Fréttatíminn - 19.12.2014, Qupperneq 118
Skáldaveisla Einars Ben
Boðið er til skáldaveislu á veitinga-
staðnum Einari Ben við Ingólfstorg
á morgun, laugardaginn 20. des-
ember, klukkan 16. Lesið verður
úr fimm nýjum bókum og meistari
Bjartmar Guðlaugsson tekur lagið.
Dagskrá skáldaveislunnar, sem
stendur liðlega klukkustund, er
mjög fjölbreytt. Einar Kárason les
úr skáldsögunni Skálmöld, þar
sem glæsimennið Sturla Sighvats-
son er í aðalhlutverki; Yrsa Sig-
urðardóttir les úr spennusögunni
DNA sem er meðal mest seldu
bóka ársins; Þórdís Gísladóttir les
úr ljóðabókinni Velúr sem tilnefnd
er til íslensku bókmenntaverð-
launanna; Ófeigur Sigurðsson les
úr skáldsögunni Öræfi sem hlotið
hefur stórfellt lof og er tilnefnd til
íslensku bókmenntaverðlaunanna;
Vera Illugadóttir les úr hinni róm-
uðu endurminningabók Jóhönnu
Kristjónsdóttur, Svarthvítir dag-
ar, þar sem höfundur dregur upp
ógleymanlegar myndir af veröld
bernskunnar.
Söngvaskáldið Bjartmar Guðlaugsson
slær botninn í skáldaveislu Einars Ben
en lag hans „Þannig týnist tíminn“ var á
dögunum valið Óskalag þjóðarinnar.
Þorgrímur Gestsson á Orkneyjum.
Bækur NorræNN BakgruNNur orkNeyja
Þorgrímur Gestsson, rithöfundur og fræðimaður, sendi á dögunum frá sér bókina Í kjölfar jarla
og konunga. Í bókinni er umfjöllunarefnið Orkneyjar og Hjaltland, norska jarldæmið Orkneyjar og
bakgrunnurinn Orkneyinga saga. Þorgrímur sendi frá sér bókina Ferð um fornar sögur árið 2003,
þar sem hann sagði frá ferðum sínum um fornsagnaslóðir í Noregi, með Heimskringlu Snorra
Sturlusonar sem bakgrunn. Þorgrímur segir norræna tengingu á Orkneyjum afar sterka.
H ugmyndin spratt fram þeg-ar ég stóð í flæðarmálinu við Hafursfjörð í Noregi
árið 2003, þegar ég var að skrifa
fyrri bókina. Ég hugsaði með mér af
hverju ég ætti ekki að fara og finna
þessar eyjar eins og víkingarnir
forðum,“ segir Þorgrímur Gests-
son um nýja bók sína, Í kjölfar jarla
og konunga.
Þorgrímur fór tvær ferðir til
eyjanna og dvaldi í nokkrar vikur
í senn. „Ég fór fyrri ferðina mína
árið 2008 þegar ég sá gjaldeyrinn
sáldrast milli fingra mér, en fannst
þó mikilvægt að halda áfram því
sem ég var byrjaður á. Norrænu
tengingarnar eru víða og maður
leggur úr höfn frá stað sem nefn-
ist Skorrabólsstaður, nyrst á Skot-
landi,“ segir Þorgrímur. „Ferðin
tekur um tvo tíma og heitir stærsta
eyjan í klasanum Hrossey. Það eru
fjölmörg norræn nöfn á Orkneyj-
um, sem vissulega hafa bjagast
með skoskunni en öll eru þau nor-
ræn eins og Grímsey, Kolbeins-
ey og Sandey,“ segir Þorgrímur.
Meira að segja fáni Orkneyja er
eins og sá norski. Nema hvítu rend-
urnar eru gular.
Í Orkneyjasögu segir frá Orkn-
eyjajörlum, blóðugri valdabaráttu
þeirra og ýmsu fleiru, en hún var
skrifuð á Íslandi á 13. öld. Með þá
bók í annarri hendinni og mynda-
vél í hinni ferðaðist Þorgrímur um
eyjarnar í heimsóknum sínum.
Hann fléttar saman fornsögunum
og ferðasögu sinni og tengir sam-
an forna sögustaði. „Orkneyingar
eru svolítið sér á báti. Þeir eru með
norrænan bakgrunn eins og við,
en það eru einhver rólegheit sem
einkenna Orkneyinga,“ segir Þor-
grímur. „Þeir eru töluvert ólíkir
Hjaltlendingum, sem gleymast oft
í umræðunni, en þeir eru örari í
skapi. Það má lýsa þessu fólki vel
með því að segja að Orkneyingar
eru bændur sem sækja sjó, en Hjalt-
lendingar eru sjómenn sem stunda
landbúnað. Enda er Hjaltland mag-
urt landbúnaðarland,“ segir Þor-
grímur. „Sannir Orkneyingar líta
þó meira norrænt á sig, en skoska.“
Þorgrímur segist vera með þriðju
bókina í burðarliðnum en þar ætlar
hann að heimsækja Færeyinga með
Færeyingasögu sem ferðafélaga.
