Fréttatíminn - 19.12.2014, Síða 82
Helgin 19.-21. desember 201482 tíska
Hildur Ragnarsdóttir, eigandi Einveru, er hrifin af pallíettum, glimmeri og öllum glamúrnum sem fylgir jólatískunni. Mynd/Hari.
Hildur Ragnarsdóttir, eigandi verslunarinnar Einveru á Laugavegi, er hrifin af glamúrnum og
glæsileikanum sem fylgir oft jólatískunni. Hér spáir hún í það helsta sem mun einkenna jóla-
tískuna hjá kvenkyninu í ár.
Glamúr og glæsileiki
H ildur telur að svokallaðir midi kjólar, eða hnésíðir kjólar, verði áberandi í jóla-
tískunni, sem og málmkennd áferð
á flíkum. „Fallegar og veglegar káp-
ur setja svo punktinn yfir i-ið á jóla-
dressið,“ segir Hildur. Að hennar
mati setja pallíettur og flauel einn-
ig hátíðlegan svip á tískuna á að-
ventunni.
Hátíðarbragur yfir jólatískunni
Aðspurð hvort jólat ískan sé
skemmtilegari en önnur tíska segir
Hildur: „Mín uppáhalds árstíð fyrir
tísku er alltaf haustið en jólatískan er
líka skemmtileg. Pallíettur, glimmer
og flauel skapa góða stemningu og
það er hátíðarbragur yfir öllu.“
Glitrandi áramót
En er eitthvað alveg ómissandi í
fataskápinn fyrir jól og áramót?
„Ég myndi segja að það væri nauð-
synlegt að eiga eitthvað glitrandi
og hresst fyrir áramótin,“ segir
Hildur. Það er þó ekki nauðsyn-
legt að eignast nýtt dress frá toppi
til táar. „En það gæti verið gaman
að lífga aðeins upp á fataskápinn
með skemmtilegum nýjum blazer
jakka, kimono, kápu, fallegu skarti
eða nýjum varalit,“ segir Hildur að
lokum. Samkvæmt hennar ráðlegg-
ingum ætti því enginn að fara í jóla-
köttinn í ár.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
kr. 8900
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Okkar hönnun
Mikið úrval
Opið alla daga til
kl 20.00 fram að jólum
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR JÓLIN
Pantaðu á www.curvy.is
eða komdu við í Fákafen 9
Afgreiðslutímar
Opið frá kl: 11-20
Alla daga framm að Jólum
STÆRÐIR 42-56
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Föstud. 19. des. Laugard. 20 og Sunnud. 21.des. Opið 12:00 - 20:00
Mánud. 22. des. og Þorláksmessa 23. des. Opið 11:00 - 22:00
Aðfangadagur 24. des. Opið 10:00 - 12:00
Ný verslun í HLÍÐASMÁRA 4, 201 Kópavogi
AÐHALDSBUXUR UNDIR JÓLAKJÓLINN
HLÍÐASMÁRA 4
201 Kópavogi
MuffinTopKiller.com
Ljósmyndir/Birta rán Björgvinsdóttir