Það tók mörg ár þangað
til að hugmyndin varð að veruleika,
en þar kom að Sangitamiya opnaði
verslunina 19. nóvember 2005 með
hljóðfærum úr öllum heimshornum.
Verslunin er því að fagna 10 ára af-
mæli á næsta ári,“ segir Eymundur.
Sri Chinmoy gaf búðinni nafn sitt
sem kemur úr sanskrít og merkir
„guðaveigar tónlistarinnar.“
Búðin er ekki mjög stór en hefur
þó stækkað mikið frá því hún opnaði
fyrst og þó hún hafi staðið í miðbæ
Reykjavíkur í bráðum áratug eru alls
ekki allir Reykvíkingar eða nærsveit-
ungar sem þekkja til hennar. Þarna
er að finna gríðarlegt úrval af hvers
konar hljóðfærum sem koma víða að
en einnig fást þar hljómdiskar með
heimstónlist, kennslubækur fyrir
þessi ólíku hljóðfæri og nótnabækur.
„Í gegnum öll þessi ár hefur verið
afar ánægjulegt að upplifa hvað fólki
á öllum aldri þykir vænt um búðina.
Erlendir atvinnutónlistarmenn sem
hafa ferðast um allan heim hafa sagt
okkur að þetta sé einstök búð og al-
gjör töfraheimur og sumir meira að
segja gengið svo langt að segja að
þetta sé besta hljóðfæraverslun sem
þeir hafi komið í,“ segir Eymundur.
Hér meðfylgjandi er stutt umfjöllun
um örfá af þeim mikla fjölda fram-
andi hljóðfæra sem fást í versluninni.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Eymundur Matthíasson lærði hugleiðslu hjá Sri Chinmoy, en sérstakt hugleiðslusetur
kennt við Sri Chinmoy er starfrækt í Reykjavík. Hann hvatti Eymund til að opna verslun
með hljóðfærum heimsins og sú verslun er Sangitamiya. Mynd/Hari
56 hljóðfæri Helgin 19.-21. desember 2014
Láu hjartað ráða
Himneska súkkulaðið mitt er úr
lífrænt ræktuðu hráefni og Fair-
tradevottað. Hágæða súkkulaði
sem kætir bragðlaukana.
Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi lindesign.is
Hreindýr
Stærð 140x200
Verð 13.490 kr
Eitt kort
38 vötn
6.900 kr
www.veidikortid.is
00000
Aldrei fleiri vötn!
JÓLAGJÖF
VEIÐIMA
NNSINS!