Fréttatíminn - 19.12.2014, Side 58
Bankastræti 4 I sími: 551 2770
www.aurum.is
Frönsku hágæða ilmvötnin frá
L’artisan Parfumeur eru tilvalin jólagjöf.
ILMURINN
FYRIR JÓLIN
Á ramótaheitið mitt fyrir þetta ár var að vera óhrædd við að gera hluti sem ég væri
venjulega hrædd við að gera. Ég
ákvað að sigrast á sjálfri mér. Það
rímaði vel við þetta áramótaheit að
sleppa takinu og bara leyfa hlutun-
um að gerast,“ segir Albertína Frið-
björg Elíasdóttir sem fyrr á þessu
ári hætti sem forseti bæjarstjórnar
Ísafjarðarbæjar og flutti til Akur-
eyrar þar sem hún tók við starfi
verkefnastjóra atvinnumála hjá Ak-
ureyrarstofu. Albertína er fædd og
uppalin á Ísafirði og ber afar sterkar
tilfinningar síns gamla bæjarfélags.
„Ef einhver hefði sagt við mig fyrir
ári að ég ætti núna eftir að vera flutt
til Akureyrar hefði ég farið að skelli-
hlæja,“ segir hún en það var sannar-
lega ekki á dagskránni að umbylta
lífi sínu á þennan hátt.
Albertína var formaður stjórnar
Fjórðungssambands Vestfirðinga,
tók þátt í að byggja upp og stýrði
stafrænu smiðjunni FabLab á Ísa-
firði fyrir hönd Nýsköpunarmið-
stöðvar Íslands, var verkefnisstjóri
hjá Háskólasetri Vestfjarða, hjá At-
vinnuþróunarfélagi Vestfirðinga og
rannsakandi hjá Rannsóknarsetri
Háskóla Íslands í Bolungarvík, svo
eitthvað sé nefnt. Hún er með meist-
aragráðu í byggðalandafræði. Í loka-
verkefninu vann hún rannsókn á
því hvernig fólk tengist stöðum og
byggðarlögum, og notaði Ísafjörð
sem dæmi í rannsókninni. Það er
því ljóst að tengsl Albertínu við Ísa-
fjörð eru afar margslungin.
Amma sterk fyrirmynd
„Ég er alin þannig upp af foreldrum
mínum, og reyndar sérstaklega af
ömmu minni sem er mér mikil fyrir-
mynd, að maður eigi að taka þátt í
því samfélagi sem maður býr í og
leggja sitt af mörkum. Þetta skiptir
sérstaklega miklu máli í smærri
samfélögum. Mamma og amma
hafa líka innrætt mér það að sem
kona beri mér skylda til að taka þátt.
Við náum ekki fullu jafnrétti ef kon-
ur skorast undan þátttöku. Við eig-
um að segja já ef okkur býðst sæti á
framboðslista eða ef okkur býðst að
koma í viðtal. Ábyrgðin liggur líka
hjá okkur sjálfum,“ segir hún.
Albertína segist alltaf hafa upp-
lifað sterk tengsl við náttúruna
Akureyri varð
strax „heima“
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir er nýtekin við sem verkefnisstjóri
atvinnumála hjá Akureyri. Hún er borin og barnfædd á Ísafirði
þar sem hún sat síðasta kjörtímabil sem forseti bæjarstjórnar.
Fyrir ári hefði hún ekki getað ímyndað sér að hún væri nú flutt
til Akureyrar en áramótaheitið hennar var að sleppa takinu og
sigrast á sjálfri sér.
fyrir vestan, við sjóinn og fjöllin,
en það hafi frekar verið á seinni
árum sem hún lærði að fullu að
meta þau nánu samskipti sem fólk
í litlu samfélagi út á landi býr við.
„Stundum, þegar ég var yngri,
fannst mér eins og það væri hver
með nefið í hvers manns koppi en
síðar gerði ég mér grein fyrir að
þessi nánu samskipti eru frekar
merki um væntumþykju og sam-
hug og þegar eitthvað kemur upp
á standa allir saman. Pabbi minn
lenti í alvarlegu slysi á páskadag
fyrir tveimur árum og við fundum
fyrir gríðarlegum stuðningi og
velvilja. Hvert sem ég kom var ég
spurð hvað væri að frétta af pabba,
ekki að fólk hafi verið forvitið held-
ur út af raunverulegri umhyggju.“
Erfiðar ákvarðanir í pólitíkinni
Síðustu fjögur ár hafa verið sérlega
viðburðarík hjá Albertínu sem for-
seta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
og formanns stjórnar Fjórðungs-
sambandsins, sem eru landshluta-
samtök sveitarfélaga á Vestfjörðum.
„Ég hef lagt mikla áherslu á að taka
samtalið, að setjast niður og ræða
málin í stað þess að hlaupa strax í
skotgrafirnar. Það er sú nálgun sem
ég hef talið henta best, að vera heið-
arleg og koma hreint fram,“ segir
hún. Eftir annasöm ár í pólitíkinni
ákvað hún að breyta um stefnu.