Bókin Í kjölfar jarla og konunga
er gefin út af bókaforlaginu Óðin-
sauga.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Fléttar saman fornsög-
unum og ferðasögu sinni
Músaskór
fyrir börn
leikhusid.is Konan við 1000° – HHHH „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Þri 23/12 kl. 13:00 Forss. Fös 9/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 23/1 kl. 19:30 12.sýn
Fös 26/12 kl. 19:30 Frums. Lau 10/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 24/1 kl. 19:30 13.sýn
Lau 27/12 kl. 19:30 2.sýn Fim 15/1 kl. 19:30 8.sýn Fim 29/1 kl. 19:30 14.sýn
Fös 2/1 kl. 19:30 3.sýn Fös 16/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 30/1 kl. 19:30 15.sýn
Lau 3/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 17/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 31/1 kl. 19:30 16.sýn
Fim 8/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 22/1 kl. 19:30 11.sýn
Ný sviðsetning frá sömu listamönnum og færðu okkur Engla alheimsins.
Karitas (Stóra sviðið)
Þri 30/12 kl. 19:30 26.sýn Sun 11/1 kl. 19:30 28.sýn Sun 25/1 kl. 19:30 30.sýn
Sun 4/1 kl. 19:30 27.sýn Sun 18/1 kl. 19:30 29.sýn
Seiðandi verk sem hefur hlotið frábærar viðtökur. Nýjar sýningar komnar í sölu.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 20/12 kl. 11:00 Sun 21/12 kl. 11:00 Mán 22/12 kl. 16:00
Lau 20/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00
Lau 20/12 kl. 14:30 Sun 21/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 10 leikárið í röð.
Konan við 1000° (Kassinn)
Mið 7/1 kl. 19:30 38.sýn Mið 14/1 kl. 19:30 40.sýn
Sun 11/1 kl. 19:30 39.sýn Sun 18/1 kl. 19:30 41.sýn
5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun.
Hættuför í Huliðsdal (Kúlan)
Lau 20/12 kl. 13:00 14.sýn Lau 27/12 kl. 13:00 18.sýn Sun 11/1 kl. 13:00 22.sýn
Lau 20/12 kl. 16:00 15.sýn Lau 27/12 kl. 16:00 19.sýn Sun 11/1 kl. 16:00 23.sýn
Sun 21/12 kl. 13:00 16.sýn Sun 28/12 kl. 13:00 20.sýn Sun 18/1 kl. 16:00 24.sýn
Sun 21/12 kl. 16:00 17.sýn Sun 28/12 kl. 16:00 21.sýn
Spennandi sýning fyrir hugrakka krakka!
Ævintýri í Latabæ (Stóra sviðið)
Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 28/12 kl. 16:30 Mán 29/12 kl. 13:00 Lokas.
Stórsöngleikur fyrir börn á öllum aldri í Þjóðleikhúsinu.
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Lína Langsokkur – HHHH – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Lau 3/1 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00
Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Sun 4/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00
Fös 26/12 kl. 13:00 Lau 10/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00
Fös 26/12 kl. 16:00 Sun 11/1 kl. 13:00 Sun 1/2 kl. 13:00
Lau 27/12 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00 Lau 7/2 kl. 13:00
Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 8/2 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Þri 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 4/1 kl. 20:00 4.k. Sun 11/1 kl. 20:00 7.k.
Fös 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 7/1 kl. 20:00 5.k. Fim 15/1 kl. 20:00 8.k.
Lau 3/1 kl. 20:00 3.k. Fim 8/1 kl. 20:00 6.k.
Sígilt meistarastykki Ibsen í nýrri þýðingu Hrafnhildar Hagalín
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 27/12 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00
http://www.borgarleikhus.is/syningar/oldin-okkar/
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 19/12 kl. 20:00 aukas. Lau 27/12 kl. 20:00 aukas. Lau 10/1 kl. 20:00
Lau 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Jesús litli (Litla sviðið)
Sun 28/12 kl. 18:00 aukas. Sun 28/12 kl. 20:00
100.sýning
Mán 29/12 kl. 20:00
Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsupplifun!
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 20/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00 Fös 26/12 kl. 14:00 aukas.
Lau 20/12 kl. 15:00 aukas. Sun 21/12 kl. 15:00
Aukasýning 26.des vegna mikillar eftirspurnar.
118 menning Helgin 19.-21. desember 2014