Þjóðlíf - 01.06.1987, Side 22
E R L E N T
■ Koivisto: Rfklsstjómin skal sltja kjörtímabllló á enda.
Erfið stjórnarmyndun
Brotið blað í finnskum stjórnmálum
VIÐ MYNDUN ríkisstjórnar Sameiningar-
flokksins, Jafnaðarmannaflokksins, Sænska
þjóðarflokksins og Flokks landsbyggðarinn-
ar um mánaðamótin apríl — maí sl. var
brotið blað í sögu Finnlands. Sameiningar-
flokkurinn, sem talinn er Iengst til hægri í
finnskum stjórnmálum, hafði þá verið utan
ríkisstjórnar í rúm tuttugu ár og allan þann
tíma höfðu jafnaðarmenn unnið með Mið-
flokknum og smærri miðjuflokkum í svo-
kölluðu „Rauðmyllusamstarfi". Auk þess
höfðu allir forsætisráðherrar landsins, allt
frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar, ann-
að hvort verið jafnaðarmenn eða úr Mið-
flokknum. Harri Holkeri forsætisráðherra,
bankastjóri Finnlandsbanka og frambjóð-
andi Sameiningarflokksins í forsetakosning-
unum í janúar 1988, er því fyrsti hægrimað-
urinn sem verður forsætisráðherra í Finn-
landi frá stríðslokum.
í sambandi við stjórnarmyndunina hefur
Mauno Koivisto möguleikann á myndun
ríkisstjórnar þriggja stærstu flokkanna: Mið-
flokksins, Sameiningarflokksins og Jafnað-
armannaflokksins en formenn tveggja fyrr-
nefndu flokkanna höfðu lýst yfir áhuga á
myndun slíkrar ríkisstjórnar eftir kosningar.
Koivisto hefur þannig verið gagnrýndur
fyrir að hafa beint eða óbeint útilokað Mið-
flokkinn úr ríkisstjórn þótt flokkurinn hafi
unnið sigur í kosningunum ásamt Samein-
ingarflokknum.
í öðru lagi er Koivisto sagður hafa verið í
kosningahugleiðingum þegar hann fékk
Holkeri umboð til stjórnarmyndunar.
Finnskir fréttaskýrendur segja að það hefði
ef til vill verið eðlilegra að fá Ilkka Suomin-
en formann Sameiningarflokksins og forseta
þingsins til að mynda ríkisstjórn enda hefð í
Finnlandi að fela forseta þingsins fyrstu
stjórnarmyndunarþreifingar. Með því að fá
Holkeri til að mynda ríkisstjórn hafi hann
ékki bara gengið fram hjá Suominen heldur
einnig gert flokki hans erfiðara fyrir í kom-
andi forsetakosningum. Það hljóti að verða
erfiðara fyrir Sameiningarflokkinn að tefla
fram sitjandi forsætisráðherra í kosning-
unum.
BORGARALEG RÍKISSTJÓRN. Koi-
visto hefur að auki verið gagnrýndur fyrir að
hafa verið of virkur í stjórnarmynduninni og
viljað hafa vakandi auga með öllu. Hann gaf
Holkeri mjög takmarkað umboð til að byrja
með og krafðist þess að fá að fylgjast vel
með viðræðum hans við Jafnaðarmanna-
flokkinn. Koivisto hefur reyndar látið hafa
eftir sér að hann hafi ekki haft mikla trú á að
stjórnarmyndun tækist með Jafnaðarmanna-
flokknum og Sameiningarflokknum heldur
hafi honum þótt borgaraleg ríkisstjórn Sam-
einingarflokks, Miðflokks og smærri borg-
araflokka líklegust. Stjórnarmyndunin tókst
þó og það fyrir baráttudag verkalýðsins
fyrsta maí, eins og forsetinn hafði vonast til.
