Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.12.2014, Side 72

Fréttatíminn - 19.12.2014, Side 72
7.990 kr. iRig Voice hljóðnemi Míkrófónn sem tengist við spjaldtölvu eða snjallsíma. Einnig er hægt að tengja heyrnartól við. Snilld fyrir stóra sem smáa söngfugla. Skemmtilegir harðir pakkar fyrir alla ölskylduna. 17.990 kr. Apple TV Horfðu á kvikmyndir, sjónvarpsþætti og hlustað á tónlist í sjónvarpinu þínu þegar þér hentar. Virkar með Netflix, iPhone, iPad, iPod, o.s.frv. Fræðandi öpp fyrir krakka S pjaldtölvur er hægt að nota á ýmsa vegu og vissulega ekki gott fyrir börn að eyða of miklum tíma í tölvunni. Til er ógrynni af öppum fyrir yngstu kynslóðina en þegar vel er að gáð kemur í ljós að fjöld- inn allur af þessum öppum er sérstaklega ætlaður til að fræða börnin í gegnum leik. Þannig eru þau ekki bara að láta tímann líða í spjaldtölvunni heldur að læra, jafnvel án þess að þau átti sig á því að þau eru að læra. Það eru til leikir sem kenna börnum líffræði, eðlisfræði, íslensku og stærðfræði en börnin upplifa aðeins að þau séu að leika sér. Hér eru nefnd nokkur fræðandi öpp en einfalt er að finna áhugaverð öpp fyrir krakka með því að leita að „educational app for children“ í App Store og Google Play. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Apple Farðu í Settings>General>Restrictions>Enable Restrictions og búðu þar til lykilorð. Þá getur þú flett niður að Allowed Content og slökkt þar algjörlega á In-app purchase. Android Opnaðu Google Store og veldu þar Menu>Settings>Re- quire password for purchases> For all purchases through Google Play on this device og búðu til lykilorð. The Human Body The Human Body er gagnvirkt app þar sem börn kynnast innviðum líkamans og hvernig líffærin virka. Möguleikarnir eru nánast óendan- legir og meðal annars er hægt að fylgjast með ferð fæðunnar frá því hún fer í munninn, í gegn um allt meltingarkerfið og þar til líkaminn skilar frá sér úrgangi. Appið nýtir myndavélina til að sýna hvernig sjónin virkar, míkrófóninn til að sýna hvernig heyrnin virkar og ljósmyndir til að lýsa heilaferlum. Appið er fáanlegt á yfir 20 tungumálum, þar á meðal íslensku. Framleiðandi appsins, Tiny Bop, hefur einnig sent frá sér fræðsluöppin Plants og Homes þar sem börn kynn- ast dæmigerðum heimilum víða um veröld. Verð: 3.99 dollarar. Læst með lykilorði Mikilvægt er að kunna vel á stillingar spjaldtölvunn- ar eða snjallsímans. Sum öpp eru þannig gerð að einfalt er að kaupa ný borð, nýja leikmenn eða stig í gegn um þau, og kallast það þá „In-app purchase“. Sérstaklega er algengt að í ókeypis öppum þurfi að kaupa viðbætur. Þegar börn nota tækin þarf því að læsa þeim þannig að staðfesta þurfi kaup með sérstöku lykilorði. 72 úttekt Helgin 19.-21. desember 2014 Myndasaga Myndasögugerð er íslenskt app fyrir krakka þar sem þeir búa til sögu úr myndum og stöfum. Notandi getur búið til myndasögu með einni eða fleiri blaðsíðum, fullum af skemmtilegum myndum og myndað orð úr stöfunum. Þegar sagan er tilbúin er hægt að skoða hana eins og bók inn í forritinu eða vista fyrir iBooks eða önnur bókaforrit til að deila með vinum og fjölskyldu. Í Myndasögu getur barnið einnig æft sig að þekkja stafina og skrifa orð. Appið er einnig fáanlegt á ensku. Verð: 2.99 dollarar Orðaflipp Orðaflipp er íslenskt sköpunar- forrit fyrir skáld og rithöfunda framtíðarinnar. Orðaflipp veitir notandanum tækifæri til að hugsa út fyrir boxið, fylla hausinn af hugmyndum, hlæja og skemmta sér. Auk þess að vera öflugt sköpunartól þá bætir Orðaflipp orðaforða og þjálfar málfræði hjá ungum sem öldnum. Orðaflipp er þannig gagnlegt tól fyrir skapandi skrif, byrjenda- læsi og almenna íslenskukennslu. Appið er einnig fáanlegt á ensku. Verð: 2.99 dollarar. Toca Lab Toca Lab kynnir börn fyrir undrum vísindanna á rannsókna- stofu og veitir þeim fræðslu um öll 118 frumefnin í lotukerfinu. Í appinu er hægt að leika sér með frumefnin og prófa eiginleika þeirra. Er gull þungt eða létt? Hvert er eðli köfnunarefnis? Hvernig hljómar neon? Hvað gerist ef þú blandar efnunum saman í tilrauna- glasi? Hér opnast nýr heimur fyrir litla vísindamenn sem eru forvitnir um hvernig efnisheimurinn virkar. Fyrirtækið Toca Boca sérhæfir sig í fræðandi öppum fyrir börn. Önnur áhugaverð eru til að mynda Toca Builders, Toca Kitchen og Toca Doctor. Verð: 2.99 dollarar. DragonBox Algebra 5+ DragonBox Algebra er app sem kennir börnum frumatriði í algebru og allt upp í flóknari útreikninga með því að rækta eigin dreka. Þetta er fullkomin leið til að gefa ungum börnum forskot í stærðfræði og algebru. Leikurinn er leiðandi, grípandi og skemmtilegur og gerir börnum kleift að læra á eigin hraða. Þetta verðlaunaapp er ætlað börnum frá fimm ára aldri en einnig er til annað samskonar fyrir 12+. Appið er til á 20 tungumálum. Verð: 4.99 dollarar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.