„Þetta var yndislegt tímabil en líka
afskaplega erfitt. Það var mikið af
umdeildum ákvörðunum sem þurfti
að taka, það var niðurskurður í fjár-
hag bæjarfélagsins auk þess sem
við umturnuðum stuðningskerfi
atvinnulífsins á Vestfjörðum.“ Al-
bertína sat í bæjarstjórn sem oddviti
Framsóknarflokksins en stór hluti
af ástæðunni fyrir því að hún steig
til hliðar var óánægja hennar með
flokkinn á landsvísu. „Mér fannst
samt ekki rétt af mér sem oddvita
að bjóða mig síðan fram fyrir annan
flokk þó ég hefði hugsanlega viljað
halda áfram í pólitík. Ég ákvað því
bara að fara að líta í kring um mig,“
segir hún.
Albertína var því með augun
opin fyrir spennandi tækifærum,
hvort sem væri á Ísafirði eða ann-
ars staðar í heiminum, og skellti
inn umsókn í bríaríi þegar hún sá
auglýsta stöðu verkefnastjóra at-
vinnumála á Akureyri. „Ég var í
afskaplega skemmtilegu starfi hjá
Nýsköpunarmiðstöð á Ísafirði og
var mjög ánægð þar en ég hugsaði
með mér að þar sem ég væri hvort
sem er að gera breytingar að þá ætti
ég að nýta tækifærið og breyta enn
fleiru. Ég hugsaði með mér að ef ég
gerði það ekki núna þá gerði ég það
aldrei,“ segir Albertína sem er ein-
hleyp og barnlaus og því í afar góðri
stöðu til að taka afdrifaríkar skyndi-
ákvarðanir. Tveimur mánuðum eftir
að hún sóttu um stöðuna á Akureyri
var hún flutt þangað.
Gríðarleg tækifæri á Akureyri
„Systir mín býr á Akureyri og ég
fór alltaf á Andrésar Andar-leikana
þegar ég var yngri. Ég bar því alltaf
ákveðnar taugar til Akureyrar og
fannst það spennandi kostur. Mér
fannst líka áhugavert að spreyta
mig á stærri stað en Ísafirði, án þess
að langa endilega til Reykjavíkur því
þangað finnst mér ég ekkert hafa að
sækja. Akureyringar og Akureyri
hafa tekið sérlega vel á móti mér,
með frábæru veðri í sumar og nú
með nóg af snjó.“ Hún segist hafa
ákveðið að láta það sem vind um
eyru þjóta þegar fólk varaði hana
við því að flytja til Akureyrar því það
væri erfitt fyrir aðkomufólk að kom-
ast inn í samfélagið. „Ég get vottað
að það er bara einhver flökkusaga.
Þeir vinir mínir og kunningjar sem
ég átti hér, til að mynda Þóroddur
Bjarnason og Brynhildur, kynntu
mig fyrir vinum sínum, ég er kom-
in í bókaklúbb þar sem heims-
bókmenntirnar eru ræddar út frá
kynjafræðilegum vinkli og ég gat
ekki hafnað því þegar mér var boðið
í Rótarýklúbb Eyjafjarðar, en það
er góður vettvangur til að kynnast
fólki úr öllum greinum atvinnulífs-
ins. Það hefur líka verið vel tekið
á móti mér á nýja vinnustaðnum
þannig að núna líður mér eins og
ég hafi alltaf verið hér, sem er af-
skaplega góð tilfinning. Akureyri
varð strax „heima“.
Albertína segir gríðarleg tæki-
færi liggja á Akureyri og telur hún
mikilvægara að styrkja þær stoðir
sem þegar eru frekar en að horfa á
töfralausnir. „Flugvöllurinn hér er
líka afar mikilvægur. Hann á að vera
hin gáttin inn í landið því hér höfum
við upp á gríðarlega margt að bjóða
og stutt í allar áttir. Á Suðvestur-
landinu hefur hinn svokallaði Gullni
hringur verið markaðsvæddur og
er hreinlega að fyllast. Hér er hið
ósnortna Ísland og margt að gera.
Hér er til að mynda mjög spennandi
að fara á Mývatn, sjá Goðafoss og
svo er það auðvitað Eyjafjörðurinn
og sjálf Akureyri. Lausnin á vanda-
málum okkar Íslendinga, þegar
kemur að ferðaþjónustu, er að dreifa
ferðamönnum um landið. Akureyri
er hin borgin á Íslandi,“ segir Al-
bertína sem sér tækifæri í hverju
horni. „Ég held að það hafi aldrei
verið jafn spennandi að vera á Akur-
eyri og einmitt nú.“
Það er því óhætt að segja að ára-
mótaheitið hafi breytt lífi hennar
mikið og til hins betra. „Ég hafði val
um að hrökkva eða stökkva þegar
mér bauðst þetta starf og ég ákvað
að stökkva.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir var forseti bæjarstjórnar Ísafjarðar á síðasta kjörtímabili en hefur nú söðlað um og er tekin við
verkefnastjórn atvinnumála á Akureyri. Mynd Akureyri Vikublað/Völundur
Þetta var
yndislegt
tímabil en
líka afskap-
lega erfitt.
58 viðtal Helgin 19.-21. desember 2014