Þjóðlíf - 01.06.1987, Side 19

Þjóðlíf - 01.06.1987, Side 19
E R L E N T IVAR H. JÓNSSON og áróður magnaður gegn félagshyggjufólki. Sá hagvöxtur sem við búum nú við felst * meiri gróða fyrirtækjanna og hann er einnig fjármagnaður með olíunni en vofa skuldakreppunnar í heiminum ógnar vestrænum auðvaldskerfum, því ef draumar Castros rættust, yrðu bankar gjaldþrota og þá værum við í mjög djúptækri kreppu. Mín skoðun er því ekki sú að við höfum komist yfir efnahagsvandann. Stefna Thatchers er að koma á Hong Kong hagkerfi á Bretlandi þar sem laun eru svo lág, launþegahreyfingin svo veikburða og opinber útgjöld skorin svo verulega niður, að það verði jafn gróðavænlegt fyrir breskt auðmagn eða fyrirtæki að fjárfesta á Bretlandi og í Suður Afríku. Ef slíkt gerðist, en það mun ekki gerast, þá yrðu aðstæður svipaðar hér og í Suður Afríku. Það eru tálsýnir einar að einhver grundvallarávinningur hafi unnist. Við stöndum frammi fyrir óvenju alvarlegum vandamálum sem krefjast róttækra aðgerða en almenningur gerir sér ekki grein fyrir hverjar þær aðgerðir geta verið. Við yfirvinnum ekki traustsvandamálið nema almenningur öðlist von að nýju en á meðan fólk er hrætt getur það snúist enn lengra til hægri.“ MISTÖKIN. Mig langaði nú til að heyra hvort hinn fyrrverandi iðnaðar-, tækni- og viðskiptaráðherra Breta gæti lýst efnahagsstefnu sem væri raunsæ miðað við núverandi aðstæður á alþjóðamörkuðum og beindist jafnframt að því að tryggja velferðarkerfi V-Evrópubúa um leið og lýðræði og þátttaka almennings í stefnu- mörkun samfélagsins yrði aukin. Ekki stóð á svari hjá Tony Benn. „Tökum fyrst þá efnahagsstefnu sem var framkvæmd 1945-79, en hún byggði á almennri samstöðu í meginatriðum milli hægri og vinstri," segir hann. „Segja má, með hæfilegum fyrirvörum, að sósíal- demókratísk stefna hafi verið við lýði allt frá því að Churchill varð forsætisráðherra þar til Callaghan fór frá. Slík stefna var reynd aftur og aftur með örlítilli áætlanagerð, örfáum ríkisfyrirtækjum, smávegis atvinnulýðræði og velferðarþjónustu, og allt átti kerfið að vera í jafnvægi. En dæmið gekk ekki upp, stefnan mis- tókst og segja má að stefnan hafi verið brotin á bak aftur af bönkunum 1976 og varð endanlega undir 1979. Öllum for- sætisráðherrum sem reyndu sósíal- demókratíska stefnu mistókst — hvort sem það var íhaldsmaðurinn Heath eða ráðherra Verkamannaflokksins, Callaghan. Það er því ekki neinn möguleiki á að hverfa aftur til slíkrar stefnu. Menn verða að byrja frá byrjun og vera mjög raunsæir og viðurkenna að völd fyrirtækjanna eru meiri nú en áður, að efnahagskerfið er veikara en áður og að byggja verður upp iðnaðinn frá grunni á grundvelli nútíma tækni. Ef það á að takast verður ríkisvaldið að stýra fjárfestingum í iðnaðinn í landinu, en það munu bankarnir í City ekki fallast á og það mun verða 19

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.