Eftir að samkomulag hafði tekist um
stjórnarsáttmála kepptust formenn flokk-
anna um að hrósa hvor öðrum fyrir lipurð í
samningum og lýsa yfir ánægju sinni með
sáttmálann, sem báðir flokkar telja stefnu-
málum sínum í hag. í sáttmálanum komust
flokkarnir meðal annars að samkomulagi
um að athuga möguleikana á því að vinna
lagabreytingatillögu á fyrirkomulagi forseta-
kosninganna það hratt að breytingarnar
tækju gildi í tæka tíð fyrir forsetakosning-
arnar í janúar á næsta ári. J’á kysu finnskir
kjósendur forseta sinn beint í stað þess full-
trúakerfis sem verið hefur.
BRESTIR? Samkvæmt stjórnarsáttmálan-
um undirbýr ríkisstjórnin sig undir grund-
vallarbreytingar í efnahags- og atvinnumál-
um og ætlar í því sambandi að leggja fram
langþráða breytingartillögu á skattakerfinu
þannig að allar tekjur verði skattlagðar á
sama hátt án þess þó að það komi lágtekju-
fólki illa.
Nýja ríkisstjórnin fylgir að sjálfsögðu Paa- ;
sikivi-Kekkonen stefnunni í utanríkismálum
og leggur áherslu á að sambandið við Sovét-
rfkin haldist gott, auk þess sem norræn sam-
vinna telst jafn mikilvæg fyrir Finnland og
áður.
En þó að formenn tveggja stærstu flokk-
anna hafi ekki gert annað en að lýsa ánægju
sinni með stjórnarsamstarfið þykjast frétta-
skýrendur sjá að þegar sé það farið að
bresta. Flokksleiðtogarnir héldu ræður á
fyrsta maí og þá gagnrýndi Kalevi Sorsa ;
formaður Jafnaðarmannaflokksins Sænska
þjóðarflokkinn fyrir stífni í stjórnarmyndun-
arviðræðunum og taldi hann handbendi
Miðflokksins. Og þó að verkalýðshreyfingin I
sé ekki óhliðholl ríkisstjórninni enn sem
komið er efast margir verkalýðsleiðtogar j
um að stjórnarsamstarfið beri nokkurn
árangur.
Málgögn Miðflokksins halda því fram að
ríkisstjórnin lifi ekki lengi eða í mesta lagi
fram á haust þegar fara á að fjalla um fjár-
lagafrumvarpið. Undir þetta tekur Uusi Su-
omi, málgagn Sameiningarflokksins.
KOIVISTO FAGNAR. Jafnaðarmanna-
flokkurinn hefur ætíð Iitið á hinn hægrisinn-
aða Sameiningarflokk sem sinn helsta
keppinaut og fjandmann. Það er því með
hálfum huga sem margir jafnaðarmenn fara
út í stjórnarsamstarfið með sameining'
arflokknum.
Kalevi Sorsa formaður Jafnaðarmanna-
flokksins kemur auk þess til með að hætta
sem formaður á flokksþinginu næsta sumar-
Þá bíða fjölmörg vandamál úrlausnar hins
nýja formanns sem jafnframt fær það hlut-
verk að réttlæta samstarfið með erkióvinin-
um í ríkisstjórn, bæði meðal eigin liðsmanna
og gagnvart kommúnistum.
En þó að margir jafnaðarmenn efist um
að það hafi verið rétt að fara í ríkisstjórn
með hægrimönnum virðist ekki sama gil^3
um Koivisto forseta. Hann hefur fagnað
ákaft samstarfinu og segir enga ástæðu til
þess að ríkisstjórnin segi af sér eftir forseta-
kosningarnar á næsta ári heldur eigi að sitja
kjörtímabilið á enda. Örlög ríkisstjórnarinn-
ar eru því háð fjölmörgum þáttum innan
stjórnar sem utan — en lifi ríkisstjórnn1
haustið á hún enn betri möguleika en ella-
■ Guörún Helga Slguröardóttir / Helsinki
22